Vikan - 26.01.1978, Side 21
hernum. Móðir mín dó einu eða
tveimur árum eftir að ég fæddist og
þá sendi hann mig til ættingja
hennar á Nýja Sjálandi. Hann dó
svo sjálfur nokkrum árum síðar.”
„Mannstu nokkuð eftir þvi,
þegar þú fórst frá Indlandi til Nýja
Sjálands?”
„Eiginlega ekki. Eg man eins og
óljóst eftir að hafa verið um borð í
skipi. Kringlóttur gluggi — senni-
lega kýrauga. Og maður í hvítum
fötum, rauður í framan og með blá
augu, — og með ör á hökunni, held
ég. Ég man, að hann henti mér oft
upp í loftið og að mér fannst það
bæði gaman og frekar skelfilegt. En
það er allt mjög ógreinilegt.”
„Manstu nokkuð eftir hjúkrunar-
konu — eða indverskri barnfóstru?”
„Ekki indverskri barnfóstru, —
en barnfóstru samt. Ég man vel
eftir fóstru, sem annaðist mig,
þangað til ég var eitthvað svona
fimm ára. Hún klippti út dúkku-
lísur. Já, hún var með skipinu. Hún
skammaði mig, þegar ég fór að
gráta, af því að skipstjórinn kyssti
mig og ég var svo hrædd við
skeggið á honum.”
„Kæra barn, þarna fáum við
strax eitthvað til að athuga nánar,
því, sjáðu til, þú ert að rugla saman
tveimur sjóferðum. I annarri var
skipstjórinn með skegg og i hinni
var hann rauður i framan og með ör
á hökunni.”
„Já,” sagði Gwenda hugsandi,”
það hlýtur eiginlega að vera.”
„Mér virðist, sem það gæti
verið,” sagði ungfrú Marple, „að ef
til vill, hafi faðir þinn fyrst farið
með þig til Englands þegar móðir
þin dó, og þú hafir i rauninni búið í
þessu húsi, Hillside. Þú manst, að
þú sagðir mér, að þú hefðir strax
kunnað vel við þig, þegar þú komst
i húsið i fyrsta skipti. Og herbergið,
sem þú valdir fyrir svefnherbergi
þitt, hefur sennilega verið gamla
barnaherbergið þitt — ”
„Það hefur verið barnaherbergi.
Það eru rimlar fyrir glugganum.”
„Þarna sérðu. Veggfóðrið var
glaðlegt og fallegt. Börn muna slikt
vel. Ég hef aldrei gleymt veggfóðr-
inu í mínu barnaherbergi, en samt
held ég að því hafi verið breytt,
þegar ég var ekki nema þriggja
ára.”
„Og að það sé þess vegna, sem
mér duttu strax í hug þessi leik-
föng, — dúkkuhúsið og dótaskáp-
urinn?”
„Já,og baðherbergið. Þú sagðir
mér, að strax og þú sást það, hafi
þér dottið í hug endur í baðkerinu.”
„Það er rétt, að mér fannst ég
strax vita hvar allt væri,” sagði
Gwenda. „Til dæmis eldhúsið, og
línskápurinn. Og mér fannst alltaf
að það ættu að vera dyr á milli
dagstofunnar og borðstofunnar. En
það getur ekki verið, að ég hafi
komið til Englands eftir allan þennani
tíma og keypt einmitt sama húsið
og ég átti heima í?”
„Það er engan veginn óhugsandi,
vina mín. Það er að vísu furðuleg
tilviljun, — en þannig er um svo
margt. Maðurinn þinn vildi helst
kaupa hús á suðurströnd England,
þú varst að leita að slíku húsi, fórst
framhjá þessu, og það vakti upp
einhverjar minningar og dró þig að
sér. Það var hæfilega stórt og á
sanngjörnu verði, svo þú keyptir
það. Nei, það er engan veginn neitt
ósennilegt, að þannig hafi þetta
einmitt verið. Ef það hefði verið,
það. sem sumir kalla, (og kannski
réttilega) reimt í húsinu, þá hefðir
þú brugðist allt öðru vísi við, hugsa
ég. En þú fannst aldrei fyrir neinum
óhugnaði, að því er þú sagðir mér,
nema á einu ákveðnu augnabliki, og
það var þegar þú varst að koma
niður stigann og þú leist niður i
holið.”
Gwenda varð aftur skelfd á svip.
„Þú átt við — að — að Helen —
að það sé líka satt?” sagði hún.
' Ungfrú Marple svaraði mjög
varfærnislega: „Ég held það, vina
mín... Ég held að við verðum að
gera okkur það ljóst, að ef allt hitt
eru minningar, þá ljóti þetta að vera
það líka...”
„Að ég hafi raunverulega séð
einhvem drepinn, — kyrktan — og
liggjandi þarna dáinn?”
„Ég hugsa nú, að þú hafir ekki
gert þér grein fyrir þvi þá, að hún
hafi verið kyrkt. Það hefur senni-
lega verið leikritið í gærkvöldi, sem
gerði þér það ljóst, og eins hitt, að
þú sem fullorðin manneskja veist,
hvað blái liturinn á andlitinu þýðir.
Framhald í næsta blaði.
Timi Þöglu
myndanna
er liöinn!
leumiq
EUMIG 30 XL
Kvikmyndatökuvél
meó hljóótöku.
ÞÓ fyrst er kvikmyndin
fullkomin þegar hljóóió
fylgir meó.
EUMiG VEKUR ATHYGLI
£
SPORTVAL
LAUGAVEGI 116 - SIMAR 14390 & 26690
4. TBL. VIKAN 21