Vikan - 27.10.1977, Qupperneq 16
við næsta borð sátu tveir menn og
voru eitthvað að tala um plötuna.
Svo sagði annar þeirra: „Það væri
nú gaman að sjá framan í
kellinguna, sem syngur þetta lag
um Stínu Stuð." Þá stóð ég upp,
gekk að borðinu þeirra og sagði:
,,Er ég svona ansk.... kellingar-
eg." Það kom auðvitað flatt upp á
þá, þegar ég kynnti mig svona, en
ég hafði mikið gaman af.
PLATAN ER EIGINLEGA SVONA
SPRELL
— Hvað er það versta, sem gæti
komið fyrir þig, Steinunn?
— Það væri að missa manninn
minn, því ég á svo góðan mann.
Hins vegar væri það besta, sem
fyrir mig gæti komið, að mér væri
boðið hlutverk í Þjóðleikhúsinu.
Ég er eiginlega viss um, að sá
draumur minn á eftir að rætast.
Ætli það sóu ekki u.þ.b. 15 ár,
síöan ég lék þar síðast.
— Saknarðu Íslands, þegar þú
ert í London?
— Landið mitt er fallegasta land
í heimi, og ég sakna þess oft á
sumrin að geta ekki farið upp í
sveit eða komist í berjamó. En ég
er ennþá íslenskur ríkisborgari og
ætla mér alltaf að vera.
Það er líka Íslendingafélag í
London, sem ég hef verið virkur
félagi í. Ég skemmti alltaf á þorra-
blótum og þess háttar hjá því.
Þessi félagsskapur finnst mér
geysilega góður
— Hefur þér ekki dottið í hug að
flytja heim til islands?
— Nei, aldrei. Það yrði svo
erfitt. Maðurinn minn myndi eiga
erfitt með að fá góða vinnu hérna.
Það er heldur ekkert gaman að
vera frægur á islandi. Það er
gaman að skreppa hingað heim og
gera smá sprell, en ekki að. búa
hérna, þar sem allir þekkja alla.
— Þá dettur mér í hug, að ég
fór á Sögu að skemmta mér með
kunningjafólki mínu síðasta laug-
ardagskvöld. Á eftir gekk okkur
erfiðlega að ná í leigubíl til þess að
aka okkur heim, en náðum loksins
einum, og ég sat frammí hjá
bílstjóranum. Stúlka, sem var með
okkur, var eitthvað að raula lagið
um Bjössa Bollu, og maður, sem
var með, spurði eftir hvern textinn
væri. ,,Hann er eftir einhverja
kellingu, sem heitir Steinunn
Bjarnadóttir," sagði þá leigubíl-
stjórinn. ,,Það er nú ég," sagði ég
þá og heilsaði honum. Hann varð
auðvitað hvumsa við, en þegar ég
ætlaði að borga aksturinn vildi
hann ekkert taka fyrir.
— Hver er tilgangurinn með
plötunni, „Steinka á útopnu?"
— Ég vil nú fyrst leggja áherslu
á það, að ég er engin söngkona,
og platan er eiginlega svona
sprell. Ég reyni t.d. að herma eftir
ýmsum þekktum persónum t.d.
Marlene Dietrich, og ég er alls ekki
að stefna að neinu ákveðnu marki
með þessu.
— Þú samdir nokkur lög og
texta, sem eru á plötunni?
— Já, en textarnir eru náttúr-
lega ekkert nema bull, en það eru
allir textar bara bull í dag, t.d.
enskir dægurlagatextar. Þeir eru
bara bull. Það hafa reyndar margir
spurt mig, hvort ég eigi við
einhvern ákveðinn mann í laginu
um Bjössa Bollu, en svo er alls
ekki. Textinn varð bara til svona
af sjálfu sér.
ÖNNUR PLATA í BÍGERÐ
— Hvað er svo á döfinni hjá þér
í framtíðinni?
— Það er önnur plata í bígerö.
Hana ætla ég sjálf að gefa úr crg
hún verður tekin upp í London. Ég
Þangað
leita viðskiptin,
semúnialið
ermest.
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
16 VIKAN 43. TBL.