Vikan - 26.05.1977, Qupperneq 41
vera námuverkamaður, vinna karl-
mannsverk og allt það.
Hinar erfiðu, hættulegu aðstæð-
ur niðri i námunni tengja mennina,
sem þar vinna, traustum böndum.
En fólk snýr baki við þeim, sem
vinna fjárfúlgur, og Keith missti
alla félaga sína. Hann reyndi að
kaupa þá aftur, reyndi að kaupa
vináttu þeirra. En það var engin
raunveruleg vinátta lengur. Og það
hafði í rauninni mjög mikil áhrif á
hann. Hann komst aldrei yfir það
og þessvegna sneri hann sér að
drykkjunni.
Ég var mjög óhamingjusöm og
hrædd, vegna þess að við fengum
enn símhringingar og ógnandi bréf
frá nafnlausu fólki, sem eitraði lif
okkar. Ég var yfirleitt alein í stóra
húsinu okkar á nóttunni, og mér
leið illa.
Keith sagði við mig: ,,Ég elska
þig Goldie, ég elska þig. Ég myndi
aldrei gera þér neitt rangt til.” En i
rúminu gerðist ekkert. Við stöðuga
drykkju dvínar áhugi á kynlífi, og
það mikilvægasta í hjónabandi er
gott kynlíf. Ástalíf okkar var í
rauninni ekkert.
Ég grét yfirleitt mikið, þegar
Keith var ekki heima, en ég talaði
aldrei um það við hann. Ég hugsaði
með mér, að ef hann gerði sér ekki
grein fyrir þessu sjálfur, yrði það
hvort sem væri til einskis. Maður
verður að koma vitinu fyrir sig
sjálfur, eitthvað brestur innvortis;
og loks kom að því hjá Keith.
Það gerðist eftir að við höfðum
verið i Wales hjá Frank frænda
hans, sem var hættur að vinna og
helgaði sig garðyrkju og ól upp
kanarífugla. Hann var góður,
gamall maður, og við urðum
stórhrifin, þegar hann spurði, hvort
hann mætti dvelja hjá okkur.
Frank kom með tvo kanarífugla
með sér, og Keith varð mjög
áhugasamur og langaði sjálfan að
fara að ala upp slíka fugla. Hann
keypti líka gróðurhús og fór að
rækta tómata. Hann hætti að fara
út, og hann hætti að drekka.
ÉG GET EKKI ÚTSKÝRT ÞAÐ
- ÉG VISSI, AÐ EITTHVAÐ
VAR AÐ.
Þetta var yndislegt timabil, og
við endurheimtum ást okkar og hið
nána samband, sem ríkt hafði á
nnilli okkar áður. Við gengum um
garðinn hönd í hönd, og hann
ryksugaði fyrir mig og hitaði te
handa mér. Kynlíf okkar var
feglulega gott, því við vorum að
bæta upp kuldann og aðskilnaðinn
síðustu mánuði.
Við áttum saman sex yndislega
mánuði, sem reyndust vera þeir
síðustu í lífi Keiths. Hann fórst í
bílslysi í Jagúarbílnum sínum á
heimleið frá Wetherby, þar sem
hann hafði verið að kaupa þrjú
folöld handa börnunum.
Ég hafði farið til Sheffield að
sækja móður Keiths, því afi hans
var að deyja á sjúkrahúsi þar. Keith
vildi, að ég færi til Wetherby með
sér, og ég varð að gera upp á milli
hans og móður hans. Að lokum
sagði hann: ,,Það er sennilega
betra, að þú farir og sækir mömmu.
Frank frændi fer með mér i staðinn.
Við hittumst, þegar þú kemur
heim.”
Ég ók til sjúkrahússins i Sheffield
á nýja bláa Chevroletinum mínum.
Ég get ekki útskýrt það, en á
heimleiðinni leið mér eitthvað
einkennilega. Veðrið var mjög
slæmt, það var hífandi rok, svo það
þurfti að aka gætilega. Ég var fyrir
aftan Minibíl, sem jók skyndilega
ferðina. Ég hélt, að hann væri að
fara fram úr mótorhjóli, svo ég jók
einnig hraðann, en það var þá ekki
hjól, eins og ég hafði haldið, heldur
bíll með einu ljósi. Ég ók aftan á
Minibílinn.
Við fórum á lögreglustöðina í
Barnsley til að gefa skýrslu um
áreksturinn. Ég botnaði ekki neitt í
neinu. Lögreglumennirnir voru svo
almennilegir við mig, þeir spurðu
ekkert um áreksturinn, aðeins hvort
allt væri í lagi með mig. Þeir gáfu
mér tebolla og sögðu mér siðan að
aka rakleiðis heim og kveikja ekki á
útvarpinu á leiðinni.
Aðaláhyggjuefni mitt var, hvað
Keith mundi segja um skemmdina á
bilnum — framhliðin var öll klesst
inn, og glerbrot voru inni í bílnum.
KLUBBUR
M l
vium
F3ÖR. 3
FKnm?
#i
5?
Viltu fjör í fríinu. Allt ungt fólk á þess kost
að gerast meðlimir í Klúbb 32, sem er ferða- og
skemmtiklúbbur ungs fólks. Starfar í samvinnu
við hliðstæðar stofnanir erlendis. Meðlimir fá af-
slátt í verslunum heima og erlendis, geta tekið
þátt í dansleikjum og hljómleikum fyrir meðlimi
á vetuma og fengið 10 þús. króna afslátt í sól-
arlandaferðum þar sem dvalið er á hótelum þar
sem eingöngu ungt fólk býr, eins og Hotel 33 á
Mallorca. Vinsælar íslenskar hljómsveitir eins og
Cabarett og Paradís skemmta
Brottfarardagar i 1, 2, 3 og 4 vikna ferðir.
Mallorca og Costa Brava alla sunnudaga
Costa del sol alla laugardaga.
Margar ferðir til Kanarieyja i vetur.
Aðeins fyrir þá sem vilja fjör í fríinu. Þér getið
gerst meðlimur með því að koma, hringja eða
skrifa Klúbb 32, c|o Ferðaskrifstofunni Sunnu
Lækjargötu 2, Reykjavík.
FERÐAKLUBBUR UNGA FÖLKSINS
21. TBL.VIKAN 41