Vikan


Vikan - 28.12.1978, Side 47

Vikan - 28.12.1978, Side 47
sækja hana. Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið. Tuttugu og fjórum tímum seinna hringdi frúin, sem heldur jaetta samkvæmi, til min og sagði, að hún hefði heyrt, að mágkona mín væri i London. Hún væri alveg einstök kona og vildi ég gera henni þann greiða að bjóða henni i mat, svo að hún gæti hitt hana. Þessi kona hefur óskeikula eðlis- ávísun. Innan mánaðar var Jane á hvers manns vörum. Ég er hérna i kvöld, ekki vegna þess að ég hef þekkt þessa frú í 20 ár og boðið henni hundrað sinnum heim, heldur vegna þess að ég er mág- kona Jane.” Vesalings frú Tower. Aðstaða hennar var mjög særandi og þó að ég gæti ekki varist þvi að hafa gaman af þessu. þá fann ég að hún átti samúð mina skilið þvi að aðstaða hennar var mjög breytt til hins verra. „Fólk getur ekki staðist þá, sem koma því til að hlæja,” sagði ég til þess að reyna að hughreysta hana. „Aldrei fær hún mig til að hlæja." Aftur heyrðist skellihlátur frá hinum enda borðsins og ég bjóst við að Jane hefði sagt einhverja fyndni. „Ætlarðu að segja mér, að þú sért eina manneskjan sem finnst hún ekki fyndin?” spurði ég brosandi. „Tókst þú eftir því, að hún væri gamansöm?” „Nei, ég verð að játa að ég gerði það ekki.” „Hún segir bara það sama og hún hefur sagt síðustu 35 árin. Og ég hlæ þegar ég sé að allir aðrir gera það, því að ég kæri mig ekki um að sýnast algjör auli. En mér er ekki skemmt." „Likt og Viktoría drottning,” sagði ég. Þetta var heimskulegt spaug og frú Tower hafði á réttu að standa, þegar hún lél það hvatvislega i ljós. Ég reyndi aðbrjóta upp á öðru. „Er Gilbert hér?" spurði ég og leit yfir borðið. „Gilbert var boðið vegna þess að hún vill ekki fara i boð án hans, en i kvöld er hann i boði hjá arkitektafélaginu, eða hvað það nú heitir." „Ég er afar spenntur að endurnýja kunningsskap okkar.” „Farðu og talaðu við hana þegar staðið verður upp frá borðum, hún mun bjóða þér i þriðjudagsboðsitt." „Þriðjudagsboð?" „Hún tekur á móti gestum á þriðju- dagskvöldum. Þú munt hitta þar allt frægt fólk sem talað er um. Það eru bestu boðin i London. Hún hefur gert það á einu ári, sem mér hefur ekki tekist á 20árum.” „En það sem þú ert að segja frá er reglulegt kraftaverk. Hvernig hefur þetta gerst?” Frú Tower yppti sinum fögru, en feitu öxlum. „Mér þætti vænt um, ef þú gætir sagt mér það.” Eftir borðhaldið reyndi ég að nálgast sófann, þar sem Jane sat. En ég var stöðvaður og það var ekki fyrr en nokkru seinna. að húsmóðirin kom til min og sagði: „Ég verð að kynna þig fyrir stjömu kvöldsins. Þekkirðu Jane Napier? Hún er einstök. Hún er miklu fyndnari en gamanleikir þinir.” „Ég var leiddur að sófanum. Flotafor- inginn, sem setið hafði við hlið hennar við borðið, var enn hjá henni. Hann sýndi engin merki þess að fara. Jane heilsaði mér með handabandi og kynnti mig fyrir honum. „Þekkir þú sir Regin- ald Forbisher?" 52. tbl. Vikan 47

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.