Vikan


Vikan - 26.05.1977, Side 3

Vikan - 26.05.1977, Side 3
,.Mann langar bara til þess að sparka boltanum œrlega einu sinni.. ..skara framúr." Stallone er fæddur i New York og var algjörlega óþekktur þar til fyrir nokkrum mánuðum, að „Rocky” færði honum frægðina, bæði sem leikara og rithöfundi. Hver er þessi dökkhærði, þétt- vaxni maður, sem líkist Rocky Marciano og getur leikið ástarsenur og hnefaleikasenur jöfnum hönd- um? Áður hefur Stallone leikið í myndinni „The Lords of Flat- bush,” og ásamt Jack Lemmon lék hann i myndinni „The Prisoner of Second Avenue.” Hlutverkin í þessum tveimur myndum voru eiginlega það eina, sem hann hafði gert á undan „Rocky.” Annað getur vart talist honum til hróss. Hann var lélegur nemandi og hætti i menntaskóla, fór á flakk í Evrópu, lék ó sviði í New York við fremur litinn orðstír og reyndi að fá kvikmyndahlutverk, en var rekinn, vegna þess að hann hafði vöðva og leit út eins og róni. Hann var, eins og hann sagði sjálfur: „Innilokaður í eintómri svartsýni.” Stallcne var tvivegis rekinn úr dyravarðar- stöðum við Translux og Baronet leikhúsin i Manhattan — í annað skiptið fyrir áflog við eigendurna og i hitt skiptið fyrir að selja aðgöngu- miða á ólöglegan hátt. Stallone var samt aldrei af baki dottinn. Rúmlega ári áður en þetta gerðist hafði hann farið í ferðalag til Evrópu „í leit að sjálfum mér, eins og flestir gerðu á siðari hluta sjöunda áratugsins. Eg sat á Spánarströndum meðal sandkrabba og þess háttar og reyndi að átta mig á því, hver ég væri. Ég náði í bakpokann minn, kveikti mér í hálfreyktri sigarettu og sagði: ,, Þetta er ég! og svo flaug ég heim.' ’ Þegar hann kom aftur til New York, segist hann hafa verið „smám saman að sökkva dýpra og dýpra í einskonar víti, þar sem leik- hæfileikarnir voru metnir eftir líkamsvexti — ég lék í hálfgerðum nektarsýningum, og ég hefði leikið franska kartöflu, ef þess hefði þurft. Einn morguninn vaknaði ég, möl- braut símann og hóf nýtt lif meðal penna og blýanta.” Stallone skrifaði átta handrit, áður en honum tókst að selja nokkurt verka sinna. Hið fyrsta var „Rocky.” Hann telur þetta allt byggt á hans eigin svartsýni, „sem hjálpaði mér i gegnum fyrstu hand- ritin. Þá leit ég í spegil og lagði nokkrar spurningar fyrir sjálfan mig: „Ertu að vinna? Nei. Seljast handritin þín? Nei. Áttu einhverja peninga í banka? Nei.” Þá endur- skoðaði ég allar fyrri hugmyndir mínar og byrjaði að nýju. Ég sá fyrir mér mann, sem smám saman vinnur á.” „Það er nógu margt-í-heiminum, sem endar á ræfilslegan hátt. Það má vel vera að ég lifi i draumaheimi. En „Rocky” var til úr þessum draumum. Þetta eru aðeins nokkrar augna- bliks myndir af manni, sem hefur notfært sér líf sitt til þess að skapa eitthvað. Stallone skrifaði „Rocky” á nokkrum vikum, en gaf sig allan að því, án þess að eltast við þessi venjulegu atriði, „eins og hinar sjálfsögðu nektarsenur eða eltinga- leik á bilum.” lurinn holdi klæddur 21. TBL.VIKAN 3

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.