Vikan


Vikan - 26.05.1977, Page 19

Vikan - 26.05.1977, Page 19
Síðan sagði hún: ,,Nick, þeir sungu eitthvað. Það var magister eitt- hvað.” „Magister tenebrarum,” tautaði hann. ,,Myrkrahöfðinginn.” Þau hrukku við, er eitthvert þrusk heyrðist. Frá eikarstiganum í horninu barst hljóð af hægu og varfærnu fótataki. Fætur komu í ljós. „0, Launceton,” sagði Nick kurteislega. „Fannstu það sem þú varst að leita að?” Caroline þekkti aftur prestinn með þykku gleraugun, sem hafði verið kvöldið áður í veitingahúsinu, þar sem hún og Tony borðuðu. Hann starði nærsýnum augunum fram fyrir sig með höfuðið teygt fram eins og á skjaldböku. Fyrir ofan stífan, hvítan kragann var háls hans grár og hrukkóttur, líkastur gömlu leðri. Dökk fötin hans voru glansandi af elli. „Svo sannarlega, svo sannar- lega,” tautaði hann. „Wycliffe forðum daga.... mjög áhugaverð. En það er ekkert verð á henni.” Nick tók við bókinni og strauk fingrunum varfærnislega eftir káp- unni. „Tuttugu og fimm pund, er ég hræddur um,” sagði hann. „Þetta er gömul bók og í vandaðri útgáfu.” „Tuttugu og fimm pund. Ham- ingjan sanna. Jæja, ég verð að bera harm minn í hljóði.” Það var þurrlegt bros á grannleitu hrukk- óttu andlitinu. „Það var sagt á fimmtándu öld, að prentlistin væri verk kölska, og ég er hreint ekki svo viss um, að það hafi verið svo fráleitt hjá þeim....” Hann sneri sér að Caroline. „Hvað haldið þér, ha? Ég geri ráð fyrir, að ungar stúlkur nú til dags trúi á kölska.?” „Þær trúa á verk hans,” sagði Caroline þurrlega. Hást, ískrandi hljóð heyrðist úr þessum skjaldbökuhálsi. Hún átt- aði sig á, að hann var að hlæja. , ,Ég er feginn að heyra það,” tautaði gamli maðurinn. Hann gaut augun- um á bókina, sem hún hélt á. „Jahá, bók Campions um Haidans- bury dómkirkjuna.” Hann teygði úr hálsinum til þess að skoða teikn- inguna i opinni bókinni. Það glampaði á þykk gleraugun hans. „Okkar frægu iðrunartákn. Getur verið, að þér séuð ungfrú Hay? Jú, ég hef á réttu að standa. Djákninn minntist á yður. Ég vona, að yður liki veran hér." Þegar Launceton hafði borgað bókina og var farinn, sagðist Nick ætla að loka búðinni í klukkutíma, þar sem hann þyrfti að sinna nokkrum erindum úti i bæ og fylgja henni til baka. Hugsunin um iðrunartáknin var í hugum þeirra beggja, er þau gengu þögul hlið við hlið. Loks sagði Nick: „Þetta er fáránlegt, Caro. Ég veit, að það er ekki Iíkt þér, en þú hlýtur að hafa ímyndað þér þetta allt.” „Já, það held ég lika.” „Heyrðu annars, hefurðu séð málverkið i kapellu Guillaume ábóta?” „Já, mér fannst það dálítið óhugnanlegt. Ég geri ráð fyrir, að það hafi verið Launceton, sem fann það. Hann er sérfróður um sögur miðalda kirkna, og honum tókst að sannfæra yfirstjórn kirkjunnar um, að líklegt væri, að málverk væri falið undir veggklæðningunni.” Veistu, að hann býr í næsta húsi við djáknann?” spurði Nick. „Nú, er það. Er hann giftur?” 'HANN hló. „Launceton giftur. En sú hugmynd. Annars gengu þær sögur reyndar, að Launceton hefði haft áhuga á konu djáknans, en djákninn orðið hlutskarpari. En þetta var auðvitað fyrir óralöngu.” „En rómantískt.” „Ég efast nú um, að þetta sé satt. Ég get ekki imyndað mér, að Launceton.hafi nokkurn tíma haft áhuga á öðru en bókum. Hann er bókasafnsfræðingur dómkirkjunn- ar.” „Já, það er staður, sem ég ætti auðvitað að heimsækja.” „Bókasafnið er ekki opið al- menningi, enda þótt ég þvkist þess fullviss, að þér yrði veitt undan- þága. Þar er að finna mörg gömul og dýrmæt handrit. Launceton ætlar sér að skrifa doktorsritgerð um þau. Hann er afar snjall maður. Hann lenti í einhverju vafasömu einhvern tima, annars hefði hann verið orðinn biskup, eða að minnsta kosti frægur vísindamaður.” Þau voru komin að klaustur- garðinum. „Jæja,” sagði Nick, „þú kemur í kvöld, Caro, er það ekki?" Allt i einu var hún treg til að yfirgefa hann. Hún fann til undarlegrar óþægindatilfinningar. jafnvel hræðslu. Bæði vegna sín og Nicks og einnig af öðrum orsökum. Ef henni skjátlaðist ekki. þá var eitthvað mjög undarlegt á seyði í Haidansbury, þessari kyrrlátu, gömlu borg. Caroline vandaði val sitt á klæðnaði fyrir kvöldverðinn með Nick og Laurel. Hún valdi mjög látlausan kjól, en einkar fallegan i sniðinu, dökkbláan á lit, sem undir- strikaði bláan lit augna hennar og ljóst hörund hennar. Henni leið betur, ef hún leit vel út — og í kvöld þurfti hún á öllu sínu sjálfstrausti að halda. Laurel var klók — djúpstæður ótti hennar við að missa það örvggi, sem Nick veitti henni, gerði það að verkum, að hún var einkar nösk við að finna veikar hliðar Caroline og lagin við að særa hana. Æskúár 21. TBL.VIKAN 19

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.