Vikan - 09.03.1978, Síða 7
ÞÚSEMÁTT VONÁBARNI!
Þú verður að læra að umgangast
stóra magann þinn, þegar þú ert
komin langt á leið með barnið
þitt. Sennilegast er tímabilið 7.
—8. mánuður óþægilegastur
vegna þess að barnið er enn svo
ofarlega.
Þessi slökunaræfing eða stell-
ing er alveg upplögð fyrir
þreyttan líkamann. Hryggurinn
er frjáls, og það er gott pláss fyrir
barnið. Þar að auki er ekki þung-
inn á fótunum, þegar þú leggst á
hné og styður höndunum undir
höfuðið.
STRINDBERG
EKKI
KVENHA TARI?
Ef til vill var Strindberg ekki eins
mikill kvennhatari og haldið hefir
verið fram. Fyrir um 100 árum
háði hann — kannski sem einn
af fyrstu karlmönnunum —
baráttu fyrir jafnrétti kynjana.
Eftir honum er þetta haft:
Litlusystur á ekki að venja á að
þjóna og sauma fatnað á litla-
bróður, því það á litlibróðir
sjálfur að læra. Og litlibróðir á
ekki að skipa litlusystur að búa
um rúmið hans og laga til í
herberginu hans, eins og þjón-
ustustúlka, því líka það á hann
að læra að gera sjálfur....
BLÓMÍHÁR/Ð
1. Einföld greiðsla, sem þú
getur jafnvel gert sjálf. Hárið er
burstað aftur, snúið dálítið upp á
og beygt inn að aftan, fest með
hárnálum. Blómum stungið í.
2. Með permanent og miklar
krullur, sem fer ungum stúlkum
sérlega vel. Lítið þarf að hafa
fyrir þessari greiðslu, aðeins þvo
hárið og þurrka með infrarauðu
Ijósi. Tilbreyting: Blóm í hárið.
Með tímanum sér maður eftir
öllum sínum syndum, og líka
þeim, sem maður aldrei drýgði...
Birgitte Bardot.
HVORTER
FAÐ/R/NNP
Hér er David Bowie enski popp-
söngvarinn og kona hans Angela
á göngu með nýfæddan soninn.
Zowie litli, eins og barnið
heitir, er aðeins fárra mánaða
gamall og er ekki enn búinn að
ná þeim aldri, þegar barnið fer
að horfa gagnrýnum augum á
foreldrana.
En þeir, sem mættu þeim
þarna á sunnudagsgöngunni,
sneru sér flestir við því stjarnan
Bowie er mjög hrifinn af
barðastórum höttum og lausum
fatnaði, en Angela mamma kýs
stutt hár og þröngar buxur,
girtar ofan í stígvélin. Það er því
pabbinn, sem í þetta sinn ekur
barnavagninum.
10. TBL.VIKAN 7