Vikan


Vikan - 09.06.1977, Síða 7

Vikan - 09.06.1977, Síða 7
sg Hér erum við með aðra gerð af pokum, sem þið verðið áreiðan- lega hrifin af. Hér er meira í pokann borið og seinlegra að sauma hann, en hann er líka smekklegri að okkar mati. Hér sjáið þið púðana, semliggjaí framsætisbökunum, og virðast þeir vera þægilegir við bakið. Hér sjáið þið pokana frá hlið. i sumum bílum er svo gott pláss undir sætunum, að þið getið auðve/dlega komið þar fyrir tösku með nauðsynlegustu föt- um til skiptanna á börnin. H » H rðalögin Nú er sumarið framundan með öllum sínum ferðalögum, stórum og smáum. Hér höfum við uppskriftir af tveimur gerðum af bílpokum, sem eru til mikils hægðarauka á ferðalögum. Þegar við ætlum í ökuferð eða lengri ferðalög, erum við oft í vandræðum með að koma öllu fyrir, sem við þörfnumst. Sérstaklega fylgir börnum mikið af alls konar smádóti. Venjulegast stingum við öllu ofan í poka eða smátösku í upphafi ferðar, og svo er þetta oftast komið út um allan bíl í ferðalok. Ef við saumum okkur svona vasapoka til að hengja yfir framsætin í bílnum, fáum við pláss fyrir leikföng, blöð, pappírsþurrkur og jafnvel nestisbita. Börnin geta haldið röð og reglu hjá sér í aftursætinu, og við sleppum við að leita sífellt fyrir þau að dótinu, sem annars er í reiðileysi í aftursætinu. POKI 2 Efni: Veljið gallabuxnaefni eða annað álíka þéttofið efni. í pokann þarf tvö stykki, sem eru 39 X 74 sm, 1 stk. 24 X 45 sm + 1 stk. 24 X 60 sm í böndin og 1 stk. 22 X 35 sm í vasann. Auk þess þarf 6 X 34 sm glært plast og net (innkaupanet). Svo eru hér notaðar tvær þvottaklemmur, lyklahringur með segulnagla, 2 stk. „velcroband", 10 sm hvort, tvö 35 sm löng sköft, Kósar og 35 X 35 sm frauðplast í púðann. Klippið vasann í sundur og fellið plastið inn í, málin sjást á teikningunni. Saumið vasann á annað stykkið, sem er 39 X 74 sm. Faldið hliðarnar á stykkinu og brjótið saman með réttuna inn. Saumið stykkið saman að neðan, snúið réttunni út og saumið ca 4 1/2 sm breiðan opinn fald fyrir sköftin. Saumið svo hliðarnar saman á milli faldanna. Saumið velcroband efst á bakhliðina (undir opna faldinn) sitt hvorum megin, saumið netið á, lyklahringinn og klemmurn- ar. Saumið böndin föst eins og sýnt er á teikningunni. Stingið sköftunum í faldana. Hagleiksmanneskjur þurfa varla annað en líta á myndina til að sjá, hvernig hann er gerður. Þið þurfið um 2 m af gallabuxnaefni eða öðru stífu og sterku efni. Klippið 63 X 180 sm stórt stykki, annars er vissara að mæla sætið í bílnum ykkar. Faldið 1 1 /2 sm kringum allt stykkið og sting- ið með tveimur saumförum, eins og sést á myndinni. Klippið vasana í mismunandi stærðum og saumið þá fasta á þá hlið, sem snúa mun aftur í bílinn. Festið böndin í, leggið pokann yfir framsætis- bakið og hnýtið fast. 23. TBL.VIKAN7

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.