Vikan


Vikan - 26.05.1977, Page 45

Vikan - 26.05.1977, Page 45
':v:- Brunar eru mismunandi dramatískir, og þaö er ekki sama, hvaða hús eru aö brenna, því sum hús hafa sál, en önnur ekki. Það vakti óhug margra, er það fréttist, að Bernhöftstorfan væri að brenna. Jim Smart Ijósmyndari Vikunnar fór á stúfana, þegar ,,torfan" var að brenna og náði þessum skemmtilegu svipmyndum af slökkviliðsmönnum í starfi. Á myndinni lengst til vinstri er Ármann Pétursson aðstoðarvarðstjóri að munda kúbein — í miðið er Valur Sveinbjörnsson að bíða eftir að fá aftur vatn í slönguna, og til hægri eru þeir MagnúsTh. Magnússon og Einar Gústafsson að bera saman ráð sín. Það vakti athygli okkar, að slökkviliðs- mennirnir notuðu ekki reykgrímur, en okkur var sagt, að þeir gerðu það, þegar ástæða þætti til. Þetta var semsagt í augum slökkviliðsmanna ósköp „þægilegur" bruni. EINU S/NN/ varaða/bíóhetjan Lemmy Caution ogleikarinn Eddie Constantine sá eini, sem varveruiegatöff. Síðankomunýir töffararog Eddie ernú að verða flestumgleymdur. Hann hefurþó gerttiiraun tilaðkomastánýí fjöimiðia, meðþvíaðskrifa endurminningabók, enþvimiður faerhúnlélega dóma; þykirfullaf k/issjum og smekkle ysum. 1. Ferlega eru sunnudagarnir alltaf fúlir hérna... 2. Hæ stelpur! Við erum búnir að pæla lengi í að tala við ykkur. Eruð þið til í að koma í bíó? 3. Æ, ég nenni þessu ekki. Það er ekkert fútt í þessum píum! 4. Þetta ,,fíla" ég! Rænum henni í bíó!! 5. Vertu ekki með þessa stæla maður. Mér finnst þú ekkert töff. 6. Úff! Best að koma sér heim. Það gerist hvort sem er aldrei neitt hér... 21. TBL. VIKAN 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.