Vikan - 28.12.1978, Page 31
Diddú og Egill eru löngu orðin alþjóð
kunn, enda óhætt að segja, að þau
standi í fremstu röð sem túlkendur á
tónlistarsviðinu. Einnig munu þau hafa
átt sinn stóra þátt í samningu þess, sem
þau hafa flutt, einkum þó Egill.
Egill Ólafsson er fæddur í Reykjavík
9. febrúar 1953 (vatnsberi) og hefur alið
allan aldur sinn á höfuðborgarsvæðinu.
Hans tónlistarferill byrjaði fyrir alvöru,
þegar hann gekk í lið með Stuðmönnum
1974, en sú hljómsveit var stofnuð af
Valgeiri Guðjónssyni, Jakobi
Magnússyni, Þórði Árnasyni og
Ragnari Daníelssyni 1971. Hann var
síðan einn af stofnendum Spilverksins,
ásamt Valgeiri Guðjónssyni og Sigurði
Bjólu en það byrjaði sem
skólahljómsveit í Menntaskólanum við
Hamrahlíð 1972. Nafnið, Spilverk
þjóðanna, var fyrst notað í mars 1975,
en það ár kom einmitt út fyrsta plata
þeirra og hét hún Spilverk þjóðanna.
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) söng
lítils háttar á þeirri plötu, en gekk síðan
endanlega í lið með þeim í september
sama ár.
Diddú er fædd 8. ágúst 1955 (ljón) í
Reykjavík. Vinsældir hennar sem
söngkonu eru gífurlegar, eins og best
kom í ljós i Vinsældavali Vikunnar og
Dagblaðsins, þar sem hún var kosin
söngkona ársins 1978. Óhætt er að
halda því fram, að Spilverkið hafi
bókstaflega átt þær kosningar. Það var
kosið hljómsveit ársins, það átti plötu
ársins og lag ársins og var í öðru sæti
með lagasmið ársins, söngvara ársins og
textasmið ársins.
Og nú er þessu samstarfi þeirra lokið,
að minnsta kosti í bili. Egill Ólafsson
hvarf fyrstur á braut og stofnaði ásamt
fleirum Þursaflokkinn (Vikan 50. tbl.)
og Diddú stundar söngnám i London.
Þau hafa ekki þó gefið hvort annað
alveg upp á bátinn, því nú er nýútkomin
plata með þeim tveimur, Þegar
mamma var ung. Við vonum öll, að við
eigum von á meira af slíku í framtíðinni.
52. tbl. Vikan 32