Vikan - 30.09.1976, Qupperneq 14
Fjölskyldan að Vesturbergi 141,
hjónin Sverrir og Þorbjörg ásamt
þrem dœtrum sínum, Hafdísi, Jó-
hönnu Eyrúnu, Ingibjörgu — og
Kötu.
Catherine Shields Early
KATA kata
Kata hefur
dvalið hér á landi í sumar
á vegum AFS
(American Field Service)
og hefur ferðast víða um landið,
ásamt
7 félögum sínum frá Bandaríkjunum.
Dvölin hér mun verða
þeim öllum
eftirminnileg um langa frarntíð.
Kata kom hingað 1 mígandi rign-
ingu fyrir tvcimur og hálfum
mánuði og fer héðan í sömu
mígandi rigningunni á sunnudag-
inn. A mánudaginn fcr hún i
Háskólann í fyrsta sinn — T sól og
steikjandi hita.
í raun og vcru heitir Kata ekki
Kata, heldur því virðulega nafni
Cathcrine Shields Early, en hún er
kölluð Cathy, sem auðvitað þýðir
bara Kata.
Hún býr í ,,litlu þorpi”, segir
hún, Snow Hill, Maryland, þar sem
aðeins búa um 25 þúsund manns.
Faðir hcnnar er raftæknifræðingur,
sem vinnur hjá NASA. Þau búa i
einbýlishúsi umvöxnu skógi i slétt-
lendi við ströndina. I húsinu búa
tveir bílar, cin mamtna og sex
börn, auk atvinnutækisins, sem þau
kalla pabba.
Mamma var i skóla, þegar henni
datt allt í einu í hug að búa til
,,nokkur stykki börn”, sem hún
dreif af i fljótheitum, og áformar
nú að halda bara áfram að læra.
Catherine Shiclds Early komst á
snoðir um það í skólanum (auk
ýmislegs annars), að til væri nokkuð
sem væri kallað nemendaskipti.
Við nánari könnun komst hún að
þvi, að tveir kunningjar hennar
höfðu látið skipta á sér fyrir aðra og
tekist vel. Þessir kunningjar höfðu
notið þeirra fríðinda að vera skipt til
suðlægra landa og létu vel af. Þegar
Kata hafði sótt um skipti, var henni
tjáð, að hún mætti svo sem fara
til íslands, ef hún kærði sig um.
Við nánari eftirgrennslan komst
hún að því, að ísland væri eyja langt
úti í hafi. Þar væri samt hægt að
lenda flugvélum með lagi, og þar
byggi Sverrir Traustason skipstjóri
og dundaði við að tina humarhala
úr sjónum umhverfis eyna.
Að sjálfsögðu aflaði Kata sér
ýmissar vitneskju um eylandið áður
en hún fór af stað, og eitt af þvi,
sem henni var sagt, var að nokkuð
vætusamt mundi yfirleitt vera á
suðurströndinni. Hún hefur nú
—