Vikan - 23.12.1976, Qupperneq 38
mundi mér aldrei takast, svo ég
reyndi bara að sœtta mig við
örlögin um leið og ég settist í
stólinn og horfði ósmeykur framan í
stúlkuna (vona ég). Hún nálgaðist
mig á hægri hlið með hnifinn. Hélt
sýnilega, að ég væri hægri maður,
svo ég flýtti mér að segja: ,,Ég
hefi nú verið að hugsa málið betur
og mér sýnist sem svo, að vinstri
hliðin sé...” en ég varð of seinn.
Hún hafði gripið krampakenndu
taki um hægra eyrað — og byrjaði
neðan á þvi — ég fann...ekkert!, því
hún hætti við að taka af mér eyrað.
I þess stað skellti hún bómullar-
hnoðra á það, rétti mér fullt glas af
einhverju, sem leit jafnsakleysis-
lega út og vodkablanda og sagði
mér að drekka nú af hjartans lyst
allt til botns. Öneitanlega hresstist
ég við svona hjartnæmar móttökur,
og þó þetta væri nú fyrir hádegi,
ákvað ég samt að breyta út af
reglunni og þambaði mjöðinn sem
óðast. Þegar ég hafði lokið úr
glasinu, fann ég bragðið, og það var
dí sætt. ,,Hvað er nú þetta?” spurði
ég varfærnislega. ,,Þrúgusykur”,
mælti hún spekingslega og leit á
armbandsúrið sitt. ,,Nú ferð þú
fram á biðstofu og bíður þar rólegur
i klukkutíma og kemur svo hingað
aftur. Þá höldum við áfram.”
En á meðan þrúgusykurinn var
að renna af mér, ákvað ég að ná tali
af yfirlækninum Nikulási Sigfús-
syni til að fá hjá honum áreiðan-
legar upplýsingar um hvað væri
eiginlega á seyði og hvort ég mundi
sleppa lifandi úr þessu öllu saman.
— Rannsóknin hérna beinist
fyrst og fremst að hjarta- og æða-
sjúkdómum og að finna einkenni
um þá sagði Nikulás. Sömuleiðis að
leita eftir öðrum skyldum sjúk-
dómum, sem eru að einhverju leyti
tengdir hjarta- og æðasjúkdómum
og geta haft áhrif á tiðni þeirra.
Sömuleiðis athugum við ýmis atriði
svo sem lifnaðarhætti o.fl., sem
gætu e.t.v. haft einhverja þýðingu
i þessu sambandi eða haft áhrif á
slíka sjúkdóma. Svo má segja, að
um leið fari fram almenn heilsu-
farsskoðun. Að vísu eru ýmis líffæri
sem ekki er litið á, svo sem melt-
ingarkerfi eða taugakerfi, þótt vel
geti komið í ljós einkenni um
sjúkdóma frá þeim líffærum. I þeim
tilgangi eru t.d. þær spurningar
bornar fram, sem þú fékkst hérna
þegar þú komst. Við höfum ný-
lega bætt þeim inn á listann til að fá
meiri yfirsýn. Við gerum að vísu
nokkrur athuganir aðrar, sem eru
fljótlegar og tiltölulega ódýrar, svo
sem athuganir á gláku, en hún er
algeng hér á landi. Það munu vera
um 2% af körlum hér ó landi,
komnir yfir fertugt, sem eru með
gláku...
— Er gláka algengari hjá körlum
en konum?
— Já, það er hún..og þetta er
sjúkdómur, sem er alveg einkenna-
laus i upphafi, þannig að hann
finnst þó ekki nema með rannsókn.
En þá er hægt að stöðva sjúkdóm-
inn með tiltölulega einföldum að-
gerðum. Gláku er að vísu ekki hægt
að lækna, en með lyfjum eða öðrum
aðgerðum er hægt að stöðva hana á
því stigi, sem hún er. Sykurþols-
prófun er hér einnig framkvæmd,
en með henni er hægt að finna
sykursýki fyrr en sjúklingurinn
gerir sér grein fyrir einkennunum.
Þannig er hægt að ná til þessara
Sjúklinga fyrr en ella, sem einnig
hjálpar til við að gera sjúkdóminn
viðráðanlegri, en sykursýki er í dag
ólæknanleg, eins og þér er kannski
kunnugt um.
— Ég varð var við að tekin voru
nokkur blóðsýni, hvaða sjúkdóma
getið þið fundið með því?
— Það eru framkvæmdar einar 10
prófanir á öllum blóðsýnum, og með
þeim fáum við vitneskju um ýmis-
legt, svo sem fitumagn í blóðinu
eða kólesterólinnihald þess, tvö
lifrarpróf eru tekin, þvagsýra er
mæld, og þvagefni (kreatínin) blóð-
sökk o.fl....
— Þú minntist á mælingu í þvag-
efni. Fer sú mæling fram á blóð-
sýnum?
— Þú átt vafalaust við rannsókn
á starfsemi nýranna. Já, eitt blóð-
sýnið veitir okkur upplýsingar um
það, en þar að auki framkvæmum
við rannsókn á þvagi fólks. Sú
rannsókn veitir okkur frekari upp-
!ysingar um starfsemi nýrnanna og
beinist ef til vill fyrst og fremst að
orsökum fyrir of háum blóðþrýst-
ingi. Orsakir hans er yfirleitt erfitt
að finna, — en ef slík orsök finnst,
þá er hennar oftast að leita hjá nýr-
unum.
— Semsagt, aðaláherslan er lögð
á hjarta- æða- og lungnasjúkdóma,
en auk þess er leitað að gláku,
sykursýki og nýmasjúkdómum á
byrjunarstigi og aukinni fitu í blóði,
allskonar blóðsjúkdómum, liða- og
taugasjúkdómum. Ég vil þó benda
á, að því miður höfum við ekki
möguleika til að rannsaka öll líffæri
til hlítar, eins og maga og þarma.
Ef við finnum ekkert athugavert,
merkir það, að við höfum ekki
fundið merki um neinn sérstakan
sjúkdóm.
— Og hver eru síðan lok ykkar
rannsóknar, Nikulás?
— Að lokinni fyrstu rannsókn
kemur sjúklingurinn svo til okkar
aftur, en þá fer fram frekari rann-
sókn á þeim líffærum, sem okkur
finnst nauðsynlegt vegna fyrstu
rannsóknar. Að því loknu ræðir
læknir við sjúklinginn og skýrir
lauslega frá niðurstöðum okkar.
Ef allt hefur reynst í lagi, þá
em allir í góðu skapi þann daginn,
en ef einhverju hefur reynst
ábótavant, er honum ráðlagt að
leita frekari rannsókna eða
læknis, eftir því sem við teljum
heppilegast. Sjúkdómaskrá fyrir
sjúklinginn ásamt niðurstöðum
okkar er síðan send viðkomandi
heimilislækni, sem siðan ákveður
frekari meðferð. Okkar hlutverki er
þar með lokið. En ef við verðum
varir við einkenni, sem krefjast
skjótra aðgerða eða frekari skjótra
rannsókna, þá tilkynnum við sjúkl-
ingi slíkt og gemm okkar til að
hann fái tilsvarandi meðhöndlun
sem fyrst.
— Það kom fram í sjónvarps-
viðtali við ykkur fyrir nokkm, að
tiðni á of háum blóðþrýstingi væri
rnikil hér í landi. Viltu ræða það
eitthvað frekar?
- Jó. Við vomm þar með aðvar-
anir til fólks um að fylgjast mjög
vel með blóðþrýstingi hjá sér. Það
er einkar auðvelt, tekur svo til
engan tíma og er algjörlega sárs-
aukalaust. En við - og raunar flestir
aðrir læknar - höfum tekið eftir því,
að þessi sjúkdómur þ.e. hár blóð-
þrýstingur er mjög algengur hér á
landi. Við höfum af þessu vissar
áhyggjur, því þótt sjúkdómurinn sé
sjálfur einkennalitill í byrjun þó er
hann oftast undanfari - eða beinlínis
valdur að - ýmsum hættulegum
hjartasjúkdómum. Of hár blóð-
þrýstingur er oft valdur að ótíma-
bæmm dauða sjúklings. Slikt
óstand er þvi sárgrætilegra, þegar
maður veit, að of hóan blóþrýsting
er svo til ávallt mjög auðvelt að
lækna með lyfjagjöfum, og hafa á
undanförnum ámm komið á mark-
aðinn mörg ný lyf þessu til staðfest-
ingar.
- Vilt þú nefna mér einhverjar
tölur, sem sýna tíðni þessa sjúk-
dóms?
38 VIKAN 52. TBL.