Vikan

Issue

Vikan - 30.09.1976, Page 25

Vikan - 30.09.1976, Page 25
CVBJUR Aranna Aftari röö frá vinstri: Marge Champion, Cyd Charisse, Johnny WeissmuHer. Fremri röö frá vinstri: Kathryn Grayson, Gene Ke/iy, Les/ie Caron, Fred Astaire og Dona/d O'Connor. Hér eru þær — stjörnur ungdómsáranna saman komnar allar í einum hópi. Stórmerkin gerðust þegar verið var að kvikmynda,, That's Entertainment II", þar sem við fáum að sjá þau öll einu sinni enn. Og ekki er verra að sjá, að aldurinn setur /íka mark sitt á þær, hollívúddstjörnurnar. Marge og Gower Champion voru fótafim, falleg hjón/dans- félagar, sem fylltu kvikmyndahús- in aðdáendum fyrir þrjátíu árum. Nú þegar Marge er orðin 53ja ára, er hún dregin fram á sjónarsviðið á nýjan leik sem þáttakandi í gerð kvikmyndarinnar „That's Enter- tainment II". Cyd Charisse: Þegar hún sveif yfir léreftið á fögrum fótleggjun- um og sveiflaði kastaníubrúnu hárinu mátti heyra saumnál detta í bíósalnum. Heita mátti fullvíst, að aðdáendur hennar grétu sig í svefn, þegar þeir voru háttaðir eftir að hafa eytt með henni kvöldi í einu kvikmyndahúsanna. Hún dansaði bæði með Fred Astaire, og Gene Kelly og hverjir muna ekki eftir henni í myndunum ,,Easter Parade" og „Singin in the Rain," Til hafa verið Tarzanar á undan og eftir Johnny Weissmul/er, en enginn þeirra hefur synt yfir ár fullar af krókódílum með meiri glæsibrag, enginn barið sér á brúnna brjóst eða klifrað í hættu- legri trjám og það án staðgengils. Nú, svo var maðurinn ólympíu- meistari í sundi. Núna lifir hann á því að selja sundlaugar. Gene Kelly. Er hægt að gleyma honum með stráhattinn á ská brosandi út i annað í myndinni „Ameríkumaður í París"? Hann var og er undursamlegur. Hann er bæði dansari og söngvari og þessutan skínandi leikari, og svo lítur hann síður en svo slorlega út. Nú er hann orðinn 64ra ára, og er mjög eftirsóttur danshöfundur bæði í Frakklandi og Bandaríkj- unum. Leslie Caron — ómótstæðileg sem Lili og ógleymanleg sem Gigi, sem hún lék í kvikmynd með landa sínum Maurice Chevalier. Hún dansaði líka með Gene Kelly í kvikmyndinni „Ameríkumaður í París", en til Parísar er hún flutt á nýjan leik. Hún er 43ja ára og starfar við ritstjórn kvikmynda- handrita. Fred Astaire er nánast orðinn að goðsögn 76 ára að aldri. Enginn leyfir sér að efast um, að hann er besti og mest töfrandi söngvari/ dansari/steppari kvikmyndasög- unnar. Kvikmyndanna „Top Hat". „Esaster Parade" og „Daddy Long Legs" verður minnst um alla framtíð fyrir ástar- atriðin, sem eru ógleymanlegustu atriði af því tæi, sem sést hafa á hvíta tjaldinu. Kathryn Grayson og Howard Keel gerðu „Showboat" að eftir- minnilegustu óperettu sjötta ára- tugarins. Hennar er einkum minnst vegna útlitsins og raddar- innar, sem er undurblíð. Nú er hún 55 ára. Donald O’Connor var helsta átrúnaðargoð táninga fyrir u.þ.b. 30 árum. Með útið hár og freknur á nefinu dansaði hann inn í hjörtu allra, sérlega í myndinni „Call with Madam". Við minnumst hans einnig um leið og Debbie Reyn- olds í Francismyndunum, mynda- röðinni um asnann sem kunni að tala. Nú er hann fimmtugur orðinn og kemur einkum fram í sjónvarpi og næturklúbbum eins og flestir jafnaldrar hans. 40. TBL. VIKAN 25

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.