Vikan - 26.05.1977, Qupperneq 11
ARKITEKTANÁM
Ágaeti öndvegismaður, kæri
Póstur!
Mig hefur lengi langað til að
senda þérfáeinar Knur og geri þaö
hér með. Birting á bréfinu er
hreint alls ekki aðalatriöið, heldur
er það svarið. En ef svo vill til, að
þér finnist nauðsynlegra að svara
öörum bréfum, nú, þá veröur það
bara þannig. En ég ætla nú samt
aö gera tilraun og segja frá því,
sem mér liggur á hjarta. Ég hef
alveg yfirdrifinn áhuga á arkitekta-
námi, og þá langar mig að vita,
hvar er hægt að stunda það,
hvaða skilyröum það er bundið og
hvað námstlmi er langur og er
einhver hluti námsins erlendis?
Það væri alveg áreiðanlega
þakkarvert, ef þú gætir svarað
þessum spurningum. Ef þú gefur
þér tlma til að svara þeim, þá
mundiröu kannski gefa þér tíma til
að svara þessum, sem á eftir
koma, en það skal tekiö fram að
þær er alls ekki eins nauðsynlegar.
En hér koma þær: Hvað lestu úr
skriftinni? Hvaö heldurðu, að ég
sé gömul (svona eftir skriftinni að
dæma)? Að endingu óska ég þér
góös gengis I framtlðihni og vona,
aö þér líði vel. Vertu þá sæll að
sinni. _. , , ,,
Ein, sem hefur áhuga
á arkitektúr.
Undirbúningsmenntun fyrir
nám / arkitektúr er menntaskóla-
nám, en Islenskir arkitektar hafa
aö mestu numiö I Noröurlöndun-
um og / Þýskalandi, en einnig /
Bretlandi og jafnvel vlðar. Leitaöu
þér nánari upplýsinga hjá Arki-
tektafélagi islands, Grensásvegi
11, sími 86510. Skriftin ber með
sér, að þú sért mjög þolinmóð
manneskja, sem ekki lætur sér allt
fyrir brjósti brenna. Þú gætir verið
svona 18-19 ára, eða jafnvel eldri.
Þakka þér svo fyrir hlýjar kveðjur..
RÁÐNING Á KROSSGÁTUNUM
Kæri Pósturl
Það liggur við aö mig klígji
stundum við að lesa sum, eða
réttara sagt allflest, þeirra bréfa,
sem þú færð. Þaö er af sem áður
var, og fer ritfærni fslendinga
stööugt aftur, svo aö ég tali nú
ekki um hugmyndaflugið. Ég dáist
alveg aö, hvað þú endist til að
svara þessum bréfum. Þú hlýtur
að vera frekar taugasterk og þolin-
móð manneskja, svo ég segi nú
ekki annaö. En hvað um þaö, það
er best að koma sér að efninu. Ég
ætla ekki aö biöja þig aö ráða fram
úr ástamálum mínum, ætli ég
reyni það ekki sjálf, heldur langar
mig aö biöja þig að athuga, hvort
ekki væri hægt að birta ráðningar
krossgátanna, eins og var gert hér
áður fyrr. Og í leiðinni langar mig
að þakka ykkur fyrir allflest það
efni, sem birtist ( Vikunni. Mér
llkar mjög vel það fyrirkomulag,
sem í henni er.
Meö kærri kveöju,
Gunný
Já Gunný mínl Mikið lifandis
ósköp varð ég feginn að fá eitt
bréf, þar sem ekki er spurt: „ Hvað
lestu úr skriftinni, hvað heldurðu,
að ég sé gömul, hvernig eiga þetta
og þetta merki saman..." Póstur-
inn er nefnilega ekki alltaf svo
afskaplega taugasterkurl En
þakka þér nú samt fyrir álitið, það
;/• gott, aö einhver hefur trú á
nér! Mikið er gott hjá þér að ráða
fram úr ástamálunum sjá/f, það er
illtaf best þannig. Hvað varðar
beiöni þina um ráðningu á kross-
gátunum höfum við orðið vör við,
að fleiri en þú eru óánægðir með
að fá ekki lausnirnar, eins og áður
fyrr, og nú er í bígerð að taka þetta
til vandlegrar íhugunar, ogmunað
öllum líkindum, og vonandi, verða
úr því sem fyrst, að þið fáið
lausnirnar birtar.
SVAR TIL FLÓKU:
Farðu einfaldlega til piltsins og
segðu honum, að þig langi til að
endurnýja kunningskapinn, ef þú
ert viss um, að hann elskar þig.
Það, sem þú segir um dekrið á
sjálfri þér, kemur vel heim og
saman við áhugamissinn hjá þér.
Ég stórefast nú samt um, aö
pilturinn elski þig svona mikið,
fyrst hann hefur ekki haft
samband við þig. Bogmanns-
stelpu og meyjarstrák er ekki spáð
góðu sambandi, bogmannstelpan
er alltof eigingjörn fyrir meyjar-
' strákinn, og /Ifsviðhorf þeirra eru
gjöróllk. Þú gærir verið svona 17
ára, og skriftin er ágæt, en
uppsetning bréfsins var svolitið
Pennavinir
fíósa Ko/brún Ástva/dsdóttir,
Brekkugötu 38, Þingeyri, óskar
eftir að skrifast á við stelpur á
aldrinum 12-13 ára.
Erla Björg Ástvaldsdóttir,
Brekkugötu 38, Þingeyri, óskar
eftir að skrifast á við stelpur og
stráka 12-13 ára.
0“V
vél
r""1----------
... reyndar sú ódýrasta
á markaðinum í dag
CANDY 132 er 5 kg
þvottavél með 11 sjálfvirk
þvottakerfi.
Vinduhraði 400 snúningar
á mínútu.
Verðið aðeins
kr. 106.000,00
Afborgunarskilmálar
Sími 26788
■—
21. TBL. VIKAN 11