Vikan - 09.02.1978, Qupperneq 2
Vikan
6. tbl. 40. árg. 9. feb. 1978
Verð kr. 450.
GREINAR:________
14 Umhverfis jörðina í fjórtán
veislum, 6. grein Jónasar
Kristjánssonar: Indónesia í
London.
40 Hjá ræðismanni dýranna. Litið
inn á Dýraspitaiann.
48 Litill eða stór — dýr eða ódýr?
Fjallað um nýjungar á bila-
markaðnum.
50 Bertrand Russell og konurnar.
54 Yfir 100 manns eru nú í Forn-
bílaklúbbnum.
54 Það kostar milljón á ári að eiga
Cortinu.
SÖGUR:
12 Hálfkveðin visa. Smásaga eftir
Helene Lewis Coffer.
18 Morð úr gleymsku grafið.
Fjórði hluti framhaldssögu
eftir Agöthu Christie.
42 Þetta er sonur þinn eftir Elsi
Rydsjö. Ellefti hluti og sögu-
lok.
56 Giftingarhringurinn. Smásaga
eftir Marie Joseph.
FASTIR ÞÆTTIR:
9 í næstu Viku.
10 Pósturinn.
26 Mig dreymdi.
27 Heilabrot Vikunnar.
29 Myndasögublaðið.
39 Tækni fyrir alla.
44 Stjörnuspá.
59 Poppfræðiritið: Boz Scaggs.
61 Matreiðslubók Vikunnar.
ÝMISLEGT:
2 Á fjórum hjólum 1978. Litast
um á bílamarkaðnum.
54 I miðri Viku — molar úr ýms-
um áttum.
Með hækkandi sól fara hjól þjóðlífsins að snúast
hraðar, og ekki bara í óeiginlegri merkingu,
heldur einnig eiginlegri, því þá færast bíleigendur
allir í aukana. Nú eru það ekki bara skíðamennirnir,
sem nota bílana sína um helgar meira en rétt til
að skjótast í heimsókn til kunningjanna,
allir virðast nú vilja spretta úr spori á þessum
þarfasta þjóni nútímans, og umferðin eykst
til muna á þjóðvegunum.
En það er ekki bara, að umferðin aukist og menn fari
að dytta að gamla bílnum, heldur er þessi árstími
gjarna notaður til þess að skipta um bila, og þeir
sem engan bílinn eiga, fara að huga að því að komast
á fjögur hjól fyrir sumarið. Og þá er
mikið skoðað og spekúlerað.
Enn einu sinni býður Vikan lesendum sinum
að litast um á bílamarkaðnum og kynnir nokkra
af þeim fólksbilum, sem á boðstólum eru.
Úrvalið er mikið, og það gæti ært óstöðugan að
endasendast á milli allra umboðanna
Kynning okkar er til þess ætluð að spara mönnum
þau spor og létta leitina, og sérstaklega erum við
að hugsa um fólk úti á landi, sem litla
möguleika hefur á því að kynna sér af eigin raun,
hvað boðið er upp á.
Vikan setti bílaumboðunum þau takmörk,
að frá hverju þeirra er kynntur rækilega einn bill
af hverri tegund og mest þrjár tegundir frá hverju
umboði, en auk þess eru taldir upp aðrir fáanlegir
bílar hjá umboðinu og verð þeirra.