Vikan


Vikan - 26.05.1977, Page 40

Vikan - 26.05.1977, Page 40
STJÖRMSRV llniiurinn 21.niars 20.a »ril Þú verður fyrir stöð- ugri áreitni af hálfu sömu persónunnar, en þú getur sjálfum þér um kennt, því þú talar aldrei hreint út um hlutina. Hætta er á misklíð á heimil- inu þessa dagana. Rr lihinn 22. júni JJ.júli Þú færð vitneskju um mál, sem kemur illa við þig. Persóna, sem þú hélst, að væri þér velviljuð, sýnir nú á sér aðra hlið og veldur það þér mjög miklum vonbrigðum fyrst um sinn. VauliA 21.apríl 2l.niai Árásar- og þrætu- girni þin gæti orðið þér að fótakefli. Finndu þér eitthvað annað til afþreyingar en að knýja fram uppgjör hjá einum eða öðrum. Þú gætir orðið fyrir miklu happi á laugardag. I.joniit 24. júli 24. Þú kemur á framfæri gamalli ósk, og nú virðist koma skriður á málið. Hik er sama og tap, svo þú skalt ljúka við að ganga frá þínum málum sem allra fyrst. Þér eru allir vegir færir. 1'\ihur;irnir 22. ni;ii 2l. júni Það verður litið úr frítíma þinum um þessar mundir vegna áhrifa kunningja þinna. Þú ræðst í stórframkvæmdir, að þínu mati, þótt aðrir sjái ekkert merkilegt við það. Fyrir tilstuðlan ætt- ingja þinna verður mikil breyting á hög- um þínum. Þú ert ánægður með tilver- una og skemmtir þér mikið með félögum þínum. Happatala er 3 og litur rauður. Fátt er svo með öllu illt, að ekki boði nokkuð gott, og nú færðu að reyna það. Þú ferð í ferðalag um ókunnugar slóðir og hittir fyrir fólk, sem á eftir að hafa mikil áhrif á framtíð þína. Slcingciiin 22.dcs. 20. jan. Ef til vill ætlarðu þér of mikið í einu, en einhvemveginn tekst þér að sigla öllu í heila höfn. Flest virðist leika við þig. Vertu fremur varkár í fjármálum. S|iorú(lrcRinn 24.okl. iM.nót. Líkur eru á, að þér takist ekki að anna öllu, sem fyrir þig er lagt, en gleymdu ekki, að þú þarft að taka þinn hvíldar- tíma, og of mikil vinna verður þér síst til góðs. \alnshcrinn 2l. jnn. I‘>.fchi. Þú færð fréttir, sem dreifa hugsunum þínum og vekja hjá þér nýjar vonir. Þú sérð i gegnum gildru, sem þér er ætluð. Vikan verður þér ánægjuleg, sérstak- lega heima fyrir. Hogniiirturinn 24.nót. 21.dcs. Tefldu ekki á tvær hættur og hugsaðu málin vandlega, áður en þú tekur ákvarð- anir. Þú kynnist manneskju, sem þú veist ekki alveg, hvernig þú átt að taka við fyrstu kynni. Fiskarnir 20.fchr. 20.m<trs Þú færð heimsókn, sem kemur mjög flatt upp á þig. Leggðu þig allan fram við að gera út um mál, sem kom upp fyrir nokkru, svo það spilli ekki fyrir þér í framtíð- inni. veislu, þurfti ég að sópa upp brotin glös fyrir 100 pund næsta morgun. En það hafði ekkert verið eyðilagt, ekkert brotið og engin brunagöt eftir sigarettur. Ég þurfti ekki einu sinni að syksuga gólfteppið! Enginn dó brennivínsdauða, enginn varð veikur, enginn reyndi við maka annars, og það voru engin slagsmál. Ég skammaðist ; min næsta morgun; maðurinn, sem ég hataði svo mikið, hafði opinberað minn innri mann. Frú Ellaby kom í veisluna, og það var þá, sem hún mælti með skólanum fyrir börriin. Elsti sonur okkar Steve, neitaði að fara, vegna þess að honum líkaði svo vel í litla þorpsskólanum, en skólastjórinn sagðist skyldi taka Timmy og Sue, og Howard átti að fara ári síðar. Við fórum með börnin i Kendals, stærstu verslunina i Manchester. í sannleika sagt var það milljón punda virði að sjá börnin sín klædd í litlu bláu skólabúningana. Ég var svo hreykin. Það var besta, langbesta stundin, sem vinnings- peningarnir færðu mér. Sue og Timmy voru svo yndisleg í jökkunum sínum með skólamerk- inu á, að ég gat varla hugsað mér að sjá af þeim. Við ókum þeim til skólans, og þau grétu bæði, því þau vildu ekki fara frá okkur. Timmy sat á grasinu og neitaði að hreyfa sig. ,,Ég fer ekki,” sagði hann snöktandi. Ég sneri bakinu að þeim, svo þau sæu ekki, hvað ég gréti, og Keith gekk með þeim inn í skólann. Þetta var hræðilegt. Ég grét alla leiðina heim. Ég hef ekki neitt út á skólastjóra skólans að setja, en starfsfólkið fyrirleit okkur og lét það bitna á börnunum. Ef það þurfti að vinna eitthvert óþrifaverk, voru Nichol- son börnin valin til þess, og ef eitthvað glataðist, var þeim kennt um það. Fram að þessu hafði ég verndað börnin mín frá hatrinu og gremj- unni, sem hafði bitnað á okkur Keith, en í heimavistarskólanum urðu þau að standa á eigin fótum. Timmy kom eitt sinn heim í frí og sagðist hafa lent í slagsmálum, því eitt barnanna hafði sagt, að það væri það sama að vinna í getraunum og að stela og að Keith ætti að skila peningunum aftur. Sue sagði líka við pabba sinn: ,,Þú ert heppinn, því þú þurftir ekki að vinna fyrir peningunum, eins og hinir pabbarnir — þér voru bara. gefnir þeir!” Keith hló. Hann tók þetta ekki alvarlega, en ég sagði börnunum, að ég væri orðin þreytt á þessum háðsyrðum frá hinum börnunum í skólanum. Það voru foreldrar hinna barn- anna, sem stóðu á bak við þetta. Þeir, sem voru mjög ríkir, létu sér standa á sama; það voru hinir, sem þurftu að berjast við að koma börnunum sínum á þennan skóla. En þrátt fyrir allt þetta höfðu börnin gagn af að vera í skólanum. Þau lærðu að tala fallegt mál, fóru í útreiðartúra, stunduðu ballett og iþróttir. Þau hafa nú reynslu af tvenns konar lífsmáta. Þau falla inn í ríkulegt umhverfi og geta verið þau sjálf um leið. Þau hræðast ekkert. RÉTTURINN TALDI OKKUR NÆGILEGA EFNUÐ TIL AÐ ÆTTLEIÐA HANN. Með því að senda börnin min í skóla til að læra að haga sér prúðmannlega og fallega, lærði ég sjálf mikið af þeim. Mér fannst ég skelfing heimsk, þegar mér varð á að tala óvandaða mállýsku í návist þeirra. Það var skrýtið að láta þau kenna sér vandað mál. Ég beið alltaf fríanna full af ást og bliðu. Frú Ellaby hafði rétt fyrir sér. Við misstum aldrei tengslin. Árið 1965 ættleiddi ég Stuart, litla bróðurson minn. Geoff bróðir minn og kona hans skildu, og hann hataði konu sína svo mikið, að hann þoldi ekki einu sinni að hafa barnið nálægt sér. Fyrst fór Stuart til fósturforeldra. Ég vildi ekki, að neinn annar hefði hann — hann var sonur bróður míns —- svo ég tók hann frá fósturforeldrum sínum. Það var hræðilegt að þurfa að gera þetta, en rétturinn áleit þetta það besta, þar sem við vorum efnuð og gátum veitt honum allt, sem hann þarfnaðist. Mér þótti afar vænt um þetta litla barn. Keith vildi, að við eignuðumst annað barn, og læknirinn minn sagði mér, að ættleiðing Stuarts gæti auðveldað mér að verða barnshafandi. Þetta var slæmur tími fyrir okkur Keith. Hann drakk mjög mikið. Lögreglan varð oft að fjarlægja bilinn hans af götunum, því hann vissi ekki, hvert hann var að aka! Ég var mikið ein, því Keith var aldrei heima. Hann borðaði nokkrar sneiðar af reyktri síld og drakk nokkur mjólkurglös í morgunverð, og síðan hélt hann áfram að drekka. Þetta var einkennilegt. Eg átti alla þessa peninga, allt sem mig langaði til að eiga, en samt sem áður hafði ég tapað svo miklu. Ég hafði misst börnin, sem voru á heimavistarskóla, og ég hafði misst Keith, sem ég elskaði enn. Ég skildi ástæðuna, sem lá að baki drykkjuskapar hans. Hann skammaðist sín fyrir að hafa yfirgefið námuna. Að vissu leyti hafði hann verið hreykinn af því að 40VIKAN 21. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.