Vikan

Eksemplar

Vikan - 30.09.1976, Side 12

Vikan - 30.09.1976, Side 12
■*1 ■) BÍTLARNIR ENN. Kæri Póstur! Ég er ekki áskrifandi, en les samt Vikuna, hvenær sem ég næ í hana. En ég ætlaði að spyrja hvort hægt væri að kaupa gamlar Vikur á afgreiðslunni hjá ykkur. Ég var nefnilega að róta í gömlum blaða- kassa og fann Vikublað frá 30 ára afmæli Vikunnar. Þar sé ég fram- haldsgrein um Bítlana (8. hluti), og þar sem ég er algerlega Bítil- óður, þá spyr ég, hvort hægt sé að kaupa gamlar Vikur. Kannski þið getið fundið þessar Vikur með Sögu Bítlanna. Hvernig er krotið, og hvað færðu út úr því? Kveðjur, Bítilspólóður. Það er föst reg/a að ha/da eftir nokkrum eintökum af hverju tölu- biaði, því það kemur oft fyrir, að fólk óskar eftir gömlum eintökum, sem týnst hafa innan úr hjá því. Blöðin með Sögu Bítlanna munu vera til hjá afgreiðslunni, og þar geturðu fengið þau keypt. Ekki er nú krotið beint fallegt, en það stendur vonandi til þóta. Skriftin bendir annars til þess, að þú sért gæddur léttri lund, og það er ekki /ítils virðií heimi hér. BÆNDASKÓLI. Komdu sæll Póstur! Ég hef skrifað þér einu sinni áður, en bréfið hefur líklega verið svo Ijúffengt, að ruslakarfan hefur gleypt það. Fékk hún nokkuð magapínu? Jæja, mig langar að spyrja þig, hvert á að snúa sér, ef mann langar í bændaskóla? Hvernig er skriftin, og hvað lestu úr henni? Hvaö heldur þú, að ég sé gömul? Mætti ekki bæta nokkr- um blaðsíðum við Vikuna? Jæja, blessaður, og takk fyrir gott blað. Sigga. Ruslafatan er reyndar að drep- ast úr hungri, þvi það er svo /angt síðan Pósturinn hefur grisjað í bréfamöppunni, og þvi er það mappan, sem er með verki núna. En Sigga min góð, því í ósköp- unum snýrðu þér ekki beint ti/ bændaskólanna tveggja, sem starfræktir eru hér á landi, annar á Hólum i Hjaltadal, hinn á Hvann- eyri í Borgarfirði? Þangað ska/tu snúa þér og ekkert annað. Skriftin er ekki afleit, en stafsetningin slæm. Þú gætir verið sextán ára, glaðlynd og dálítið ákveðin stúlka, en mátt vara þig á fljótfærninni. Það veitti ekkert af fleiri blaðsiðum í Vikunni, og stundum eru þær líka fleiri. Vonandi eigum við bæði eftir að sjá Vikuna helmingi stærri en hún er núna _____ og auðvitað helmingi betri um leið. FORELDRARNIR STRÍÐA. Kæri Póstur! Þetta er í fyrsta skipti, sem ég skrifa þér, og ég vona, að þú bregðist ekki vonum mínum. Þannig er mál með vexti, að ég er hrifinn af stelpu. Hún er skemmtileg, tillitssöm og fjörug. En eins og stundum vill verða er galli á gjöf Njarðar. Stúlkan er dóttir vinkonu móður minnar. Þessar tvær fjölskyldur eru mjög samrýmdar, til dæmis fara þær oft saman í ferðalög. En það er ekki fyrr en núna, sem ég tek eftir fegurð stúlkunnar. Ofan á það þætist, að við erum bæði feimin (að minnsta kosti ég), og svo eru foreldrarnir oft að stríða okkur. Hvað á ég að gera? Hvar get ég fengið megrunarfæðislista? Hvað lestu úr skriftinni, og hvernig er hún? Með fyrirfram þökk fyrir birt- inguna. Einn í vandræðum. Blessaður hatðu ekki þessar áhyggjur út af stúlkunni, leyfðu málunum að þróast i rólegheitum. Ykkur liggur ekkert á, því ekki rekur aldurinn á eftir. Reyndu bara að koma sem eðlilegast fram, og svo sér forsjónin um hitt, ef þetta er þá nokkuð annað og meira en unglingaskot, sem gleymist, þegar þið kynnist fleirum. Ef þú ert bara svolltið of feitur, þá nægir þér að draga einfaldlega úr allri fæðu, en þó einkum öllu, sem inniheldur sykur og hveiti. Sé vandamálið stórkostlegra, skaltu hafa samráð við lækni. Annars bendi ég þér á megrunar- kúr Vikunnar, sem birtist i 1. tbl. 1975 og aftur I 23 tbl. sama ár. Sá kúr er unninn upp úr bók eftir amerlskan lækni og hefur reynst mörgum mjög vel. Skriftin er ekki beint fa/leg, en hún gefur tilkynna ein/ægan og opinn huga.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.