Vikan - 10.07.1980, Blaðsíða 7
„Eg vissi ekki að Islendingar
væru svona vitlausir ..
— sagði Less Roger, bjórbmggari hjá Brasserie
IMational í Luxembourg, þegar hann heyrði að
bannað væri að drekka bjór á íslandi.
„Ég hef bruggað bjór í 35 ár
og veit þess vegna hvað ég
syng þegar ég segi að bjór sé
góður fyrir heilsuna, sannkallað
vítamín, sérstaklega ef hann er
drukkinn volgur. Kaldur bjór
getur aftur á móti verið
slæmur í maga, en góður samt
og tvímælalaust betri en eng-
inn.”
Það er ekki hægt annað en
trúa því sem Less Roger segir
um bjór, þvi það er ekki nóg
með það að hann hafi sjálfur
bruggað í 35 ár heldur var
faðir hans einnig bruggari frá
fimmtán ára aldri fram til ní-
ræðs og kenndi syni sinum list-
ina.
„Ég drekk að meðaltali 10
flöskur af volgum bjór dag
hvern,” heldur Less áfram, „en
hér höfum við á orði að fjórir
Less Koger, bjórgerdarmaður:
— Bjór er meðal sem heldur
lífinu í Evrópubúum.
Mynd Jim Smart.
bjórar séu á við einn brauð-
hleif. Því til sönnunar get ég
sagt sögu sem er dagsönn. Hún
er þannig að eitt sinn var
maður á leið yfir belgísku
landamærin og var stöðvaður af
vörðum sem vildu fá að vita
hvað hann væri eiginlega búinn
að drekka mikið.
— Drekka? svaraði maður-
inn að bragði. — Ég er bara
búinn með 8 kg af brauði.
Með það fór hann yfir landa-
mærin.
Hjá Brasserie National, þar
sem Less Roger vinnur, er
tappað á 80 þúsund flöskur á
klukkustund og allt selt jafn-
óðum.
„Ef kæmi pöntun frá íslend-
ingum þá skyldi hún hafa al-
geran forgang því þjóðinni
hlýtur að liða illa í bjórleysinu.
Eiginlega alveg furðulegt að
hún skuli ekki vera löngu út-
dauð. Bjór er meðal sem heldur
lífinu í flestum Evrópubúum.
Bannað að drekka bjór! Þú
segir mér fréttir!”
E.J.
28. tbl. Vikan 7