Vikan - 23.12.1976, Síða 12
Eins og að skroppa
Öhætt er að segja, að viss
frægðarljómi leiki um sjónvarps-
þulina og ekki er laust við,
að þessar vel snyrtu konur veki
umtal og bæði öfund og aðdáun,
þegar þær tala til þjóðarinnar
af skjánum. En allt eru
þetta hinar elskulegustu stúlkur
og orðnar fastir heimilis-
vinir víða. Vikan ræðir við þá
yngstu í starfinu, Birnu Hrólfsdóttur.
Segja má, að það sé orðin föst
hefð, að Vikan tali við nýbakaða
sjónvarpsþuli. Því átti Birna
Hrólfsdóttir sér engrar undankomu
auðið, þegar Vikan kom að máli við
hana og minnti hana á. að hefð væri
hefð, og hvort við ættum ekki bara
að skella okkur í þetta. Reyndar
höfðum við siðan i vor átt inni
viðtal við Birnu, en hún óskaði eftir
því að fá að eldast dálítið í starf-
inu. áður en Vikan færi að rekja úr
henni garnirnar.
Óhætt er að segja, að viss frægð-
arljómi sé yfir þularstarfinu og ekki
laust við, að þessar vel snyrtu og
vel greiddu konur veki bæði aðdáun
öfund og umtal, þegar þær ávarpa
land og þjóð af skjánum. Fjöl-
breyttur klæðnaður þeirra hefur
jafnvel orðið tilefni blaðaskrifa, og
eflaust eru þeir til, sem halda, að
þær liggi i freyðibaði og verji
miklum hluta dagsins i að snyrta
sig og fegra og fara í gegnum
fataskápinn til að taka sig sem best
út, þegar þær koma á skjáinn.
En flestar fara þær úr sínum
húsmóður- og móðurhlutverkum í
gervi sjónvarpsþulsins, líkt og leik-
konan, sem fer til vinnu sinnar í
leikhúsinu. Munurinn er aðeins sá,
að þegar sjónvarpsþulur fer til
vinnu, birtist hann inni i stofu á
flestum heimilum landsins.
Þegar við vorum búin að hreiðra
um okkur í hlýlegri stofunni hjá
Birnu og fjölskyldu hennar, eigin-
manninum Einari Sveinssyni og
börnum þeirra tveim, Ástu Sigríði
5 ára og Hrólfi 2 ára, hófum við
samtalið á hefðbundinn hátt með
Okkar fataskápar eru éreiðanlega
hvorki stærri né fyllri heldur en
gerist og gengur.
Blaðam: — Og hvernig var svo
fyrsta kvöldið í sjónvarpinu?
Birna: — Eftirminnilegt í alla
staði, ég held ég gleymi því ekki,
meðan ég lifi. Ég var dauðhrædd og
hafði legið andvaka í tvær nætur.
En mér létti dálítið, þegar ég kom
niður eftir, þvi samstarfsfólkið var
boðið og búið til að létta mér þraut-
ina og stappa í mig stálinu. Síðan
þegar veðurfræðingurinn birtist,
langaði mig mest til að hlaupa út,
þvi nú var stundin að renna upp, og
því var að duga eða drepast. En
þegar ég var byrjuð, var eins og
einhver ró færðist yfir mig, og þetta
gekk ágætlega. Hins vegar kom
bakslagið á eftir, og þá byrjuðu
hnén líka að skjálfa. Síðan hef ég
alltaf reynt að varpa þvi frá mér, að
ég sé að birtast á flestum heimilum
landsins og ímynda mér, að ég sé í
mesta lagi að tala við manninn
minn, börnin og samstarfsfólkið.
Blaðam: — Finnst þér fólk ekki
vera frjálslegra núna, þegar það
VIÐTAL VIÐ BIRNU HRÖLFS-
DÖTTUR SJÖNVARPSÞUL
því að ég bað Birnu að gömlum
íslenskum sið að gera grein fyrir
sjálfri sér.
Birna: — Ég er 28 ára gömul,
fædd og uppalin í Reykjavík,
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík en síðan settist ég í
Kennaraskólann. Það var síðasta
árið sem stúdentar gátu lokið kenn-
araprófi á einu ári, svo segja má, að
ég sé hraðsoðinn kennari. Meðan ég
var í 3kóla hafði ég byrjað sem
„sumarfugl” við flugfreyjustörf hjá
Loftleiðum og hélt þvi áfram að
fljúga eftir að ég lauk námi. Síðan
gifti ég mig, eignaðist dóttur okkar,
byrjaði að kenna við Breiðholts-
skólann og var við kennslu, þegar
ég sótti um starfið hjá sjónvarp-
inu. Viltu fá alla þá sögu?
Blaðam: —• Já endilega, mér
skilst, að þetta sé eitt eftirsótt-
asta starf, sem auglýst er, og færri
komistaðen vilja.
Birna— — Nú, ég sá starfið
auglýst i einu dagblaðanna og hafði
áhuga, en sagði engum frá því, var
svona bara að melta þetta með
sjálfri mér, Daginn sem umsókn-
arfresturinn rann út kom systir min
í heimsókn, og ég laumaði þvf út úr
mér, að ég hefði verið að hugsa
eitthvað um þetta. Það skipti
engum togum, hún dreif mig upp í
sjónvarp, eins og ég stóð, og ég
fyllti út umsóknina 10 mínútum
fyrir fimm.
— Síðar voru umsækjendur kall-
aðir í prufu og látnir lesa íslenskan
texta með samansafni af öllum þeim
erlendu orðum, sem mögulega er
hægt að troða saman í einn texta.
Þegar ég frétti um allan þann
fjölda, sem sótt hafði um, gaf ég
þetta alveg frá mér, en þegar hringt
var til mín og mér tilkynnt, að ég
hefði fengið starfið, gat ég ekki
tekið við því. Við vorum á förum
til Bretlands, þar sem maðurinn
minn ætlaði að vinna í eitt ár.
Þegar við síðan komum heim að ári,
hafði ég samband við sjónvarpið,
og þá stóð þannig á, að Gísli Baldur
þulur var að hætta, og ég hoppaði
inn í hans starf.
12 VIKAN 52. TSL.