Vikan - 26.05.1977, Page 43
udvig,, í Gamla bíói
Lúðvík II. (Helmut Berger) orðinn geðbilaður.
Helmut Berger I hlutverki Lúðvlks
II.
Lúðvlk, og þegar sjóðir ríkisins
voru á þrotum, lét Lúðvík hann
hafa gull og gersemar úr eigu
fjölskyldunnar. Nokkrum árum
síðar dó Wagner I Feneyjum.
Lúðvfk gat ekki komið aö jarðar-
förinni, en sendi þess í stað
kórónu sfna. Konungurinn var
óhuggandi: ,,Lfkami Wagners til-
heyrir mér. Enginn getur ráðstafað
honum gegn vilja mínum." En í
þetta skipti reyndist hann einskis
megnugur. Sorg konungsins var
Ifka einkennandi fyrir skapgerö
hans. i þrjá mánuöi voru píanóin í
höll hans f Bæjaralandi hulin
svörtum yfirbreiöslum.
Frá öllu þessu greinir f viökom-
andi mynd, en framleiðandi henn-
ar er Ugo Santalucia. Leikstjóri er
Luchino Visconti, en hann er
einnig höfundur handrits ásamt
Enrico Medioli. Með helstu hlut-
verk fara: Helmut Berger, sem
leikur Lúðvfk, Trevor Howard,
sem leikur Wagner, Romy
Schneider, sem leikur Eiísabetu
keisaraynju af Austurríki og
Silvana Mangano, sem leikur
Cosimu Von Bulow.
Ellsabet keisaraynja af Austurrlki
(Romy Schneider).
Lúðvlk II (Helmut Berger) og Richard Wagner (Trevor Howard).
Nýja bfó ætlar nú aftur að gleöja
Þá, sem hafa áhuga á rokkóperum
með því að sýna myndina ,,The
Rocky Horror Picture Show." Á
sfðasta ári sýndi Nýja bfó mynd,
sem hét „Phantom of Paradise,"
og þótti mörgum hún afbragös-
góð. Þessi rokkópera ætti ekki aö
vera síðri, þvf að hún hefur verið
sýnd á sviði við mjög góðar undir-
tektir. Stjórnandi myndarinnar er
Jim Sharman, en hann stjórnaöi
tveimur uppsetningum óperunnar
á sviði.
21. TBL. VIKAN 43