Vikan

Tölublað

Vikan - 30.09.1976, Blaðsíða 36

Vikan - 30.09.1976, Blaðsíða 36
NOKKRIR KÍLÓMETRAR Á DAG Neysluvenjur velfe. ðarþjóðfél ■ agsins hafa ýmislegt í för með sér, til dæmis eilífa baráttu nútíma- mannsins við aukakílóin utan á kroppnum. Jackie Kennedy- Onassis er engin undantekning þar frá, en ekki verður annað séð af myndum en henni verði talsvert ágengt í þeirri baráttu. Dóttir hennar Caroline á við sama vanda- mál að stríða, en hún þarf að leggja enn harðar aö sér, því hún hefur erft hinn þreklega vöxt föðuraettarinnar. Mamma Jackie komst nýlega í kynni við nýjung í megrunarmálum, sem ku vera fólgin í því að þamba einhvern drykk, sem Prolinn nefnist, sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum, og því er lofað að allt að 40 pund hverfi við neyslu þessa dáindis- drykkjar á einum mánuði, að því tilskyldu að vísu, að neytandinn hlaupi einnig nokkra kílómetra á dag. Og Caroline Kennedy telur það sannarlega ekki eftir sér að hlaupa nokkra kílómetra á dag, enda er hún dóttir hans föður síns, einbeitt og dugleg stúlka, orðin 19 ára. JANE FONDA LEIKUR AFTUR. Jane Fonda hefur ekki setið með hendur í skauti síðustu þrjú árin, enda þótt hún hafi ekki stundað kvikmyndaleik þennan tíma. Hún hefur notað hæfileika sína og dugnað í þágu jafnréttis- baráttunnar og haldið fyrirlestra víða um lönd. En þegar henni barst tilboð um hlutverk í kvik- myndinni ,,Dick and Jane" með Georges Segal sem mótleikara, stóðst hún ekki mátið og sagði játakk. Angelu Davies-hárgreiðsl- „ an er einmitt í tilefni af þessu nýja jgI hlutverki. Fegurðardrottning Eþíópíu giftist. fimmtugur orðinn. Þegar Zeudi Araja var aðeins 18 ára gömul var hún kjörin fegurðar- drottning heimalands síns Eþíópu, og var það í fyrsta skipti, sem fegurðardrottning er kjörin þar í landi. Það var sjálfur keisarinn Haile Selassie sem krýndi drottn- inguna, og fór athöfnin fram í höfuðborginni Addis Abeba aö viðstöddum áhorfendum. Aö launum fyrir fegurð sína fékk hin unga Zeudi 3ja mánaða ferð til Ítalíu, og þar kynntist hún fljótlega kvikmyndaheiminum og fékk að reyna sig á hvíta tjaldinu. Henni vegnaði vel, og nú leikur hún aðal- hlutverkið í þriðju mynd sinni, sem nefnist — Stúlkan með tungls- andlitið —. En nýlega kom Zeudi öllum á óvart, þegar hún í kyrrþey tók upp á því að giftast kvik- myndaframleiðandanum og kvennabósanum Franco Cristaldi. Nafnið ætti að vera einhverjum kunnugt, því að hann var áður kvæntur leikkonunni fögru Claudíu Cardinale. Aldursmunur hinna nýgiftu er þó nokkur, því að hann er hvorki meira né minna en 36 VIKAN 40. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.