Vikan - 09.02.1978, Page 11
18 ára — og
skelfingu lostin
Kæri Póstur!
Ég hef engan, sem ég get snúið mér til, og þess vegna
skrifa ég þér í von um, að þú getir hjálpað rpér. Ég er 18
ára og bý ein í herbergi, sem ég leigi. Vandamál mitt er
það, að ég verð skjálfandi á taugum í hvert skipti, sem
ég þarf að hitta fólk. Ef ég þarf bara t.d. að fara út í
búð, skelf ég af hræðslu, og í skólanum er ég alltaf
stjörf af hræðslu við, að kennarinn taki mig upp í tíma.
Mér finnst, að hjartslátturinn hljóti að heyrast um alla
skólastofuna. Svo þegar ég er tekin upp, þá er ég svo
taugaóstyrk, að ég ætla aldrei að koma út úr mér því,
sem ég á að segja, og segi svo allt vitlaust og fæ þess
vegna alltaf skammir fyrir að hafa ekki lesið heima.
Hins vegar gengur mér ágætlega í skriflegum prófum.
Ég vona, að þú getir hjálpað mér, því ég þori ekki til
læknisins míns. Það þýðir ekki fyrir þig að segja mér að
herða mig upp, því það hef ég svo oft reynt. Ég vil
heldur ekki fara til sálfræðings, og ég vil ekki fá tauga-
töflur. Með fyrirfram þakklæti fyrir birtinguna og von
um hjálp.
H. K.
Nei, vina mín, þegar svona er komið, er til l.ítils að ætla
að ,,herða sig upp,” svo þú VERÐUR að fá
sálfræðilega hjálp. Leitaðu fyrst til læknis og vittu,
hvort hann getur eitthvað hjálpað þér. Það er vel
líklegt, að þú fáir einhverjar „taugatöflur", eða eitthvað
■semdregurúróttanum, en að öllum líkindumgefurhann
þér tilvísun á sálfræðing. Og ef þú ert þess fullviss, að þú
getir ekki rætt við lækninn, skrifaðu þá bara á miða
nákvæmlega það, sem þú hefur skrifað mér, og réttu
honum. Með því klýfur þú fyrstu erfiðleikana. Þetta er
ekkert gamanmál, og þú ættif hiklaust að leita þér
læknis hið allra fyrsta.
Ogennerspurt um skóla
Kæri Póstur!
Ég hefatdrei skrifaö þér áöur og
ætia nú aö skrifa þér fáeinar línur
meö von um svar. Gætirþú gefiö
mér upp/ýsingar um allar þær
greinar, sem kenndar eru í Iðn-
skólanum íReykjavík, hvað þær
taka mörg ár og hvað kostaraö
vera þar einn vetur við nám? Þetta
er mikilvægt, ogégvona, aöþú
birtir þetta bréf fyrir mig. Hvað
taka nám viö þessar ýmsu deiidir
mörg ár? Hvaða merki á best við
hrútsstrák?Að lokum, hvaö lestu
úr skriftinni, oghvaö he/durðu, að
ég sé gamall?
Hjá Iðnskólanum eru kenndar
allar greinar iðnaðar, eins og nafn
skólann bendir til, og það liggur
við, að það sé sama, hvað þér
dettur í hug að læra í sambandi
við iðn, þá er það kennt þar, s.s.
bókaiðnaður (grafisk fög), bygg-
ingariðnaður, málmiðnaður, tré-
iðnaður, rafmagnsiðnaður og
margt fleira. Einfaldast fyrir þig er
að hafa sjálfur samband við
-skólann, þar færðu allar- upplýs-
ingar frá fyrstu hendi. Ljónið eða
nautið eiga best við hrútsstrákinn.
Skriftin ber vott um mikinn vilja-
styrk, og þú ert 16-17 ára.
BILAPARTASALAN
Höfum úrval notaðra varahlufaíýmsar
tegundirbifreiöa, tildæmis:
M. BENZ 220D 1970 SAAB 96 1966
PEUGEOT 404 1967 SKODA 110 1971
V.W. 1300 1970 SINGER VOGUE 1968
Einnighöfum við úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleöa.
Sendumum alltland.
BÍLAPARTASALAN
Höföatúni 10 — Sími 11397
Árbók um nýja bíla:
- -
•BILAR A ISLANDI^g™)
Upplýsingar og myndir af
nær öllum bílum sem fluttir
eru til landsins.
Við erum alltaf í
fararbroddi.
m
-
Bjartur og rúmgóður
sýningarsalur.
Viðskiptaþing: Daglega
í Bíiagarði í
er alltaf
útsöluhorninu
eitthvað sem flestir ráða við.
Sífe/id þjónusta.
Sífeiid viðskipti.
Bílasalan
BlLAGARÐUR
Borgartúni 21
Símar 29750-29480
y. b.
6. TBL.VIKAN 11