Vikan - 23.12.1976, Side 5
„Þetta er erfiðasta hlutverk, sem
ég hef tekið að mér um dagana,”
segir Franco,” og ég má gæta mín
að skella ekki uppúr í þöglu
atriðunum. Ég segi við fólkið, sem
vinnur að gerð myndarinnar, að ef
ég sjái nokkurn mann hlæja að
tilburðum mínum, þá fari ég heim.
Þegar stúlkan hvilir í örmum mín-
um í þöglu atriðunum þá tel ég:
1,2,3,4,5, og stúlkan í örmum mín-
um telur áfram: 6,7,8,9,10!”
ÁFRAM CASANOVA!
Donald Sutherland hefur tekið
að sér að leika Casanova. „Það er
með ólíkindum,” segir hann, „en
allt sem skrifað var um Casanova
var hreinn sannleikur, þótt ótrúlegt
sé”.
Donald, sem er þekktur fyrir leik
í myndum á borð við The Dirty
Dozen, Klute og Don’t Look Now
er kanadamaður. Hann virðist í
fljótu bragði ekki vera týpan til
að leika hinn mikla flagara, en
Fellini, leikstjórinn frægi, valdi
hann eftir mikla leit að réttum
manni í hlutverkið.
Hinn raunverulegi Casanova
hafði ekki þann þokka til að bera,
sem flestir ætla að heilli konur.
Hann var hávaxinn, en klunna-
legur, með arnarnef og missti fljótt
hár. Hann var fæddur í Feneyjum
árið 1725, sonur leikara og óperu-
söngkonu. Hann gekk kirkjunni á
hönd 15 ára gamall og var orðinn
ábóti 17 ára gamall, en var varpað á
dyr, þegar upp komst, að hann
hafði samtímis dregið tvíburasystur
vinar síns á tálar!
Framvegis var lif hans helgað leit
að hamingju, og hann áleit, að ham-
ingjuna væri að finna í örmum
kvenna og við spilaborðið. Honum
mistókst hrapallega við spilaborð-
ið, en náði undraverðum árangri i
samskiptum sinum við kvenfólkið.
„Hann var eii.nig lærdóms-
maður”, bætir Donald við, „og þar
sem hann sýndi mikla leikni i
skylmingum, hestamennsku og á
dansgólfinu, fannst konum hann
ómótstæðilegur. Það koma margar
Og áfram er haldið við umbreyt-
inguna ___ augabrúnir faldar og
nýjar límdar á.
stúlkur fram í myndinni, en ég hef
ekki æft mig sérstaklega í ástar-
leikjum. Fellini segir, að Casanova
hafi getað elskað átta konur í röð.
En ég sagði honum, að ég gæti
aðeins elskað sex konur í röð. Alltaf
þegar ég ætla að gera betur fæ ég
blóðnasir!”
Casanova var úthverfur og naut
sín í margmenni. En Donald er
andstæða hans i einkalífi sínu.
Hann snertir ekki peningaspil og er
enginn sérstakur kvennamaður.
Hann lifir í sátt og samlyndi með
þriðju konu sinni, frönsk-kanadísku
leikkonunni Francine Racette og
tveggja ára gömlum syni þeirra,
Roeg að nafni.
Donald leggur sig allan fram í
hlutverkinu. Þegar aðalmótleikari
hans, hin fagra Sylvia Kristel (sem
leikur í Emmanuelle) bíður hans í
lokkandi stellingum í einu atrið-
inu, þá segir hann brosandi: „Ég
vildi óska, að þeir verði lengi að
ljúka þessari kvikmynd...! ”
Casanova virðist í góðum
höndum!
LENGI LIFI KONUNGURINN
Það er leikarinn James Brolin,
sem hefur tekið að sér að leika
Clark Gable í mynd, sem heitir
Lombard and Gable. „Þetta er
gífurlega erfitt hlutverk”, segir
hann. „Fólk segir að það jafngildi
sjálfsmorði að reyna að leika Clark
Gable, og það spyr: Hvernig dettur
þér i hug að þú getir leikið Gable?”
Steve McQueen, Warren Beatty
og Burt Reynolds neituðu allir að
Myndin til vinstri sýnir Clark Gable
i lifanda lífi, en á myndinni til hægri
er eftirhkingin, þ.e. leikarinn James
Brolin umbreyttur. „Hann er svo
likur Clark í útliti og öllum háttum,
að mér stendur ekki á sama”, segir
leikstjórinn Sidney Furie.
taka þetta hlutverk að sér, og Burt
sagði af þessu tilefni: „Það er nógu
erfitt að leika, án þess að vera likt
við Gable.”
Fyrir 30 árum var Clark Gable
fremstur i flokki karlleikara í Holly-
wood, og Joan Crawford sæmdi
hann eitt sinn heitinu Konungur
Hollywood. Clark fékkst við margs-
konar störf í æsku — skógarhögg,
olíuvinnslu, sölumennsku og frétta-
mennsku. Clark var orðinn þrítugur
þegar Hollywood uppgötvaði hann,
en strax fyrsta árið lék hann í
hvorki meira né minna en 12 kvik-
myndum.
í augum kvenna var hann ímynd
karlmennsku, og karlmenn voru
reyndar sömu skoðunar. Eftir að
hann lék í kvikmyndum'a borð við
Uppreisnin á Bounty og Á hverf-
anda hveli varð hann heimsþekktur
og náría'st helgur í margra augum.
Clark Gable var ekki hamingju-
samur í einkalífi. Hann kvæntist
fimm sinnum, en taldi sig ekki
hamingjusaman nema i sambúðinni
við þriðju konuna, Carole Lom-
bard, en hún fórst i flugslysi þremur
árum eftir að þau giftust. Myndin
Lombard og Clark fjallar einmitt
um ástir þeirra. Það er nýliðinn Jill
Clayburgh, sem leikur Lombard.
James Brolin, sem er þrjátíu og
fimm ára, er furðu likur Clark
Gable. Hann hefur svipað háralag,
samskonar yfirvararskegg og háðs-
Eftir tveggja tima vinnu er Donald
horfinn, en fram stígur 18. aldar
sögufræg persóna, sem...
legt glott. En eyru hans eru ósköp
venjuleg, svo grípa þurfti til hjálp-
armeðala tíl að stækka þau og gera
þau útstæð!
„Ég er búinn að lesa allt um
Gable”, segir James,” og hef séð
allar kvikmyndir hans. Ég er búinn
að eyða miklum tima fyrir framan
spegil til að likja eftir svipbrigðum
hans. Þrátt fyrir að hann væri
mikill á velli og með sterkan
persónuleika, þá var hann í raun
ákaflega gæflyndur maður. Hann
gat setið tímunum saman með fólki
án þess að segja orð, og ég er
reyndar þannig gerður sjálfur...”
Og það er fleira líkt með þeim.
Clark Gable var fyrirtaks hesta-
maður, og það er James einnig.
Gable naut þess að vera utan dyra,
og sama er að segja um James.
Jafnvel smekkur þeirra gagnvart
kvenfólki er líkur. Gable líkaði best
við lágvaxnar blondinur, og James
r einmitt kvæntur einni af þeirri
i :erð. Sú heitir Jane.
*
...likist furðumikið hinum maka-
lausa kvennabósa — Giovanni
Casanova!