Vikan - 09.02.1978, Blaðsíða 49
landi. Þær vinsældir ná allt til loka
heimstyrjaldarinnar síðari, er ísl-
endingar kynntust jeppanum og
öðrum tveggja drifa bílum. Síðar
komu hingað til lands aðrar gerðir,
og skulu hér nefndar nokkrar
þeirra. Frá American Motors
heldur jeppinn enn velli, að vísu
mikið breyttur, en einnig hafa
Wagoneer og Cherokee bílarnir
orðið vinsælir. Frá International
eru tveir Scout og lengri gerð af
honum, sem heitir Traveler. Af
stærri jeppum hafa verið tveir
áþekkir, Chevrolet Blazer og
Dodge Ramcharger, en nú bætist
enn einn í þann hóp, en það er
alveg ný og endurbætt gerð af
Ford Bronco. Broncoinn hefur
verið nær óbreyttur allt frá 1966,
en nú hefur honum verið gjör-
breytt og hann stækkaður til
muna. Hvað útlitið snertir, svipar
honum mjög til Blazer og
Ramcharger. Frá Bretúm haldast
Range Rover og Land Rover enn
óbreyttir, og sömu sögu er að
segja um Landcruiser frá Toyota.
Rússajepparnir eru velþekktir
hér á landi, og hafa komið af þeim
nokkrar gerðir. En nú hafa þeir
austur í Sovét tekið á honum stóra
sínum og sent frá sér ,,leyni-
vopn," þar sem Lada 2121 er. Hér
er um að ræða bíl, sem er allt í
senn, smábíll, fólksbíll og jeppi.
Hvað útlitið snertir, svipar honum
til margra evrópskra smábíla, svo
sem Simca 1100, en þó er hér um
sérstæðan bíl að ræða. Lada 2121
er með drif á öllum hjólum, sem er
sítengt, vélin er 86 hestöfl, 1570
rúmsm . sem gefur bílnum góðan
kraft. Verður virkilega spennandi
að sjá, hvernig þessi nýi ,,smá-
jeppi" reynist við íslenskar að-
stæður. Það hefur sýnt sig, að
landinn kann vel að meta það að
vera á bíl, sem ekki er alveg-
bundinn við þjóðvegina, og
sannasí það kannski ekki síst á
þeim vinsældum, sem Subaru
bíllinn japanski hefur náö hér á
landi. Þessi litli stationbíll er fram-
drifinn, en þegar þurfa þykir, má
bæta við drifi á afturhjólunum, og
þá er maður kominn með jeppa í
hendurnar. Einnig er von á
hálfgerðum jeppa frá Simcaverk-
smiðjunum. Er hér um að ræða
nýjan bíl frá þeim, sem svipar að
útliti nokkuð til Range Rover, en
er að vísu all nokkru minni. Ekki
verður þessi bíll með drifi á öllum
hjólum, heldur einungis framhjóla-
drifinn, en vegna þess hve hár
hann verður frá jörðu, þá á hann
að hafa nokkra „jeppaeiginleika."
Hér á undan hefur verið lítillega
stiklað á stóru um hluta þeirra bíla,
sem Vikan kynnir í þessu blaði, en
það tæki alltof mikið rúm, ef gera
ætti þeim öllum einhver skil. Er því
best að láta myndirnar og þær
upplýsingar, sem með þeim fylgja,
tala sínu máli.
J.R.
BMW-alhliða
gæðingur
BMW - óskabíll allra sem vilja eignast bíl með góða aksturseiginleika,
vandaðan frágang, vel hönnuð sceti, fullkomið fyrirkomulag
stjórntcekja, þcegilega fjöðrun og góða hljóðeinangrun. Við bjóðum
varahluta- og viðgerðaþjónustu.
Leitið nánari upplýsinga um BMW bifreiðar.
BMW 316 verð ca kr. 3.100.000.— BMW 518 verð ca kr. 4.200.000.—
BMW - ánægja í akstri
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633