Vikan - 09.03.1978, Blaðsíða 5
Þetta húsgagn sló í gegn á
húsgagnasýningu í Danmörku
vegna einfaldleika og hagkvæmni.
Hægt er að hækka og lækka skrif-
púltið eftir því hvort þú vilt sitja við
það eða standa. Þetta er ekki dýrt
húsgagn, kostar um 17.500 kr.
Það getur oft verið erfitt að fá
skrúfur til að sitja fastar þrátt fyrir
tappa og annað slíkt. en gott er að
taka skrúfu af sömu gerð og er í
holunni, klípa framan af gengjuna
og setja hana öfuga í gatið og
skrúfa síðan fyrri skrúfuna á sinn
stað aftur.
Ergilegt er það oft, er maður ætlar
að ná í eitthvað í frystiholfið í ís-
skápnum, að allt er fast við hólfið.
Gott ráð er að setja álpappír á
botninn, og er þá allt laust.
I stofu, sem ekki er allt of flott
innréttuð er ágætt að skrúfa
trélista á veggina (með ca 5 sm
loftrúmi). Bakvið má hafa
snúru til að hengja á myndir og
nota til þess venjulegar þvotta-
klemmur. Einnig er tilvalið að-
hafa færanlega klemmulampa
á trélistanum.
Þetta fatahengi er einfalt en
stílhreint. Höfundurinn er
ítalskur. Fatahengið er úr
úrvalsviði og alldýrt, kostar í
Danmörku liðlega 25 þúsund
krónur.
STÓRA NAFNIÐ í GERÐ SJÓNVARPSLEIKTÆKJA
Leiktu sjálfur BINATONE
ogþú veröur súperstjarna
ARMULA 38 (Selmúla megin) - 105 REYKJAVÍK
SÍMAR: 31133 - 83177 PÓSTHÓLF 1366
Kdaíöoæf