Vikan - 09.03.1978, Page 43
leyfð hlutdeiid í okkar raikla
leyndarmáli. Alltaf lærir maður
eitthvað nýtt.”
„Ég veit ekki ennþá, hver þú ert,
eða hvað þú ert að gera í þessu húsi.
Viltu gjöra svo vel og segja mér
það...strax.”
Hann svaraði með kæruleysi,
sem jók enn á geðshræringu
hennar: „Hvað ég er að gera? Því er
auðsvarað. Ég kom hingað til þess
að hitta Tim og kynnast konu hans,
Lucy, og syni hans Robin.”
„Tim er ekki heima.”
„Satt er það. En þar sem hann
skildi bílinn eftir á lestarstöðinni,
þá hefur hann liklegast ætlað sér að
koma aftur heim í kvöld. Fæ ég ef
til vill leyfi til þess að bíða eftir
honum? Eða hefur þú hugsað þér að
reka mig út, og láta mig bíða úti í
rigningunni?”
„Þú getur fengið að vera, með
einu skilyrði þó, að þú segir mér,
hver þú ert. Ef þú gerir það ekki,
getur þú farið.”
Aður en hann svaraði, virti hann
hana fyrir sér frá hvirfli til ilja.
Henni fannst sem hann sæi í
gegnum fötin, og það gerði það að
verkum, að hver taug hennar
spenntist í mótmælaskyni. Þá hló
hann stuttlega. „Allt í lagi, Lucy.
Ég skal seðja forvitni þina. Ég er
Bernhard Hunt. Eldri bróðir Tims,
og reyndar eini bróðir hans.”
Hún sagði ákveðið: „Ég trúi þér
ekki.”
„Það er þitt einkamál,” sagði
hann, án þess að reiðast. „Ég er
hræddur um, að þú verðir að skipta
um skoðun. Þegar Tim kemur heim,
mun hann veita nauðsynlegar
upplýsingar. Framhald í næsta blaði
ADAMl
FERMINGARSKAPI
Lee Cooper fot
ú
LAUGAVEGI47
Föt frá Sólídó og Lee Cooper
jakki og Adamson terelyne buxur
Föt frá Sólídó
BANKASTRÆTI 7
Nú fara fermingar í hönd.
í Adatn er úrvál femtingatfaínaðar
á skaplegu verbi, tn.a.:
Lee Cooper flauelsföt
Stakir Lee Cooper flauelsjakkar
Stakar Lee Cooper flauelsbuxur
Stakar terelyne buxur frá Adamson
Flauelsföt frá Sóltdó
Skyrtur með axlaspælutn
Úrval af slaufum (m.a. iír sama
efni og t sama lit og fötin)
BÓK 1 BLAÐFORMI flf
1488 síður af fjölbreyttu lesefni fyrir aðeins 6.000,- kr. á éri.
Já. Úrval er bók í blaðformi.
10. TBL. VIKAN 43