Vikan


Vikan - 26.05.1977, Page 4

Vikan - 26.05.1977, Page 4
Sylvester Stallone og kona hans Sascha. Hann hækkar röddina, og augun tindra: „Kvikmyndir hafa misst sjónar á hinni einu réttu vinsælda- uppskrift, sem er: Fólk vill fá að vita eitthvað um sjálft sig.” „Allt er svo brjálæðislegt i dag, því að fólk vill bara eyða og eyða. Mann langar bara til þess að sparka boltanum ærlega einu sinni. Mig langar ekki til þess að fá Oscars- verðlaun eða verða nefndur í sambandi við þau. Ég vil bara skara framúr.” Viðbrögð gagnrýnenda gagnvart myndinni voru Stallone mjög að skapi, hann var auðsjáanlega ánægður með að hafa gert meira en að skara framúr i þetta skipti. Þótt hann sé nú orðinn forstjóri, er hann samt sem áður eins og utan af götunni. Þetta hjálpaði honum í „Rocky.” Hann brá ekkert af vana sinum, þótt hann væri að Ieika. Það sem bjargaði honum var kvik- myndin „The Lords of Flatbush,” en hún hafði jákvæð áhrif á framleiðendurna, Robert Chartoff og Irwin Winkler. United Artists fyrirtækið vildi samt ekki samþykkja, að Stallone léki í myndinni. Það bauð honum 250.000 dollara fyrir kvikmynda- réttinn. Annað fyrirtæki bauð honum 275.000 dollara fyrir hann. En Stallone, sem átti 106 dollara í banka, barnshafandi eiginkonu og leigði hjá manni, sem „hefði helst viljað sjá mig hlekkjaðan,” heimt- aði að fá að leika sjálfur. „Enginn getur skrifað fyrir mig einsogégsjálfur,” segirhann. „Ég vissi, hvað ég var að gera. Ég myr.di hata sjálfan mig nú, ef ég hefði selt handritið. Ég var fús til þess að leika fyrir ekkert, ef ég fengi tækifæri.” „Ég vildi fallegan skáldskap. Bardaginn i lokin varð að vera hafinn yfir allan sársauka. Ég æfði nákvæmlega hvert atriði og hverja hreyfingu í þessari fimmtán-lotu keppni.” Stallone og mótleikari hans Carl Weathers, fyrrverandi hnefaleikari, eyddu fjórum mánuðum hjá þjálf- aranum Jimmy Gambina, og unnu þrjár stundir á dag. „Ég sagði við sjálfan mig: Þetta verður að vera besta hnefaleikamynd allra tíma.” Á meðan á kvikmyndatökunni stóð, fingurbrotnaði Weathers og Stallone rifbrotnaði. Stallone, sem er ákafur hnefa- leikaaðdáandi, hafði aldrei fyrr komið nálægt sliku, að undanskildu einu skipti í Genf, þar sem hann reyndi að verja vinstúlku sína og réðst á hnefaleikara, sem ferðaðist um með hringleikahúsi. „Ég lét gæjann heyra það óþvegið og gaf honum utanundir. Hann }ét ekki sitt eftir liggja, náði mér og veitti mér ráðningu, sem ég gleymi aldrei.” Stallone er samþykkur þeim samanburði, sem gerður hefur verið á honum óg Marlon Brando — en aðeins likamlega. „Brando er meira hugsandi og lokaðri. Ég er það sem ég segi.” Fyrri reynsla Stallones í sam- bandi við leiklist er fremur bág- borin. í háskólanum í Miami var honum neitað um inngöngu í Ieik- listardeildina. „Ég komst að raun um, að sumir geta bjargað sér eftir fjögurra óra nám á framhaldsskóla, án þess þó að hafa nokkra hæfileika. í skólanum sá ég stjórn- endur oft veita vonlausum einstakl- ingum tækifæri, á meðan ég var látinn sjá um ljós og leikmuni. Það var hörmulegt — tveggja ára kúgun. Þess vegna hætti ég, áður en ég lauk prófi.” Talia Shire, sem leikur hina . ótrúlega feimnu afgreiðslustúlku, segir um hlutverk sitt, „Það besta, ■ sem ég hef fengið.” Talia var útnefnd til Oscarsverðlauna siðasta ór fyrir Connie Corleone í „The Godfather, Part II.” Hún lýsir Stallone á eftirfarandi hátt: „Stór- kostlegur í alla staði, ákaflega næmur, og það er merkilegt, að hann skuli vera rétt að byrja.” Nú vinnur Stallone að öðru handriti fyrir Universal Pictures, og fjallar það um fégráðugan nútíma- mann. Sú mynd á að heita „Líf- vörðurinn.” Stallone skrifar hratt og af ákafa. „Ef þú ætlar að skrifa, þá verðurðu að ráðast á efnið. Ég loka mig inni í herbergi eins og fanga.” Hann kallar „Rocky” einfaldlega „hinn ameríska draum. Ég vil ekki gera neitt lélegt. „Rocky” endar í hámarki. Ég vil, að fólk lifi jákvæðu lífi.” Ef dæma má eftir vinsældum myndarinnar, þar sem hún hefur verið sýnd, eru áhorfendur jákvæðir gagnvart myndinni. Raunar væri réttast að segja, að almenningur væri bæði jákvæður gagnvart myndinni og leikaranum — það er eins konar ást við fyrstu sýn. Er áfengi meðal? Ar Prófessor dr. med. Eric Jacob- sen uppgötvaði árið 1945 efnið ANTABUS með dr. pharm. Jens G. Hald. í Danmörku er Eric manna fróðastur um áfengi, og hann hefur skrifað skemmtilega og áhugaverða bók, sem heitir „Umgengni við áfengi." í henni segir hann meðal annars, að áfengi tilheyri „Hjálparsveit lækn- islyfjanna, og að áfengið fái menn oft til að sjá hlutina í skýrara Ijósi. Allir vita, að áfengi hefur áhrif á heilann. Hvernig þau áhrif, eru nákvæmlega veit enginn, en reynslan sýnir,' að í smáurr) skömmtum verkar áfengi hress- andi og kætir — hugurinn fer á flug. Stórir skammtar hafa niður- drepandi áhrif á líkama og sál. Þá er um að ræða ekta eitrun og verði hún mikil hefur hún dauða í för með sér. Yfirleitt lifa menn þaö ekki af að tæma heila brenni- vínsflösku viðstöðulaust. Það er upplagt að nota áfengi sem læknislyf við þreytu. Eitt eða tvö glös fá menn til að slaka á. En ef ekki er að gáð, er hætt við misnotkun. Hvar eru mörkin? Það er erfitt að segja, því að það er eiginlega ómögulegt að gefa algilt svar við því, hvað sé ofdrykkju- maður. Það er margt fólk, sem bragðar áfengi dag hvern, án þess að hægt sé að saka það um að vera ofdrykkjufólk. Maður, sem stundar sína vinnu og fjölskyldu, getur eftir minni skoðun ekki kallast ofdrykkjumaður, þó hann smakki vín daglega. Áfengi hefur önnur áhrif en þau sálrænu. T. d. verður maginn fyrir áhrifum, og meltingin. Það er ástæðan fyrir því að fá sér glas fyrir matinn, en hér skulum við þó muna, að það er herslumunur þarna yfir í nautnina af gæði vínsins, frekar en að menn séu að hugsa um meltinguna! En því er þó ekki að neita, að sopi fyrir mat getur verið ágætt ráð við lystar- leysi, sem oft verður vart hjá eldra fólki. 4VIKAN 21. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.