Vikan - 26.05.1977, Síða 9
— Hafið þér góðar bækur um
endurholdgun?
★ ★ ★
— Ég kenni sjónvarpinu um
þetta!
— Vitið þér hvað klukkan er,
maöur minn?
— Ég var búinn að segja þér að
fela hann, þangað til þau væru
búin að bjóða okkur inn!
I NÆSTU lflKU
BERGLIND OG BJÖRN
VIGNIR
Islenskir sjónvarpsáhorfendur kvarta gjama hátt og í
hljóði yfir því, sem þeim er boðið upp á, og
gagnrýnastir eru þeir á íslenskt efni, þó þeir svo í
leiðinni heimti sífellt meira af sliku. Á síðastliðnum
vetri brá svo við, að þátturinn ,,Úr einu í annað” hlaut
náð fyrir augum sjónvarpsáhorfenda. Berglindi
Ásgeirsdóttur og Bimi Vigni Sigurpálssyni tókst að
gera létta og skemmtilega, fjölbreytta og fróðlega
þætti, sem nutu mikilla vinsælda. Vikan spjallar við
Berglindi og Bjöm Vigni í næsta blaði.
FLEIRA EN KNATT-
SPYRNA Á AKRANESI
1 næsta blaði verður haldið áfram, sem frá var horfið að
segja frá heimsókn Vikunnar til Akraness. Þorvaldur
Þorvaldsson fræðslufulltrúi, sem í 27 ár hefur búið á
Akranesi, fræðir okkur um sögu staðarins, og eftir
þann lestur dylst engum, að bað er fleira en
knattspyrna á Akranesi. Þá verður litið inn á Bókasafn
Akraness, verksmiðjan Marmorex heimsótt, en hún er
eitt af blómlegum einkafyrirtækjum heimamanna, og
loks er spjallað við verslunareiganda á Akranesi.
JAHN OHLSSON -
EMIL í KATTHOLTI
Hver man ekki Emil í Kattholti? Hann hreif hjörtu
íslenskra barna, líkt og Lína Langsokkur gerði á sinum
tíma. Þættirnir um Emil í Kattholti hafa náð geysi-
vinsældum víða um heim, því að bæði börn og
fullorðnir hafa gaman af uppátækjum hans. Það var
Jahn Ohlson, sem lék þessa vinsælu persónu, og í næstu
Viku segjum við ögn af honum Jahn, sem nú er orðinn
14 ára og farinn að líta stelpurnar hýru auga!
PARÍSARPEYSA
Við höfum rækilega orðið þess vör, að lesendum
Vikunnar þykir fengur að prjónauppskriftum, og þeir
biðja sífellt um meira. Þegar þessa laglegu peysu rak á
fjörurnar, sáum við strax, að þarna var flík, sem bæði
er fljótlegt og skemmtilegt að vinna, og ekki spillir, að
samkvæmt upplýsingum frá París, eiga peysurnar
einmitt að vera í þessum stil í sumar. Ykkur er óhætt að
hugaað prjónunum, því uppskriftin birtist í næsta blaði.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristín Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Anna Kristine Magnúsdóttir, Guðmundur Karlsson, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur
Kristinsson. Ljósmyndari: Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar. afgreiðsla
og dreifing í Síðumúla 12. Símar 35320—35323. Pósthólf533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900
fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, eða kr. 7.370 fyrir 26 tölublöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram.
Gjalddagar: Nóvember, febrúar, maí, ágúst.
21. TBL.VIKAN 9