Vikan - 26.05.1977, Qupperneq 16
— Málaralistin hefur átt sterk ítök í mér, siðan ég var krakki, og ég ætlaði að verða málari, þegar ég yrði stór.
þegar Öðmenn hættu, mér fannst
það mjög slæmt þá, en ég sá það
síðar, að sá kafli var orðinn nógu
langur, hafði veitt mér þann
þroska, sem hægt var á því sviði.
Annars er það ekki rétt, að ég vinni
nú einn í tónlistinni. Tónlist er
einmitt mjög krefjandi á sviði
manniegra samskipta, hvort sem
um er að ræða starf i hljómsveit eða
við plötuútgáfu. Hljómsveitarstarf-
ið minnir að vissu leyti á hjóna-
band, og þar er góður andi og
samstarfsvilji undirstöðuatriði.
Plötuútgáfan er ennþá meira pen-
ingaspursmál. Þar skiptir engu
smámáli að ná saman góðum
mönnum, og þar má ekkert út af
bera, því hver timi i stúdíói er svo
dýr. Maður getur lent í því að hafa
fengið mann á eitthvert hljóðfærið
og vinna svo með honum í marga
klukkutima, án þess að fá út það,
sem ætlunin var. Og þá stendur
maður frammi fyrir þeirri spurn-
ingu, hvort eigi að sætta sig við
þessa útkomu eða byrja upp á nýtt
með annan mann. Það er alveg
ótrúlegt erfiði á bak við eina plötu.
Eftir slíka törn er ágætt að snúa sér
að málaralistinni, sem er gjörólíkt
viðfangsefni. Þar er ekkert á miili
þín og viðfangsefnisins annað en
pensillinn.
ÞAÐ VAR VEÐMÁL
— Hvemig stóð á því, að þú fórst
að mála?
— Það var nú eiginlega veðmál.
Vinkona mín var eitt sinn að gorta
af því að eiga málverk eftir Kjarval
oni skúffu hjá sér. Mér þótti það
heldur ótrúlegt og lofaði að mála
handa henni mynd, ef hún reyndist
hafa sagt satt. Ég tapaði, og hún
hætti ekki fyrr en ég hafði staðið við
minn hluta veðmálsins. Síðan hef ég
ekki getað hætt. Annars hefur
málaralistin átt sterk ítök í mér frá
því ég var krakki — og ég ætlaði að
verða málari, þegar ég yrði stór.
— Og tónlistin og málaralistin
fara bara vel saman?
— Ágætlega. Stundum geri ég
allt í senn, mála mynd og sem lag
og texta um leið.
— Mig langaði einmitt til að vita,
hvernig þú berð þig að við að semja.
Kemur eitthvað yfir þig? Eða
geturðu sagt við sjáifan þig: Nú
ætla ég að semja? Og semurðu lag
við ljóð eða ljóð við lag?
— Það er nú allt til í þessu. En
yfirleitt fæðast lagið og hugmynd
að texta í einu. Og oftast kemur
þetta bara yfir mig. Ég leik það þá
og syng inn á band og geng svo á
lagerinn eftir þörfum.
AÐALLEGA SAMSKIPTI
KYNJANNA
— Hvað viltu segja með lögum
þínum og ljóðum? Hver er til dæmis
meiningin með „Mannlífi”?
16 VIKAN 21. TBL.