Vikan - 09.02.1978, Page 51
vegna friðarsinnaðra skoðana sinna
og árið 1961, þegar hann var á
nítugasta aldursári, var hann
tekinn höndum fyrir að hafa
stjórnað kröfugöngu gegn atóm-
vopnum. í bæði skiptin mætti hann
peningalaus í réttarsalnum, því
hann vildi heldur hlita dómnum en
að borga sekt.
Þess má líka geta, að þótt
Russell væri sósialisti, var hann
svo þrjóskur, að hann lagði aldrei af
venjur aðalsmannsins. Allt sitt líf
hafði hann hið ágætasta þjónustu-
lið, og má því segja, að sósíalisminn
hafi verið honum kærari í hugsun en
framkvæmd. Kenningamar um
..frjálsar ástir” hafði hann hins
vegar í hávegum...
„Bertie hefur eins konar segul-
aiagn í sér, kraft, sem ég kann ekki
að skýra. Hann ber þetta ekki utan
a sér. Hvemig get ég skýrt þetta?
Bertie og Alys, fyrsta
eiginkonan, á
brúðkaupsdaginn.
Þetta tindrandi augnaráð, ef til
vill...”
Það er lafði Ottoline Morrell, sem
skrifar þetta vinkonu sinni. Russell
hafði hitt lafði Ottoline árið 1910,
þegar hann reyndi að hjálpa
eiginmanni hennar í kosningabar-
áttu. Árið eftir vom Ottoline og
Bertieóaðskiljanleg. Það virtist svo,
sem lafðin vildi allt fyrir hann gera,
nema skilja við eiginmann sinn. I
stað þess varð þetta stórbrotinn
ástarvinskapur, sem entist alla ævi.
„0, við skulum hlaupast á brott
til suðurlanda, þangað sem við
getum lifað bara hvort fyrir annað
og aldrei hugsað um annað en
fegurðina,” skrifaði hann henni
1912. En því miður, Ottoline vildi
ekki særa eiginmanninn. Það er
furðulegt, að Russell, sem hataði
Iygi og leitaði alltaf sannleikans,
skyldi oft þurfa að ljúga að vinum
sínum, þegar hann fór eitthvað með
Ottoline og þau dvöldu kannski á
einhverju sveitahóteli yfir helgi.
„ÞANN DAG URÐUM VIÐ
DÓRA ELSKENDUR... ”
Hann sagði Ottoline samt aldrei
ósatt. Henni sagði hann frá nýjum
kunningsskap, nýjum ástkonum og
ástasigrúm. Árið 1920 hitti hann þá
konu, sem ekki hafði persónuleg
áhrif á hann, heldur líka á feril hans
sem hugsjónamanns og rithöfund-
ar. Dóra Black var bæði gáfuð og
eftirsóknarverð. Hún hitti Bertie
hjá sameiginlegum vinum þeirra,
sem áttu búgarð við ströndina.
„Við syntum, lágum í sólinni,
töluðum um heimspeki og listir,”
skrifaði hann Ottoline. „Þennan
dag var hlýtt og fagurt veður, og ég
tel það góðs viti. Þann dag urðum
við Dóra elskendur... ”
Ári seinna giftu þau sig, og nú
var eins og ný veröld opnaðist fyrir
Russell. Hann var fimmtugur að
aldri og varð nú faðir í fyrsta skipti.
Uppeldi barnanna tók hann svo
alvarlega, að þau Dóra komu á fót
einkaskóla, sem þau ráku í mörg ár
og var seinna notaður til fyrir-
myndar við endurskipulagningu
breska skólakerfisins. Þetta voru
erfið ár og lítið af peningum —
hlutur Berties af fjölskylduauðæf-
unum var orðinn harla smár — en
þau unnu saman og trúðu á það,
sem þau voru að gera.
En þótt þau væru „fordóma-
laus,” lá hættan í leyni. Bertie og
Dóra voru sammála um, að þau
gætu haftástasambönd út á við af og
til, en þegar Dóra tilkynnti, að hún
ætti von á barni með öðrum, fannst
Baertie of langt gengið, þótt hann
jafnaði sig brátt á því. Þegar sagan
endurtók sig, fékk Bertie nóg og fór
fram á skilnað. Gamli aðalsmaður-
inn í honum varð fyrir alvarlegu
áfalli, þegar hann komst að raun
um, að barn, sem hann var ekki
faðir að, var skráð með hans nafni í
ættarskrána!
GÖMUL LJÓN ÖSKRA HÆST
Næstu árin dvaldi Russell erlend-
is. Þegár ófriðarblikur voru aftur á
lofti, þótti England ekki heppilegur
staður fyrir gamlan friðarsinna.
Hann tryggði sér kennaraembætti í
Bandaríkjunum og fluttist þangað
með konu sína, því Bertie var að
sjálfsögðu giftur aftur. Hann var
orðinn sjötugur, en eiginkonan nýja
aðeins 25 ára.,, Ef til vill óska ég eftir
dálítilli staðfestu á ný,” skrifaði
hann vini sínum. „Fyrir utan það,
að gömul ljón öskra hæst...”
Hinn aldni heimspekingur með
hvíta Ijónsmakkann og unga lag-
lega konan hans sáust oft á ferli í
bandariska háskólabænum Harvard.
Einstein, sem var vinur Russells,
hafði stuðlað að komu hans til
Bandaríkjanna, en dvölin þar hafði
erfiðleika í för með sér. Ásamt
Russell og hin unga eiginkona hans,
Patricia, ásamt syni þeirra Conrad.
Myndin er tekin í Bandarikjunum á
striðsárunum.
Lávarðurinn og lafði Russell fyrír utan réttarsalinn,
þegar Russell var dæmdur í fangelsi fyrir mót-
mælaaðgerðir nær nirœður að aldri.
6. TBL.VIKAN 51