Vikan


Vikan - 26.05.1977, Qupperneq 20

Vikan - 26.05.1977, Qupperneq 20
Vikan fer í búðir Verslunin HORNIÐ Vestur- götu 50 Akranesi selur þessa fallegu gluggatjaldakappa. Þessi er saumaður af Sjöfn Jónsdóttur, og hann er úr velúrefni með gylltu kögri. Þessi kappi er ca. 160 cm á lengd og kostar um kr. 10.000. HORNIÐ hefur á boðstólum úrval af gluggatjaldaefnum og efnum i tískufatnað. Ennfremur fást þar handklæði o.fl. o.fl. HORNIÐ saumar gluggatjöld eftir máli. Þeesar fallegu Borgundar hólma - klukkur fáat i Úra- og skart- gripaverslun Helga Júliuasonar Suðurgötu 65. Akraneði. Neðri Idukkan kostar kr. 210.000 en hin kr. 295.000. Þær eru báður úr eik með „Ráðhúslagi.” é Hjá versluninni ÓSK Suður- götu 83 Akranesi, er hægt að fá sniðið eftir pöntunum. ÓSK er með 6 snið á pilsum en einnig er hægt að fá aðrar flíkur sniðnar þar. Tilsniðnar barnabuxur kosta frá kr. 1.417 stærðir 2-14. Tilsniðin pils kosta frá 1.500 kr. Efni fást i úrvaii og hægt er að fá fjölbreytt isaumað mynstur á vasa. Skyrtan á myndinni kostar kr. 2.950. VALBÆR Kirkjubraut 6 Akranesi selur þessar dönsku bómullarmussur á kr. 7.440. Þær eru hvítar með rauðum eða bláum leggingum. Peysan sem er undir fæst í 15 litum á 1.960. kr. Verslunin GLER OG MÁLN- ING Skólabraut 26 Akranesi selur þeaai fallegu baðmottusett og fást þau í mðrgum litum. Settin kosta frá kr. 3.100. GLER OG MÁLNING selur einnig gólfteppi í miklu úrvali, málningarvörur og hreinlætis- tæki. KIRKJUMUNIR Kirkjustræti 10 er sérhæfð verslun með íslenska kirkjulega listmuni o.fl. Á myndinni er útsaumaður handofinn hökull og lampi, sem getur einnig verið skirnarfontur. Caroline höfðu gert hana tilfinn- inganæma; ást hennar gert hana viðkvæma. Hve oft hafði hún ekki yfirgefið Nick og Laurel að kveldi og fundist hún niðurlægð og lítil- lækkuð, jafnvel efins um, að Nick elskaði hana í raun og veru? Þannig yrði það ekki í kvöld. Caroline starði á fölt andlit sitt í speglinum, og til þess að brynja sig gegn því, sem verða vildi, setti hún upp einbeittnislegan svip. í kvöld léti hún Laurel hvorki særa sig né reita sig til reiði. Hún skyldi taka hæðnisyrði hennar og dylgjur sem kænskubrögð óttasleginnar og ó- stöðuglyndrar konu. Hún ætlaði að vera vingjarnleg, en ákveðin. Hún lagði jakkann yfir axlirnar og fór niður. Á sama augnabliki kom Tony út úr setustofunni. ,,Þú ert stórkostleg. Ertu að fara út?” „Mér er boðið út að borða,” svaraði hún og brosti við aðdáun- inni í augnaráði hans. „Með hverjum?” spurði hann, án þess að skammast sín nokkuð fyrir forvitnina. Hún hló. „Varstu beðinn að spyrja að því?” Hún hafði enga löngun til að segja honum það. Slúðurberar staðarins mundu nógu fljótt komast að sambandi hennar við Nick. Það var komið rökkur í klaustur- garðinum. Luktirnar fró Viktoríu- tímanum glóðu dauflega. Græna sviðið i miðjum klausturgarðinum var hulið myrkri. Þegar hún fór fram hjá dómkirkj- unni, heyrði hún lágt hljóð, sem kom hjarta hennar til að slá örar. Hún leit upp á alvörugefin andlit útskorinna dýrðlinganna yfir vest- urdyrunum, en þaðan virtist hljóðið hafa komið. Eitthvað lítið og dökkt flögraði upp í loftið. Leðurblaka. Henni létti, og hún brosti með sjálfri sér að því, hve hræðslugjörn hún var. Samt var svo komið, að í hvert skipti sem hún fór yfir klausturgarðinn, fylgdi henni hugsunin um það sem hún sá, — eða taldi sig hafa séð. Vörðurinn hleypti henni út um bakhliðið, og hún gekk eftir götunum i átt að bókabúðinni. Nick kom niður og hleypti henni inn um hliðardyr, en frá þeim lá stigi beint upp í íbúðina fyrir ofan. Ilann var greinilega mjög þurr á manninn. Uppi á stigapallinum tók hann jakkann hennar og hengdi hann inn í skáp. ,,Þú lítur Ijómandi vel út,” sagði hann stuttur í spuna. „Larnbið, sem leiða á til slátrunar?" Hún hafði aldrei fyrr vitað hann svona önugan. ,,Ég er tilbúin,” sagði hún álíka stuttlega. ,,Já, það er einmitt það, sem vekur furðu mina. Ég get bara alls ekki skilið, hvernig þú nennir að standa í þessu aftur. Hún fann, að hún roðnaði af reiði. Hún þekkti hann ekki í þessum ham. Henni tókst að segja rólega: „Geturðu það ekki?” Nick sendi henni bros, sem jaðraði við að vera grimmdarlegt. „Slík fórn krefst að minnsta kosti umbunar.” Hann tók um herðar hennar traustu taki og hallaði sér yfir hana. Henni fannst þetta vera eins og árás, og hún braust um í faðmi hans, þangað til hann ýtti henni upp að veggnum og hélt henni þannig, að henni var ekki undan- komu auðið. Andlit hans nálgaðist hana. Um leið fóru um hana straumar gleymdra ástríðna, og hún gleymdi öllu öðru. „Ó, þú heimska kona,” hvíslaði Nick í eyra hennar. „Hvers vegna gengurðu aftur í sömu gildruna?” Um leið opnuðust dymar, og stúlka kíkti út. Hún flissaði. „Ö, þama emð þið þá.” gVIPUR Nicks harðnaði. Hann tók undir handlegginn á Caro- line og ýtti henni harkalega áfram. „Caroline, þú hefur hitt Suzanne, er það ekki? Suzanne, þetta er Caroline Hay, ég geri ráð fyrir, að þú munir eftir henni.” Suzanne rétti fram máttleysis- lega hendi. Caroline mundi eftir Suzanne sem mjög ungum, ómót- uðum unglingi. En Suzanne hafði aldeilis fullorðnast. Ljóst hár henn- ar var hrokkið og greinilega úfið að yfirlögðu róði. Augu hennar vom skásett og hóðsleg, græn að lit. Hún leit út eins og villt vatnadís. Hún var i gallabuxum og þunnri hvítri peysu, sem sýndi vel litil vellöguð brjóst hennar og grannt mittið. „Svo þú ert Caroline Hay,” sagði hún og starði forvitnislega á Caroline. „Ég var alveg búin að gleyma þér,” sagði hún hreinskiln- islega. „Það væri synd að segja, að þú værir lik því, sem ég ímyndaði mér.” „Suzanne.” Rödd Nicks var aðvarandi. Stúlkan yppti öxlum. „O, slapp- aðu af. Þú getur þrasað seinna.” Hún hefur greinilega séð það sem gerðist, hugsaði Caroline. Hún gerði ráð fyrir, að það væri ekki margt, sem færi fram hjá Suzanne. Laurel var i eldhúsinu. Caroline brá dálítið, er hún stóð aftur augliti til auglitis við þetta skarpa tauga- veiklaða andlit, munninn sem var stöðugt á hreyfingu, flöktandi augun og rytjulegt hárið. „Hallo Laurel.” „Caroline. En hvað það er langt siðan við sáumst. Hvernig hefurðu það?” Hún renndi augunum yfir bláa kjólinn. „Þér hefur greinilega 20 VIKAN 21. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.