Vikan - 13.06.1974, Síða 7
HÁTÍÐER TIL HEILLÁ BEZT
Þetta blað er helgað byggðarafmæli landsins og þjóðhátið á þessu sumri.
Það er gamalt mál, að hátið sé til heilla bezt og ef dagamun á að gera á
annað borð, skuli það vera svo að myndarbragur sé á. Þess vegna er það
gleðiefni að nú keppast allir við að leggja sitt af mörkum og leitast við að
láta verk sin, sem vara, bera nokkur merki hátiðarskapsins. Slikt samir
vel, og seinni kynslóðir munu kunna að meta það að verðleikunyþegar nýir
menn á nýjum timum fara að rifja upp fyrir sér árið 1974. Þeir munu dæma
það allt eftir sinum skilningi og viðhorfum. Fyrir þvi getum við litla grein
gert okkur, enda er okkar hlutur ekki annar en sá að gera eins vel og okkur
er unnt og leggja okkur fram, hver og einn, til þess að þjóðhátið verði haldin
með þeim menningarbrag sem við vitum beztan.
Öllum þeim, sem þessar linur lesa, óska ég árs og friðar og læt þá von i
ljós, að þjóðhátiðarárið beri i skauti sinu sem mesta hamingju fyrir sem
flesta.
Kristján Eldjárn