Vikan

Tölublað

Vikan - 30.09.1976, Blaðsíða 27

Vikan - 30.09.1976, Blaðsíða 27
Auðvitað var flogið yfir Gullfoss. ölfusárbrúin við Selfoss. Cessnan tilbúin til flugtaks. gagnlegar uþplýsingar, en veitti síðan leyfi fyrir skoðunarflugi yfir eyjarnar. Flogið var í stórum boga yfir eyjar, en þegar komið var yfir nýja hraunið var svo mikil ókyrrð í loftinu, að vélin datt niður, en hentistsvouppaftur. Þýskakonan, sem sat við hliðina á mér, hafði losað öryggisbeltið, og því alls ekki undir það búin að lenda í svona ,,röff" veðri. Hún hentist upp í loft og skall svo niður í sætið aftur, en lenti með andlitið á myndavélinni, sem hún hélt á og fékk smágat á höfuöið. Að sjálfsögðu var sjúkra- kassi (flugvélinni og því var strax Þjóðverjarnir voru hinir ánægðustu með feróina, þótt einn hefði orðið að grípa til æ/upokans og annar fengið gat á höfuðið. settur plástur á sárið. Surtsey var næstádagskrá, og flogiðtvohringi yfir eyna, en haldið síðan til lands. Tekinn var einn hringur yfir Sel- fossi, farið yfir Hveragerði og í bæinn. Á móts viö Sandskeiðiö kallaði Þórður flugturninn í Reykjavík upp og sagði, að Teitur Sigurður væri að koma inn á þeirra svæði. Þórði var þegar gefin heimild til loka- stefnu og lendingar. Lendingin tókst jafnörugglega og allt annað hjá Þórði. Þjóðverjarnir voru alveg himinlifandi eftir ferðina, þótt einn hefði kastað svolítið upp og annar fengið smágat á höfuðið. En trúir þú því, lesandi góður. að ég varfyrsti fslendingurinn, sem fer ísvonaskoðunaiferð með Sverrair. Þeir hjá Sverrair hafa meira að segja verið með útsýnisflug til Græn- lands, en aldrei hefur íslendingur farið með. Alveg finnst mér það furðulegt, þvíþað var mjög gaman í þessari ferð.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.