Vikan


Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 7

Vikan - 28.12.1978, Blaðsíða 7
honum þó fannst hálfgert hann hafa séð áður. Hann sá hins vegar ekki greinilega því einkennileg rökkurmóða hvíldi yfir öllu. Eigi að síður varð hann snortinn af þeim friði og ró sem honum fannst umlykja sig. Hann mundi greinilega hvað hafði gerst og þóttist vita með vissu að hann væri kominn í annan heim. Átti þetta þá að vera framtíðardvalarstaður hans? Hann var að vísu ekki beint óánægður með hann, en hefði þó kosið að hann hefði verið bjartari. En hann komst að þeirri niðurstöðu að sennilega hefði hann ekki búið sér bjartari vistarveru með verkum sínum á jörðinni og hlyti því að taka afleiðingum þess. Kannski kynni hann að læra eitthvað af því sem hann kynni að hafa vanrækt. Nú settist hann niður í græna, grasi- vaxna laut og fór að hugsa um liðna tímann. En hann fékk brátt annað um að hugsa. Yndislegur hljóðfærasláttur barst að eyrum hans, fegurri og unaðslegri en hann hafði nokkru sinni heyrt. Það var eins og með tónunum bærist ósegjanlegur fögnuður og friður inn í sál hans. Hann gleymdi rökkurhúminu umhverfis og fylltist fögnuði yfir því einu að lifa. En svo dóu tónarnir út smám saman og allt varð sem fyrr. Þá fannst honum allt i einu hann heyra óm af mannamáli rétt hjá sér, en sá engan. Hann spratt því á fætur og kallaði: „Er- nokkur þarna?” „Bróðir og vinur í andanum,” heyrði hann þá sagt við hlið sér ástúðlegri röddu og sá hann nú að ákaflega elskuleg vera stóð hjá honum og sagði við hann: „Finnast þér ekki móttökurnar dálítið einkennilegar sem við veitum þér, vegmóðum gesti. Þó þú hafir ekki séð okk- ur höfum við engu að síður fylgst með hverju fótmáli þínu síðan þú lagðir af stað og skynjað hugsanir þínar. Þér hefur tekist ferðalagið vel og verið fljótur að átta þig á öllu.” Svo rétti hann Einari hönd sína, en um leið og þeir tókust í hendur var eins og rökkurmóðan hyrfi í einu vetfangi. Sá Einar nú kringum sig skrúðgrænar hlíðar, spegiltær stöðuvötn, laufgræna skóga og sólglitaða fjallatinda, glitrandi blóm og angandi rósir. Hann teygaði þessa fegurð í sig i orðvana nautn. Þá sagði þessi vera við hann: „Samt ertu ennþá einungis í útjaðri paradísar. Nú skulum við ganga uppá hæðina, svo þú getir notið útsýnisins betur og tekið skýrari mynd af því með þér inn í jarðlífsvitund þína, af landinu sem þú átt að segja öðrum frá, en svo margir kvíða að hverfa til. Laðaðu þessa mynd fram í huga þínum, festu þér vel í minni það sem þér kann ennfremur að verða sagt áður en þú hverfur héðan. Notfærðu þér fengna þekkingu, kunni leið þín og einhverra samferðamanna þinna að liggja um öræfa- auðnir þjáninganna einhvern tíma síðar.” Þessu svaraði Einar með því að benda á að jarðlifsgöngu sinni væri nú lokið. En förunautur hans sagði þá: „Nei, þú ert hér aðeins sem gestur örfá augnablik.” 52. tbl. Vlkan 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.