Vikan - 10.03.1977, Qupperneq 14
7
Roskið og ráðsett fó!kf sem rokkaði
og tvistaði fyrir tveimur áratugum
eftir lögum eins og ffLet's twist
againf" eða dansaði vangadans við
tóna ffB!ueberry Hillf" hrökk upp af
værum velferðarblundi á síðastliðnu
haustif þegar Stefán og Lúdó héldu
aftur innreið s/na I óskalagaþættina.
Og unga kyns/óðin tók þeim Hka
fagnand/:f og nú h/usta ungir sem
gamlir á þá félaga syngja
rr Ólsen-Ólsen" og ffBláberjalaut"
og hvað þau nú heita ÖH þessi /ög.
Vikunni þótti tilhlýðilegt að rifja upp
gamlar endurminningar með
Stefánj sem hefur skotist svo
g/æsi/ega aftur upp á
vinsæ/dahimininn.
Ja, það er engu líkara en að
fólk haldi, að ég heiti Ólsen frekar
en nokkurn tíma Stefán, enda
hefur lagið Ólsen, Ólsen orðið
einna vinsælast, sagði Stefán
Jónsson söngvari í hljómsveitinni
Lúdó, þegar hann var spurður,
hvaða augum hann liti þær geysi-
vinsældir, sem plata þeirra félaga
hefur fengið.
Stefán er 34 ára gamall og hefur
sungið með hljómsveitum frá því
hann var „aðeins 15 ára patti í
verknáminu," eins og hann segir
sjálfur. Hann er fæddur og
uppalinn í Reykjavík og býr í
Breiðholti ásamt konu sinni,
Oddrúnu Gunnarsdóttur, sem er
frá Selfossi, og tveimur börnum
þeirra. Þar náðum við tali af
Stefáni og báðum hann að segja
frá einu og öðru í sambandi við
Lúdó og plötuna þeirra, sem kom
út fyrr í vetur og hefur nú selst í
meira en 7 þúsund eintökum og
hljómar enn án afláts í óskalaga-
þáttum útvarpsins.
Innan við tvítugt stofnaði
Stefán ásamt öðrum hljómsveitina
— Fyrst var ég svo feiminn, að ég
féllst ekki á aö syngja, fyrr en búið
var að slökkva öll Ijósin i salnum.
— Það var alltaf geysimikið fjör I
Storkklúbbnum.
Plútó (seinna Lúdó), og léku þeir
félagar til að byrja með í Vetrar-
garðinum, þá í Storkklúbbnum
(gamla Glaumbæ) og loks í
Þórskaffi, en þá hét hljómsveitin
ekki lengur Plútó, heldur Lúdó.
Lúdófélagar komu aftur saman
fyrir tveimur árum og byrjuðu að
leika í átthagasalnum á Hótel
Sögu. Þá rifjuðu þeir upp gömlu
góðu lögin, sem strax féllu í góðan
jarðveg. Svo léku þeir þessi sömu
lög inn á plötu, og útkoman varð
alveg sérlega góð, eða nokkurs
konar „great comeback," ef
einhverjir skyldu skilja það betur,
enda hefur hún selst meira en
nokkurn þeirra hafði grunað.
SVAVARI GESTS AÐ KENNA
— Hvernig stóð á því, að þið
lékuð inn á plötu núna?
14 VIKAN 10. TBL.
K, * *