Vikan - 10.03.1977, Qupperneq 44
Buxur
með nýjum svip
Konur í buxum! Já, svo sannarlega ganga nútímakonur í
buxum. Það má nærri því segja, að þær hafi naumast komið
í kjól undanfarin ár. Og eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir
tískuhönnuða til að snúa hugum kvenna meira til kjóla, hafa
þeir söðlað um og skapað nýja buxnatísku, enn fjölbreyttari
en áður, tísku, sem allar konur geta tileinkað sér, hvernig
sem þær eru í vextinum. Hér sjáum við nokkur dæmi.
Fallhlífarbuxur
hafa þær verið kallað þessar, og
þeirra yfirgnæfandi kostur er, að
næstum því hver sem er getur
klæðst slíkum buxum. Eina skil-
yrðið er, að viðkomandi sé að
minnsta kosti í meðallagi að hæð.
Konur, sem gjarna safna á sig
svolitlum keppum um mjaðmir,
fagna þessu sniði, sem hylja slíka
galla fullkomlega. Að vísu er rétt
að slá varnagla: Sú alltof feita má
ekki taka þetta alltof bókstaflega
og telja fallhlífarbuxurnar leysa öll
sín vandamál. Hún lítur nefnilega
út eins og útþanin fallhlíf í þeim.
Og hennar eina ráð er að vera ekki
svona fjári eftirlát við sjálfa sig,
heldur fara í almennilegan matar-
kúr og bæta með því bæði
líkamlega og andlega líðan. Og
svo fer hún og fær sér fallhlífarr-
buxur. Sem sagt: Fallhlífarbux-
urnar leysa litlu vandamálin, sem
geta þó virst svo stór í augum
þeirrar, sem við á að etja,
vandamál konunnar með einum
of feit læri og svolitla keppi um
mjaðmir. Og þær klæða vel ungar
sem gamlar.
Venjuleg númer
að konur þurfi endilega að
klæðast vinnubuxum hversdags?
Reyndar hefur ekki verið neitt
geysilegt úrval af öðruvísi buxum
hingað til, en hér sjáum við þaö.
passa mér aldrei, segja margar
konur. Hér kemur eitthvað fyrir
þær. Þetta hefði nú þótt óhugs-
andi fyrir nokkrum mánuðum, en
nú er þetta hæstmóðins. Lengst til
vinstri sjáum við reglulegar sport-
buxur, sem raunar eru ekki full-
komnar, nema notuð séu kúreka-
stígvél og leðurbelti við. Einmitt
réttu buxurnar fyrir þær, sem
alltaf eru ,,á milli númera." í
miöjunni sjáum við nýja sniðið á
flauelsbuxunum, það má jafnvel
bara taka gamlar og taka þær
saman að neðan. Og lengst til
hægri — hamingjan góða, segir
kannski einhver, en tískuhönnuðir
ansa nú ekki slíkum upphrópun-
H