Vikan - 09.03.1978, Blaðsíða 40
STJÖRIMIJSPÁ
llniiurinn 2l.mars 20.;i;»ril
Þú verður upptekinn
heima fyrir, fyrri
hluta vikunnar, við
verkefni, sem þú
hélst þú myndir
sleppa við að
framkvæma. Þegar
þeim er lokið,
geturðu slappað vel
af.
kr.-'hhinn 22..jiini 2J. jiili
Hugboð, sem þú
hafðir í sambandi við
ástarævintýri, mun
reynast laukrétt. Þú
verður fyrir
skemmtilegri reynslu
á laugardagskvöldið
og á það kvöld eftir
að verða þér eftir-
minnilegt.
NiiuliA 21. ijiril 2l.mai
Þú ert með ráðagerð
að ljúka ákveðnu
verkefni, en ættir
heldur að draga það
aðeins, þar sem hlut-
irnir virðast ekki
liggja alveg ljóst
fyrir.
l.jóniO 24. jtilí 24. ii>ii«l
Farðu varlega í
sakirnar, ef einhver
biður þig að gera sér
greiða, því ekki er
allt gull, sem glóir.
Sennilega er verið að
beita þig einhverjum
bellibrögðum. Farðu
að öllu með gát.
T\ihurarnir 22.mai 2l.júni
Kunningi þinn er á
leiðinni í langferð, og
leggst sú ferð
eitthvað illa í þig.
Sennilega stafar það
aðeins af eftirsjá, og
kannski ættirðu bara
að bregða þér með?
Ef þú hyggst taka
upp nýtt
tómstundagaman, er
tilvalið að byrja á því
í þessari viku. Þú
munt eignast nýja
vini, sem eiga eftir
að reynast þér vel.
Happatala er3.
\iii*in 2I.\l-|>(. 2.\.oki.
Slinrútlrckinn 24.okl. 2.Vuo\. Roi{milAurinn 24.nn\. 2Uk\.
Þú verður fyrir
einkennilegu atviki,
er þú kynnir tvo
kunningja þina
hvom fyrir öðrum og
kemst að því, að þeir
þekktust endur fyrir
löngu. Samt munu
þessir endurfundir
leiða gott af sér.
Slcingcitin 22.dc\. 20. j;»n.
Þér er fyrir bestu áð
vera vel úthvildur,
þvi nokkuð óvæntir
atburðir munu eiga
sér stað. Fátt fer eins
og þú hafðir ætlað í
þessari viku, og
ættirðu að dvelja
sem mest heima við.
Þér er óhætt að fara
að gera ráðstafanir
fyrir framtíðina —
og þér er lika óhætt
að gera ráð fyrir
breytingum, sem þig
hafði reyndar órað
fyrir lengi.
\;ilnshcrinn 2l.j;in. lú.fchr.
Þú átt von á aðdáun
annarra, úr dálítið
óvenjulegri átt.
Búðu þig undir
sviksemi einhvers,
sem þú áttir síst
von á, að mundi
bregðastþér. Þessi
svik munu fá mikið á
þig-
Þú verður að segja
álit þitt á ákveðnum
hlutum, því ef þú
þegir, verður það
lagt út á verri veg.
Reyndu að hafa meiri
tíma fyrir sjálfan þig
og hugsa ekki um
aðra.
I iskarnir 20.fchr. 20.m;ir\
Þú verður dreginn
inn i mál, sem verður
þér fremur ógeðfellt.
Segðu meiningu þina
afdráttarlaust, og þá
mun allt fara vel að
lokum. Þú færð
óvænt sendibréf.
því hvað mundi gerast á næstu
sekúndum, og hún gat ekki hreyft
sig. Áður en Tim kæmi auga á
hana, yrði hún að geta lesið úr
andliti hans hvort hann hefði tapað
eða unnið... og síðan að efla með sér
styrk, ef nauðsyn bar til, til að vera
sá trausti klettur, er hann gæti
hallað sér að.
Þegar hún kom auga á hann,
sortnaði henni fyrir augum. Er
sjónin skýrðist smám saman aftur
greindi hún kraftalegt vaxtarlag
hans undir frakkanum, sem hann
hafði fengið, áður en þau giftu sig.
Axlir hans voru beinar og sterkleg-
ar, og það veitti henni hugrekki til
að líta ofar. Andlit hans var stillt og
staðfestulegt enda þótt það væri
laust við öll gleðilæti. Hún þaut á
fætur og hentist beint í fang hans.
Heitar varir hans mættu köldum
vörum hennar. „Þarna ertu loksins.
Eitt augnablik hélt ég, að eitthvað
hefði komið fyrir.”
„Segðu mér allt,” hvíslaði hún.
„Allt er í stakasta lagi,” sagði
hann varfæmislega. „Eða öllu
heldur ég held að svo verði. Komum
okkur inn í bilinn, svo þú frjósir
ekki úr kulda, og ég skal segja þér
frá þvi, sem gerðist. Það er lítils-
háttar vandamál, en ég vona, að
það fari ekki á verri veg.
EGAR hann var sestur undir
stýri, hélt hann áfram: „Það er
Milli vonar
og ótta
augljóst, að það er frú Hakner, sem
er sérfræðingur í nútimalist, og
Cyrus X. krefst þess að fá að ræða
við hana um þetta, áður en hann
tekur ákvörðun. Hann keypti fyrstu
myndina upp á eigin spýtur, vegna
þess að hún var ódýr og honum
fannst hún athyglisverð, en hún er
ekki búin að sjá hana ennþá, svo
hann getur ekki sagt til um það
sjálfur, hvort þær fái að hanga upp
safninu. Hún á að koma frá París í
kvöld, og ég á stefnumót við þau á
hádegi á morgun. Ef frúin sam-
þykkir, þá býst hann við að kaupa
þrjár.”
Hann sendi henni glettnisbros,
sem gerði andlit hans ungt og
kringluleitt, eins og Robins, áður en
hann bætti við: „Og það á ekki að
hanga heima í stofu hjá þeim,
heldur i Haknerslistaverkasafninu,
sem hann er að byggja í Texas. Þú
myndir ekki trúa mér, ef ég segði
þér nöfnin á þeim listamönnum,
sem þau hafa keypt málverk af. Þeir
eru ósviknir sjálfmenntaðir sér-
fræðingar, ekki hópur af ríkum sér-
vitringum.”
Canon
Ef þér kaupið Canon-
vasavél, þá er ekki
tjaldað til einnar nætur.
Fjölbreytt úrval
af Canon
vasavélum,
til
fermingargjafa.
Sendum
í póstkröfu.
Einkaumboð,
varahlutir, ábyrgð og þjónusta.
Skrifvélin
Suðuriandsbraut 12, sími 85277.
40 VIKAN 10. TBL.