Vikan - 09.02.1978, Blaðsíða 19
CAV HOLSET Simms Bryce
Ny, fullkomm
tæki við
prófun á
FORÞJÖPPUM
varahlutaþjonusta
Vidgerdarþjónusta
13LOSS][ s
SKIPHOITI 35 '
REYKJAVIK Z'XZt' iM s’Mi
„Haydock læknir heldur að sjávar-
loft myndi gera mér gott. Ég er
eitthvað svo þreytt og þróttlítil.”
,,Ö, en þú getur ekki farið í burtu
núna,” sagði frú Bantry. ,,Þetta er
einmitt sá timi árs, þegar garðarnir
eru fallegastir. Það hlýtur allt að
vera farið að blómstra hjá þér.”
SIMCA 1508
sigmdi nætiurallid
Enn einu sinni sigraði SIMCA í rall-akstri hér á landi. Bílnum var ekið stanslaust í rúmar 20 klst.
950 km. leið eftir einhverjum verstu vegum og vegleysum Islands í næturralli
Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur um helgina 1. og 2. okt. Hvað bilaði? Einn pústbarki.
Annað? Ekkert.
SIMCA bílar frá CHRYSLER FRANCE hafa nú marg sannað ágæti sitt hér á landi. Vandlátir
bDakaupendur velja sér SIMCA 1307 eða 1508, sem eru traustir og góðir fimmdyra, framhjóla-
drifnir og fimm manna fjölskyldubílar.
Talið við okkur strax í dag og tryggið ykkur SIMCA.
Ifökull hf.
ARMÚLA 36, Símar 84366 - 84491
MORÐ ÚR GLEYMSKU GRAFIÐ
,,Haydock læknir álítur það samt
fyrir bestu.”
,,Ja, Haydock er nú ekki eins
vitlaus og margir aðrir læknar,”
samþykkti frú Bantry með nokkurri
tregðu.
,,Dolly, miglangaði að forvitnast
um þessa eldabusku, sem var hjá
þér.”
unni, með byssu í hendi og hundana
á hælunum.
Hann heilsaði henni hjartanlega.
,,Það gleður mig að sjá þig aftur.
Hvernig var í London?”
Ungfrú Marple sagði, að það
hefði verið ágætt í London. Frændi
hennar hefði farið með hana að sjá
nokkur leikrit.
,,Ég þori að veðja, að það hafa
■ verið einhver snobb-leikrit. Ég hef
sjálfur bara gaman af söng- og
gamanleikjum.”
Ungrú Marple sagði, að hún hefði
farið að sjá ágætt rússneskt leikrit,
en það hafi reyndar verið heldur of
langdregið.
„Rússneskt,” sagði Bantry of-
ursti með mikilli fyrirlitningu.
Honum hafði einu sinni verið gefin
bók eftir Dostoievsky, þegar hann
lá á spítala.
Hann bætti við, að ungfrú
Marple mundi geta fundið Dolly í
garðinum.
Það var næstum því alltaf hægt
að finna frú Bantry í garðinum.
Garðyrkja var hénnar ástríða.
Hennar uppáhaldsbókmenntir voru
verðskrár yfir lauka og helst af öllu
vildi hún ræða um prímúlurnar
sínar, laukana og önnur göfug
blóm. Það fyrsta, sem ungfrú
Marple sá af henni, var umfangs-
mikill afturendi hennar.
Þegar hún heyrði fótatakið nálg-
ast, stóð frú Bantry stirðlega á
fætur, þurrkaði sér um ennið með
moldugri hendi og heilsaði vinkonu
sinni.
, ,Ég var búin að frétta að þú væri
komin, Jane,” sagði hún. „Finnst
þér ekki nýju dalíurnar mínar
fallegar? Hefurðu séð þessa Maríu-
vendi? Ég hef átt í hálfgerðum
vandræðum með þá, en nú held ég
að þeir séu að koma til. Við bara
verðum að fá rigningu. Það hefur
verið alltof þurrt undanfarið.” Svo
bætti hún við: „Ester segir, að þú
hafir legið veik og legið í rúminu.”
Ester var eldabuska hjá frú Bantry
og helsti upplýsingamiðill hennar.
„Ég er fegin að sjá, að það er ekki
rctt.” '
„Þetta er bara smávegis of-
þreyta,” sagði ungfrú Marple.
6. TBL. VIKAN 19