Vikan - 27.10.1977, Qupperneq 37
Usa
(Taylor) Todd
var meðal boðsgesta
á hátíðinni. Liza
þykir aðlaðandi stúlka, enda hefur
hún erft hin fögru augu móður
sinnar, Elizabetar Taylor, en
skapgerðina hefur hún fengið frá
föðursínum, MikeTodd. Þótt Liza
sé orðin tvítug, er ekki Ijóst, hvað
hún ætlast fyrir í lífinu, nema hvað
hún hyggst ekki koma nálægt
kvikmyndum. Fylgdarmaður
hennar er óþekkt svermirí.
John-John
er á sautjánda
árinu og virðist ætla að verða
glæsilegur piltur. Maria Shriver,
19ára dóttir Eunice systur J.F.K.,
virðist á sama máli, þar sem hún
horfir frekar á hann en
tennisleikinn.
Edward
KENNEDY er
liðtækur við fleira en
þingmennsku og kvennafar, til
dæmis tennis og fleiri íþróttir.
Tennisleikur var einmitt
aðalatriðið á títtnefndri
góðgerðahátíð, og Ted stóð sig
með prýði. Við sjáum hértvo
fræga kappa, þá Ted og Mondale
varaforseta, en þeir unnu
glæsilega í tvímenningskeppni
gegn sendiráðsfulltrúa og lækni
nokkrum.
Jackie
KENNEDY-ONASSIS
var nýkomin heim úr sumarleyfi,
sem hún eyddi á eynni Skorpios
ásamt dóttursinni, og þarna sést
hún við afhendingu sigurlaunanna
í tenniskeppninni. Jackie á annríkt
um þessar mundir, því hún hefur
nú hafið ritun endurminninga
sinna. Og útgefandi hennar virðist
bera til hennar fyllsta traust, því
hann hefur greitt henni 5 milljón
dollara fyrirfram.
Ethel Kennedy
ekkja Roberts og móðir ellefu barna
hans lætur ekki sitt eftir liggja,
þegar góðgerðastarfsemi er
annarsvegar. Hún sýndi mikil tilþrif
í dansinum um kvöldið og sést hér
á gólfinu með ónafngreindum -
grínista úr sjónvarpinu.
Mohamed Ali
vareinn hinna
örfáu, sem gátu keppt við
Kennedyanna um athygli
viðstaddra. Hann kom vitanlega
með nýju frúna og spánnýja
barnið. Kannski er hann óþarflega
upptekinn af þeim tveimur um
þessar mundir, að minnsta kosti
átti hann í nokkrum erfiðleikum
með andstæðing sinn, Bunny
Shavers, á dögunum.
43. TBL. VIKAN37