Vikan - 09.02.1978, Síða 24
MORÐ ÚRGLEYMSKU GRAFIÐ
að ég hafi yfirleitt nokkurn tíma séð
eitthvað. Kannski hefur bara slegið
út í fyrir mér kvöldið þarna i
leikhúsinu.”
„Nei. Þetta er engin ímyndun.
Ungfrú Marple er líka á sama máli.
Hvað um „Helen?” Þú hlýtur að
geta munað eitthvað í sambandi við
„Helen?”
„Ég get bara alls ekki munað
neitt. Bara nafnið.”
„Þetta er þá kannski alls ekki
rétta nafnið.”
„Jú, það er það. Það var Helen.”
Svipur Gwendu var ákveðinn og
hún virtist alveg sannfærð.
„Fyrst þú ert svona viss um, að
Helen sé rétta nafnið, þá hlýtur þú
að vita eitthvað um hana,” sagði
Giles. „Þekktirðu hana vel? Bjó
DATSUN 120 Y 1978
Fjögra dyra sedan Sedan
Við getum afgreitt bílana
strax á mjög hagstæðu
verði og með dbyrgð upp í
20.000 km akstur
HAFIÐ SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR OKKAR,
SEM VEITA ALLAR UPPLÝSINGAR UM BÍLINN,
VERÐ OG GREIÐSLUKJÖR.
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Simar 84510 og 84511
hún hérna? Eða var hún bara í
heimsókn?"
„Ég segi þér það alveg satt, ég
bara veit það ekki.” Gwenda var
orðin taugaóstyrk og þjökuð.
Giles reyndi að fara aðra leið.
„Hverjum öðrum manstu eftir?
Föður þínum?”
„Nei. Það er að segja. ég get
varla sagt það. Ég átti alltaf mynd
af honum. Og Alison frænka sagði
oft: „Þetta er pabbi þinn.” Ég man
ekkert eftir honum hérna, í þessu
húsi....”
„Og þú manst ekki eftir neinum
þjónum — hjúkrunarkonu — eða
öðru starfsfólki?”
„Nei, — nei. Það þýðir ekkert,
þótt ég sé að reyna að rifja þetta
upp. Allt sem ég veit er geymt
einhvers staðar í undirmeðvitund-
inni. Eins og þegar ég gekk alveg
ósjálfrátt að hurðinni. Það var ekki
eins og ég hefði munað, að þarna
ætti að vera hurð. Ef þú legðir ekki
svona hart að mér að reyna að muna
eitthvað, Giles, þá kannski kæmi
þetta frekar. En annars held ég, að
það sé alveg vonlaust að reyna að
komast að þessu. Ekki eftir allan
þennan tíma.”
„Auðvitað er það engan veginn
alveg vonlaust, — meira að segja
ungfrú Marple var þeirrar skoðun-
ar.” i
Framhald i næsta blaði.
mest
seldi
ár
eftir
ár
Pólar hf.
Einholti 6.
24VIKAN 6. TBL.