Vikan - 27.10.1977, Side 46
Sonurinn erfrelsistry
ing les tarræn ingjans
Scotland Yard sparaði ekkert til
að hafa hendur í hári Biggs. Þar
kom, að Butler lögregluforingi,
sem svarið hafði þess eið að hafa
hendur í hári Biggs, komst á
snoðir um dvalarstað hans. Biggs
varð þess var og flýði til Brasilíu.
Þar sá hann fljótlega nýja undan-
komuleið. Brasilísk lög kveða svo
á, að sé maður faðir barns, sem
fætt er í Brasilíu, megi ekki
framselja hann til lögreglu annars
lands. Um það leyti sem Scotland
Yard hafði tekist að hafa uppi á
Biggs í Brasilíu og öll sund voru að
lokast, kom í Ijós, að ung og fögur
brasilísk stúlka var vanfær af hans
völdum. Og Scotland Yard gat
ekkert annað gert en sleppa
Biggs.
Raimunda Nascimento de
Costro, sem er indíáni að einum
fjórða og hafði verið dansmær á
næturklúbbi, býr nú með Biggs og
syni þeirra. Þau lifa notalegu lífi í
Sepetiba Beach rétt hjá Rio.
Biggs ver miklum tíma með syni
sínum og er m.a. að kenna honum
ensku, því Biggs er viss um, að sá
dagur komi, að hann hverfi aftur
til Bretlands með hina nýju
fjölskyldu sína. Hann segist ekki
vita, hvenær það verði eða
hvernig — en hann er viss um, að
svo muni verða.
Þegar Biggs hefur fengið tæki-
færi til, hefur hann gekki getað
stillt sig um að ögra Scotland Yard
svolítið. Síðast gerðist það í Ríó.
Biggs var úti á gangi, hvítklæddur
eins og kaffibóndi, þegar hann
gekk fram á nokkra breska sjóliða,
sem áttu í erfiðleikum með að gera
sig skiljanlegaá portúgölsku. Hann
vatt sér að þeim og bauð aðstoð
sína og i þakklætisskyni buðu
sjóliðarnir honum að koma um
borð í freigátuna Danae og drekka
með þeim glas að skilnaði. Biggs
hikaði sem snöggvast, en með
glettnisglampa í augum ákvað
hann að þiggja boðið.
Daginn eftir vissu allir í Ríó og
Englandi, að lestarræninginn
frægi hafði verið gestur um borð í
freigátu hennar hátignar — stór-
glæpamaður með handtökuskipan
Efti'r póstlestarránið fræga komst punda. Hann náðist fljótlega og konu sína Charmian Powell og tvö
Biggs, eins og margir muna, á var settur í fangelsi. Þaðan slapp börn þeirra, og þar settust þau að
brott með 2 milljónir sterlings- hann og komst til Ástralíu með undir nafninu Cook.
WASCATOR
Hugsum okkur 10 íbúðir undir sama þaki.
Wascator þvottavél 7 kg verð Kr. 620.000.
— Útborgun 300.000.-:30.000.- pr. íbúð.
Eftirstöðvarnar greiðast á 6 mán:
5.500.- pr. íbúð á mánuði.
EINNIG ÞURRKARAR OG
ÞEYTIVINDUR
Vörumarkaðurinnhf.
I ÁRMÚLI 1A - SlMI 83422