Vikan - 27.10.1977, Blaðsíða 2
Froskurinn Kermit asamt frk.
Svínku. sem er 300 ound oq miki/i mannþekkjari.
Prúðulei
Gamall, slitinn vetrarfrakki og tvær
tenniskúlur urðu til þess, að ungur
Bandaríkjamaður, Jim Henson að
nafni, fékk hugmyndina að frosknum
Kermit, sem nú er aðalstjarnan í
hinum vinsælu sjónvarpsþáttum um
Prúðuleikarana.
43. tbl. 39. árg. 27. okt. 1977
Verö kr. 400
VIÐTÖL:
14 Það er ekkert gaman að vera frægur á íslandi. Viðtal við Steinunni Bjarnadóttur.
GREINAR:
2 Prúðuleikaraa'ði.
4 Ungfrú heimur 1907.
22 Líkami til sölu.
46 Sonurinn er frelsistrygging lestarræningjans.
SÖGUR:
12 Veiðiferðin. Smásaga eftir Erlu Kristjánsdóttur.
18 Boðberar óttans. 2. hluti fram- haldssögu eftir Dorothy Simpson.
38 Nóttin eina. Smásaga eftir Joyce Towers.
44 I skugga ljónsins. Framhalds- saga eftir Isobel Lambot. Sögulok.
FASTIR ÞÆTTIR:
7 Poppfræðiritið: Supertramp.
9 í næstu Viku.
10 Póstur.
23 Heilabrot Vikunnar.
25 Myndasögublaðið.
35 Tækni fyrir alla.
36 Mest um fólk.
40 Stjörnuspá.
48 Draumar.
54 Eldhús: Ilmandi gerbakstur.
ÝMISLEGT:
41 Stjörnuspá ástarinnar.
50 Peysur handa báðum.
Sóttin hefur borist hingað til
lands. Hún á upptök sín í
Bandaríkjunum og Bretlandi, en
sjónvarpið hefur stuðlað að út-
breiðslu hennar víða. Það er þó
engin ástæða til að óttast, því
sóttin erekki svo hættuleg. Oftast
koma einkenni hennar í Ijós um
það bil einu sinni í viku, á
föstudagskvöldum. Fólk verður
eldrautt í framan af hlátri og
geiflar sig og glennir við imba-
kassann.
Þetta eru aðaleinkenni veik-
innar, og smitberarnir eru leik-
brúður af öllum stærðum og
gerðum, Prúðuleikararnir. Frægir
skemmtikraftar sækjast eftir því
að fá að koma fram í þáttunum
þeirra þ.á.m.; Joel Grey, Rita
Moreno, Peter Ustinov, Charles
Aznavour, Candice Bergen,
Twiggy og Juliet Prowse. Þetta
fólk hefur reyndar, eins og flestir
aðrir, fallið fyrir frosknum Kermit
og vinum hans. Hvað finnst ykkur
t.d. um frk. Svínku, sem er yfir sig
hrifin af honum Kermit? Honum
tekst samt að halda aftur af henni,
þótt það sé oft erfitt, því Svínka er
300 pund og mikill mannþekkjari.
Svo er það hinn hjartagóði
Fossi, björninn, sem er alltaf að
gera einhver mistök. Hann veit þó
með sjálfum sér, að hann er
skemmtikraftur á heimsmæli-
kvarða, og þeir, sem öfunda
hann, ættu ekki að gera svona
mikið grín að honum.
Það má heldur ekki gleyma
hundinum Hrólfi, bítlahljómsveit-
inni og söngparinu Vein og
Vöndu, sem aldrei geta byrjað
rétt.
Sýningarnar fara fram í gamalli
enskri hljómleikahöll, og í hvert
skipti, sem manni verður litið upp
á svalirnar, má sjá þá Statler og
Waldorf, tvo enska séntilmenn,
sem koma alltaf til þess að setja út
á allt og alla. Þegar á heildina er
'Feögarnir Henson og Kermit.
Henson var átján ára gamaii,
þegar hann bjó froskinn til.
litið, er sýningin ákaflega litrík.
Ófreskjur af mörgum stærðum,
talandi fiskur, hauslaust kvikindi,
ógnvekjandi tröll, svín, hænsn og
rottur eru meðal þátttakenda.
Maðurinn, sem stendur að baki
þessu öllu, er Bandaríkjamaður,
sem heitir Jim Henson. Það eru
meira en tuttugu ár síðan hann bjó
til fyrstu leikbrúðuna sína, en það
var einmitt froskurinn Kermit.
Efnið, sem hann notaði, var
gamall vetrarfrakki og tvær tennis-
kúlur.
Henson bjó Kermit sex sinnum
til, áður en hann fékk það útlit,
sem nú er þekkt um allan heim.
Reyndar hafði hann alltaf haft
Bítlahljómsveit Prúðuleikaranna■