Vikan


Vikan - 10.03.1977, Síða 40

Vikan - 10.03.1977, Síða 40
konur tœkju sjálfstæðar á- kvarðanir. „Fyrirgefðu mér,” flýtti ég mér að segja. „Eg hefði ekki átt að koma með þessa athugasemd.” Hann reis á fætur og hneigði sig þvermóðskulega. „Af því að ég veit, að þú tekur lát föður þíns mjög nærri þér, þá ætla ég að fyrirgefa þér. En nú verð ég að fara. Ef þú ert ákveðin í að vera hér um kyrrt, þá er það á móti mínum vilja og algjörlega á þina eigin ábyrgð. En ef þú skyldir skipta um skoðun. láttu mig þá endilega vita og ég skal gera það, sem ég get fyrir þig/’ Eftir andartaks þögn kom hann aftur að fjárhagsstöðu minni. „Ef þú þarft á peningum að halda,” sagði hann, „get ég látið þig fá smáupphæð núna.” „Nei, þakka þér fyrir,” sagði ég. „Ég er ekki svo aðkreppt.” Þetta var ekki alveg sannleikanum sam- kvæmt, enda hafði það komið illa við pyngju mina að þurfa að kaupa farmiða frá London. „Gott og vel, en annaðhvort verður þú að yfirgefa Gozo fljótlega eða búa þig undir að dvelja hér um ófyrirsjáanlegan tima. Veðrið fer versnandi, stormar eru í aðsigi og kannski verður þú innlyksa hér.” Ég fór ásamt hr. Callus að dyrum hótelsins og út í sólskmið. Þrótt fyrir hitann skalf ég. Mér gast ekki að þeirri hugmynd að verða strandaglópur hér á þessari eyju. Ég var að því komin að biðja hann um að bíða á meðan ég pakkaði ofan i töskurnar mínar. En svo leið þessi skrekkur hjá. Ég rétti fram höndina og þakkaði honum innilega fyrir, en kvaddi hann síðan afsakandi um leið og hann steig upp í stóran bíl, sem hann hafði lagt i skugga nokkurra runna. Vesalings hr. Callus! Hann hafði viljað mér vel, en ég hafði ekki gert annað en að móðga hann. Þegar ég horfði á hann aka í burtu hafði ég það á tiifinningunni, að ég ætti einum vininum færra. Kyrrseta dagsins hafði gert mig fremur eirðarlausa og ég fór þess vegna í bikinibaðföt og skundaði út að sundlauginni. Á leiðinni þangað sá ég Randal koma heim. Hann ók framhjá mér og veifaði til mín, en fór síðan í gegnum bogagöng, er lágu að bakhlið hótelsins. Ég var forvitin að vita hvar hann hefði verið og með hverjum. Loftið var mollulegt, en aðeins Olivia de Havilland leikurí3ju „Airportmyndinni,, Nú er þriðja,, Airport" kvik- myndin í uppsiglingu, og á sú að heita ,,Airport 1977." Fyrirfram er fu/lyrt að hún verði ekki síður spennandi en hinar tvær. Söguþráðurinn er sá, að Boeing 747 hverfur í svonefnd- um Bermuda þríhyrning, en ái þeim slóðum hverfa grunsam- lega mörg skip og flugvélar. Með vélinrii hverfa flugstjórinn, sem er leikinn af Jack Lemmon, og kona, sem leikin er áf Olivia de Havilland. Kona þessi er þrí- skilin og hörð af sér í eftirlætis- iðju sinni pókerspili. Munið þið eftir stjörnunni Oli- viu de Havilland? Hún stendur nú á sextugu, en kom fyrst fram í myndinni „Miðsumarsnætur- draumur" árið 1934. Síðan hefur hún leikið í einum sextíu myndum og spannað yfir vítt svið — leikið unglingsstúlku, kynbombu, rómantíska konu og geðbilaðan sjúkling [ hinni þekktu mynd „Ormagryfjunni." Olivia de Havilland fæddist í Tokyo, en faðir hannar var þar starfandi lögfræðingur. Þegar hún var tveggja ára fluttist fjölskyldan til Bandaríkjanna. Olivia og systir hennar, sem einnig varð fræg leikkona, Joan Fontaineað nafni, ólust upp eins og börn betri borgara, fengu góöa menntun og stunduðu um tíma nám í klausturskóla. Olivia / dag, enn vinsæl og veí metin /eikkona. Þegar Olivia var orðin 18 ára hafði hún lokið blaðamennsku- námi við háskóla og var ákveðin í að gerast blaðamaður, en þá uppgötvaði kvikmyndaiðnaður» inn þessa ungu og fögru konu. O/ivia ung og heillandi Fyrir tuttug árum fluttist hún til Parísar og giftist frönskum blaðamanni, er starfaði hjá stórblaðinu Paris Match. Hjóna- bandið stóð í sjö ár, en Olivia hélt áfram að búa í París eftir skilnað- inn enda þótt hún léki í bandarísk- um kvikmyndum áfram. Hún hef- ursagt,aðþaðsémiklu þægilegra að búa í einu landi en leika í öðru, því með því móti njóti hún meira einkalífs, sem hún metur mikils. Í París er hún bara Madame Galente í augum húsvarðrins og póstþjónanna, en ekki fræg og duttlungafull kvikmyndastjarna. Olivia býr með dóttur sinni Gisele, sem er 18 ára, og hefur hún ánægju af að búa til mat handa dótturinni og vinum hennar, vel að merkja franskan mat. Þegar hún er spurð um franskar kvikmyndir svarar hún: Ég hef aldrei leikið í franskri mynd, og hef reyndar aldrei fengið boð um það. Kannski er það vegna þess, að þrátt fyrir tuttugu ára dvöl í Frakklandi tala ég enn frönsku með sterkum hreim. Vinir mínir segja að ég tali með júgóslavneskum hreim, hvernig svo sem á því stendur! farið að kólna, enda farið að nálgast kvöld. Um leið og ég stakk mér í laugina hætti ég að brjóta heilann um viðburði dagsins. Ég synti, dýfði mér, kom aftur upp á yfirborðið, dýfði mér aftur og synti, þangað til ég var orðin svo þreytt, að mér tókst rétt með naumindum að skríða upp á bakkann. I fyrsta skipti eftir að ég frétti um lót föður míns var ég glorsoltin. Þegar ég yfirgaf laugina tók ég eftir því, að tveir leigubilar komu og út úr þeim stigu nýjr gestir. Einn þeirra var maður í vel sniðnum, gróum fötum. Hann var þéttholda, en ekki feitur, og lipur í hreyfingum þrátt fyrir stærðina. Hár hans var grásprengt og hann var stuttklipptur, sem var eins gott, því að hárið virtist vaxa í allar áttir. Hann var að reykja sígarettu og farangur hans samanstóð af sjónauka, myndavél, sem hann slengdi yfir öxl sér og lítilli tösku, sem hann hélt á í hendinni. Af námi mínu í hótelrekstri hafði ég lært að reikna fólk út við fyrstu sýn. Þessi var áreiðanlega upp- stökkur. Hann var vanastur hinu ljúfa lífi, klæðskerasaumuð föt hans og handunnir skór bentu til þess. Ef honum væri ekki veitt næg þjónusta, myndi hann áreiðanlega láta til sín heyra. Mér til undrunar kom hann mjög vel fram við stúlkuna í móttökunni. Hann kvaðst heita Stark, tók við lyklinum að herbergi sínu og elti þjóninn að lyftunni ásamt fjórum öðrum nýjum gestum. Sökum þess hversu svöng ég var, flýtti ég mér að hafa fataskipti og var komin niður í matsalinn andar- taki áður en hr. Stark birtist með viskiglas í hendi. Vitaskuld vildi hann ekki það borð, sem honum var fyrst boðið. Hann benti á annað, sem stóð úti við glugga, en þjónninn leit fyrst í áttina til Randals, vildi fullvissa sig um, að þetta væri í lagi. Randal kinkaði kolli og þjónninn vísaði manninum til sætis, lagði matseðil fyrir • framan hann og beið eftir pöntuninni. Án þess að líta upp gaf hr^Stark honum merki um að fara, en skoðaði síðan matseðilinn nánar. Þegar ég var að borða kom vikapiltur og sagði, að það væri sími til mín. Ég fór fram í anddyrið og tók símann þar. Þetta reyndist þá vera Michael Brent og hann spurði mig, hvernig mér hefði gengið, sagðist vona, að ég hefði ekki ofreynt mig og bauðst til þess að fara með mér út að bóndabýlinu. „Kannski á morgun?” sagði hann. „Ég gæti tekið mér fri. Þú finnur það aldrei upp á eigin spýtur. Það er afskekkt og alls ekki staður þar sem þú gætir búið. Alexa, elskan min?” 40 VIKAN 10. TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.