Vikan - 10.03.1977, Side 9
— Ég vildi losna algjörlega viö
foreldravaldið — nú og svo
neita þau að þvo af mér.
Fljótur, afgreiðslustúlkan er að
koma með nýja merkimiða til
þess að hækka verðið. Tefðu
fyrir hennil
★ ★ ★
Skinny Ennis, grindhoraður
hljómsveitarstjóri í Hollywood
komst að raun um, að verkafólks-
eklan var svo alvarleg, að hann gat
ekki fengið neinn garðyrkjumann t
vinnu. En hvað um það, garðinn
hans I Hollywood varð að stinga
upp, svo Skinny klæddist stuttbux-
um einum fata og lagði það erfiði á
sinn horaða skrokk að pæla með
skóflu.
Tveir ferðamenn áttu leið fram-
hjá, og öðrum varð að orði:
„Drottinn minn, vinnufólksskort-
urinn er ennþá meiri en ég hélt.
Sjáðu, þeir eru farnir að láta líkin
grafa sjálf sínar grafir."
Er fyrsta jólakortið þegar komið
til okkar eða er þetta síðbúið
kort frá síðustu jólum?
í NÆSTU VIKU
Tugir íslendinga, sem hafa átt við áfengisvandamál að stríða, hafa leitað aðstoðar á
Freeport Hospital í New York í Bandaríkjunum. Vikan fékk þrjá menn, Hilmar
Helgason, HrafnPálssonog Tómas Agnar Tómasson til að segja frá dvöl sinni vestra
og hvernig þeir losnuði^úr prísund Bakkusar. Að okkar mati er hér um óvenjulega
fróðlegt og opinskátt viðtal að ræða, sem við vonum að komi mörgum, sem eiga við
áfengisvandamál að stríða, að einhverju gagni. Það er álit þeirra þremenninga að
áfengið sé ekki eini bölvaldurinn — almenningur og læknar verði einnig að varast alla
ofnotkun róandi lyfja. — Semsagt í næstu Viku verður viðtal sem allir verða að lesa.
VIKAN IJtgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart.
Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðslaogdreifingí Síðumúla 12. Simar 35320 —
35323. Pósthólf 533. Verð i lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða
kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar: Nóvember, febrúar,
maí. águst.
10. TBL.VIKAN 9