Vikan - 10.03.1977, Síða 13
Náttfatapartí
Fyrir nokkrum vikum var haldið
náttfatapartí á dansstaðnum Óðali,
og mun það hafa verið hið fyrsta
sinnar tegundar þar. Allir áttu að
koma þangað á náttfötum eða
náttkjólum.
Það var óvenjulegt þriðjudags-
kvöld. Við fórum með kunningjum
Halli, Laddi og Gísli Rúnar skemmtu
þetta kvöld.
okkar og litum sprenghlægilega út í
náttfötum með hatta og i kúreka-
stígvélum. Það er óneitanlega
skrítið að klæða sig úr til þess að
fara á ball, i stað þess að klæða sig
upp á, eins og sagt er.
Við komum á staðinn um tiuleytið,
og ýmsir gáfu okkur hornauga á
leiðinni niður Laugaveginn. Ég átti
jafnvel von á því, að lögreglan tæki
okkur föst fyrir ósiðsamlegan
klæðnað á almannafæri.
Tveir dyraverðir tóku brosandi á
móti okkur, og voru þeir klæddir á
svipaðan hátt og við. Inngangurinn
var troðfullur af fólki, og allir voru
ámóta klæddir, eða réttara sagt
óklæddir.
Þetta var mjög skemmtUegt
kvöld, og allir skemmtu sér
prýðilega. Það var bara dálítið kalt
um nóttina, þegar menn þurftu að
leita að leigubilum og skulfu þá í
náttfötunum sínum með bros á vör.
JimSmart
!
Tveir vingjarnlegir dyraverðir
Klukkan er 12, rétti timinn tU þess
að segja draugasögur.
Hver skemmtir hverjum?
Sumir verða aldrei fullorðnir.
Tveir „uppáfærðir”
10. TBL. VIKAN 13