Vikan - 30.09.1976, Síða 30
Sþáin gildir frá fimmtudegi til miðvikudags
HRÚT'JRINN 21. mars - 20. april
Mál, sem þú hélst að væri útrætt, krefst nú
nýrrar umræðu vegna nýrra viðhorfa. Þét
gefstekki mikill timi til að sinna einkamálum
þínum þessa vikuna,
NAUTIÐ 21. apríl - 21. r\aí
Margtferöðruvísi en ætlað er, en þú munt þó
sætta þig við öll málalok. Þú færð gjöf í
þakklætisskyni fyrir greiða, sem þú gerðir
einhverjum ekki alls fyrir löngu.
TVÍBURAPNIR 22. maí - 21. júni
Þú verður fyrir óhappi í sambandi við
atvinnutæki þitt. Þú skalt kanna vel allar
aðstæður áður en þú ræðst í framkvæmdir af
einhverju tagi á næstunni.
KRABBINN 22. júní - 23. júll
Þú þarft að taka að þér störf einhvers sem þú
þekkirog hagnast töluvert á því fjárhagslega.
Þú gerir góð viðskipti við góðan kunningja
þinn.
, LJÓNIÐ 24.júH — 24. aqúst
Vertu hress og glaður, hvað sem á dynur, það
gerir bara illt verra að vera i vondu skpi. Þú
lendir fyrir tilviljun á stað, þar sem þú hittir
mikið af skemmtilegu fðlki.
MEYJAN 24. áqútt - 23. sept.
Þú hefur mikið yndi af þvi að veitaog sjá aðra
njótalífsinsáþinn kostnað. En þú skalt varast
að gera of mikið af því að hjálpa öðrum, því að
þú verður að hugsa um sjálfa þig.
VOGIN 24. sept — 23. okt.
Þú erteinstaklega önugur eins og stendur. Þú
skalt reyna að komast eitthvað burtu til að
lyfta þér upp, annars mun andleg heila þín
fara versnandi.
SPORÐDREKINN 24. okt. - 23. nóv. .
Þú ert alltof eigingjarn og sjálfselskufullur,
gættu þess að þú særir ekki þá, sem þér eru
kærir með þessum ágöllum þínum. Þú ert
liklegurtilþess að hagnast á einhverju braski.
; BOGMAÐURINN 24. nóv. - 21. des.
’ Það er nokkuð erfitt tímabil framundan hjá
þér og eitthvað sem þú hefur lengi reitt þig á,
bregst. Ef þú ert allur af vilja gerður, kemstu
yfir crfiðleika þína með sóma.
STEINGEITIN 22. des. - 20. ian.
Þú verður fyrir happi, sem hefur talsverða
þýðingu fyrir þig persónulega. Þú færð
góðar fréttir langt að. Þú kynnist góðum
manni, sem mun reynast þér vel.
VATNSBERINN 21. jan. - 19. febr.
Þú ert í góðu jafnvægi og nýtur þess sem þú
. aðhefst. Vinur þinn leitar ráða hjá þér og
skaltu liðsinna honum, þó að þér finnist þú
hafa lítinn tíma til þess.
FISKARNIR 20. febr. - 20. man
j;0i, | Vinir þínir koma þér á óvart með vel
undirbúnu uppátæki. Þú verður fyrir
skemmtilegri tilviljun. Á laugardaginn færðu
kærkominn gest.
Samtímis sá hann í anda skrif-
borðið, sem hún hafði keypt
handa honum og stóð ónotað i
stofuhorninu. Hann vissi, að þar
gæti hann ekki unnið. Nú lá við,
að hann óskaði þess, að hann
hefði aldrei hitt hana.
Þetta kvöld flýtti hann sér
heim til Rósu, eins og lff lægi við,
ef hann kæmi ekki í tíma. Hann
hélt, að hún yrði köld og fjarræn,
en hún þaut upp um hálsinn á
honum eins og hann hefði verið
að heiman svo vikum skipti.
— Eg hef saknað þín svo, sagði
hún og þrýsti sér upp að honum.
Það er svo einmanalegt hér án
þin.
— Þetta er nú bara ein nótt sagði
hann glaðlega. Honum leið strax
betur.
— Þú varst tvær nætur i burtu í
sfðustu viku, sagði hún ásakandi.
Honum gramdist:
— Telurðu næturnar?
— Bara af því að ég er svo
einmana, sagði hún og roðnaði.
Þrátt fyrir allt þá...
— Þá hvað? Hann var önugur.
— Það er annað með þig, hún
reyndi að verja sig. Þú hefur nú
— aðra hluti. Hún leit undan.
— En ég hef bara starfið, kem
heim og bíð eftir þér. Ég hef
aðeins þig að gleðjast yfir, ef þú
skilur mig.
Hún sagði þetta hratt, eins og
hún óttaðist að ergja hann, svo
tók hún utan um hálsinn á honum
og kyssti hann og sagði
glaðlega:
— Ég bjó til dálitið, sem þér
þykir gott. Getur þú giskað, hvað
það er?
Og nú var hún hlýlega,
ástúðlega konan, sem hann vildi,
'að hún væri. Litlu síðar sagði
hann:
— Heyrðu Rósa, þú veist um
prófið, sem ég hef verið að tala
um — ég verð að fara að lesa af
alvöru.
— Já, en það getur þú gert hér,
sagði hún strax. Það hefi ég marg
sagt. Hér hefur þú skrifborðið
þitt og allt til alls. Þú getur lesið
meðan ég sauma eða dútla
eitthvað.
Henni fannst tilhugsunin
greinilega ánægjuleg, en hann
dró sig inn í skel. Honum fannst
það eins og móðgun við
rómantískt samband þeirra, að
hún sæti við saurna — einmitt
eins og eiginkona! Næstu
kvöldum eyddi hann hjá henni,
ástfanginn og glaður. Honum
sárnaði, ef hún stakk upp á þvi,
hvort hann viidi ekki lesa á
kvöldin.
— Æi, blásum á vinnuna, sagði
hann.
Hún var upp með sér, en samt
hafði hún áhyggjur, og andlits-
drættirnir lýstu óöryggi. Dag
nokkurn spurði hún varlega:
— Hefur þú spurt hana um skiln-
að?
Hann leit undan og svaraði með
undanbrögðum:
— Tja — hún vill ekki hlusta á
mig núna...
Þó að hann horfði ekki á hana
fann hann greinilega, hvernig
hún nísti á hann augunum. Þetta
áreitti hann svo, að hann átti
erfitt með að stilla sig. Auk þess
kenndi hann samviskubits, en
skildi þó ekki hvers vegna. Til að
dylja þetta varð hann óeðlilega
glaður og fjörugur, og hún
smitaðist af kæti hans, og þau
hlógu og skríktu eins og krakkar.
— Það er bara það, að þú ert svo
siðavönd, sagði hann og togaði í
hárið á henni.
— Siðvönd? Hún smjattaði á
orðinu. Gamaldags líka?
— Konur vilja alltaf gifta sig,
sagði hann. Rétt eins og við höf-
um það ekki stórkostlegt eins og
er! Við elskum hvort annað. Ef
við giftum okkur eyðileggjum við
allt saman.
En slík rök rugluðu alltaf Rósu.
Hún hugsaði vel um allt.semhann
sagði, en tilfinningar hennar voru
alltaf jafn heitar. Hún tautaði
blíðlega:
— Þú ruglar bara.
— Karlmenn eru fjölkvænis-
verur, sagði hann glaðlega. Það er
vísindaleg staðreynd.
— En hvað eru konur þá? spurði
hún kelin.
— Þær eru þvert á móti.
Hún hugsaði af alvöru um
stund eins og hún var vön, svo
sagði hún bara:
— Ó, nei?
— Hvað meinar þú? sagði hann.
Ert þú kannski ekki eins manns
kona?
Rósa brosti bara, svona kjána-
legt orðasamband gat ekki átt við
hana.
— Þú ert að hugsa um Georg!
sagði hann allt í einu, greinilega
afbrýðisamur.
— Það geri ég ekki, sagði hún
greinilega særð og móðguð.
Dag nokkurn spurði hann:
IGNIS
frystikistur
SÍmh 19294
RAFTORG
SÍmh 26660
30 VIKAN 40. TBL.