Vikan - 09.02.1978, Blaðsíða 22
Fimm lítrarnir
dugðu
AUTOBIANCHI
95,91 km!
5,21 lítrará
100 km.
Fimm lítrarnir dugðu Autobianchi
vel í Sparaksturskeppni
Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur.
Af 5 fyrstu bílunum í 1. flokki (o-iooocc).
voru 3 Autobianchi sem komust
95,91 — 93,71 — og
93,62 km. á aðeins 5 lítrum af
bensíni.
Autobianchi AII2 Elegant, er ekki
aðeins lipur, heldur afburða
skemmtilegur og vel unninn bíll, sem
stenst ströngustu gæðakröfur um
aksturseiginleika og öryggi smábíla.
Til afgreiðslu nú þegar.
B3ÖRNSSON Aco
MORÐ ÚR
GLEYMSKU
GRAFIÐ
„Hrammar?” Giles lyfti spyrj-
andi brúnum.
„Það voru hrammar. Gráir
hrammar — ekki mennskir.”
„Heyrðu mig nú, Gwenda. Þetta
er nú alls ekki morð í hryllings-
mynd. Það hefur enginn maður
hramma.”
„Ja, hann hafði hramma.”
Giles leit á hana vantrúaður á
svip.
„Þú hlýtur að hafa ímyndað þér
það seinna.”
„Heldurðu ekki að það geti verið
að þetta sé allt tóm ímyndun?”
svaraði Gwenda hægt. „Veistu það
Giles, að ég var einmitt að hugsa,
að sennilega væri þetta bara allt
saman draumur. Það gæti verið.
Svona drauma dreymir börn ein-
mitt, og þau verða svo hrædd, að
þau gleyma því aldrei. Heldurðu
ekki, að það sé líklegasta útskýring-
in? Það virðist heldur enginn í
Dillmouth hafa nokkurn minnsta
grun um, að hér hafi verið framið
morð, eða einhver dáið snögglega,
eða horfið, eða að það hafi yfirleitt
nokkuð undarlegt átt sér stað hér í
húsinu.”
Giles líktist nú öðrum litlum
dreng, — litlum dreng, sem nýbúið
er að taka frá nýja, fallega
leikfangið hans.
„Það getur svo sem verið, að
þetta hafi verið martröð,” sam-
sinnti hann með mikilli tregðu. En
svo birti allt í einu yfir svip hans.
„Nei,” sagði hann. „Því trúi ég
ekki. Þig gæti hafa dreymt
apahramma og að einhver væri
Góð ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
BILARYÐVORNHr
Skeifunni 17
a 81390
SKEIFAN 11 REYKJAVÍK SÍMI 81530
SÖLUUMBOÐ Á AKUREYRI: BLÁFELL S/F.