Vikan - 09.03.1978, Page 45
eftir K. Arne Blom.
Vinirnir Berg og Dahl voru vanir að
hittast tvisvar í viku, þeir voru fyrr-
verandi lögregluþjónar á eftirlaunum.
Atvikin haga því svo, að þeir taka til
starfa á eigin vegu', en ekki virðast
þeir hafa árangur, sem erfiði.
— Hún hlýtur að vera drukkin,
sagði Dahl. — Hver er hún.
— Sonja Linder. Hún var
nágranni okkar um tíma. Síðan
keyptu þau hjónin hús í Limhamn.
Maður hennar á litla húgagna-
verksmiðju einhvers staðar utan við
Malmö.
Hún var falleg og vel til höfð.
Ljóst hárið var stuttklippt. Hún
var í þröngri peysu, og jakkinn lá
yfir axlimar. Hún bar giftingar-
hring og auk þess íburðarmikinn
hring. Hún var nokkuð mikið
máluð, og augnsvertan hafði smit-
ast út kringum augun. Hún beit
stöðugt í neðri vörina og fiktaði við
eldlausan vindling.
— Kannski er hún veik, sagði
Dahl.
— Humm.
— Fyrst þú þekkir hana, því
ferðu þá ekki og spyrð, hvað ami
að?
— Ég vil ekki vera uppáþrengj-
andi. Á ég leik?
— Já, og ef þú gætir þín ekki, þá
máta ég þig.
— Það er víst rétt hjá þér...
Berg veifaði til vinar síns í Kaup-
mannahöfn og horfði á eftir honum,
þangað til hann hvarf. Svo fór hann
með sömu ferju heim til Malmö.
Hann keypti vindlinga í sölubúðinni
og stóran konfektkassa. Hann vildi
blíðka Lísbet. Svo settist hann við
gluggaborð í salnum.
Hann litaðist um. Hún sat þama
ennþá og grét. Hann nuddaði á sér
hökuna vandræðalega, svo yppti
hann öxlum og stóð upp. Hann
hikaði aðeins og gekk svo að
borðinu hennar.
Hann kingdi og ræskti sig
vandræðalega.
— Halló, sagði hann. — Má ég
tylla mér niður?
Hún leit undrandi upp, reyndi að
koma honum fyrir sig.
— Fyrirgefðu, ég...
— Ég sagði bara halló.
— Þekkjumst við?
— Er þetta ekki Sonja?
— Jú....
— Sveinn.... Sveinn Berg. Við
vomm grannar, áður en þið
hjónin....
— Sveinn! Já, auðvitað, nei sæll
og blessaður!
Hún virtist sannarlega glaðlegri
núna.
— Tylltu þér!
Hann kinkaði kolli og settist.
Hann vissi ekki, hvað hann átti að
segja og fannst hann hálfgerður
klaufi.
— Og... og... hvernig gengur
lífið, hvemig er í Limhamn?
— Jú.....jú takk. Það gengur...
ÞáU SPJÖLLUÐU saman
góða stund. Fyrir utanaðkomandi
gat allt virst eðlilegt, en hann fann,
að eitthvað var öðmvísi en áður.
Meðan þau vom nágrannar, höfðu
þau oft spjallað saman, og hún
hafði alltaf verið svo hress og kát.
En nú var hún þvinguð og fáorð og
vantaði alveg glettnina i svipinn.
í rauninni höfðu þau ekki þekkst
mjög náið. En þau Lísbet höfðu af
og til boðið upp á kaffi og koniaks-
glas í garðinum og Sonja og maður
hennar endurgoldið það. Þau höfðu
verið góðir nágrannar, nágrannar,
sem umgengust svolítið við og við.
En eiginlega vissu þau ekki mikið
hvert um annað. Að vísu vissu allir
í hverfinu, að Berg var lögreglu-
þjónn.
— Jæja, svo þú hefur verið að
skreppa til Kaupmannahafnar,
sagði hún allt i einu. — í embættis-
erindum kannski?
Hann hristi höfuðið og andvarp-
aði.
— Nei, sagði hann. — Ég er
kominn yfir aldursmörkin. Það er
allt búið núna.
- Hvað?
— Eg er kominn á eftirlaun.
— Vesalings þú, sagði hún. —
Hvemig er það?
Hann talaði um það — í tuttugu
minútur.
— En þú þá? spurði hann síðan.
- Ja...
— Já, þú verður að fyrirgefa... ég
fór yfir með ferjunni áðan. Ég sat
þama fyrir handan og komst ekki
hjá því að sjá, að þú...
Og nú rann það upp fyrir honum,
að konan var dmkkin, fyrst núna.
Samhengislaust tal hennar helgað-
ist af þvi að hún var drakkin,
flöktandi augnaráð, fliss og vand-
ræðaleg viðbrögð.
En nú var eins og hún hefði
hamskipti. Skyndilega varð hún
óeðlilega allsgáð!
— Sást hvað, spurði hún hörku-
lega.
— Að þú grést, sagði hann lágt.
Hún kipptist til, kerrti hnakkann
og setti upp svip.
— Vitleysa!
— Já, en ég...
— Það kemur mér alla vega einni
við ef svo var.
— Já, en ég vildi bara....
— Það kemur a.m.k. ekki lög-
reglunni við
— Ég er ekki lögreglumaður
lengur.
— Þá hefur þú alls ekkert með
þetta að gera!
— En ég...
— Hafðu mig afsakaða.
Hún stóð upp. Hann horfði á eftir
henni, hún gekk reikul í spori út úr
salnum. Tíu mínútum siðar sá hann
hana aftur. Þá sat hún hinum megin
í salnum með öl og snaps. Hann lét
hana í friði. En hann hafði
auga með henni, þegar
hún fór í land, og sá,
10. TBL.VIKAN 45