Vikan


Vikan - 10.07.1980, Qupperneq 10

Vikan - 10.07.1980, Qupperneq 10
Luxembourg Valgeir Sigurðsson er ekki nema rétt liðlega þrítugur en hefur þó sl. 4 ár rekið veitingastaðinn Loch Ness i Luxem- bourg, ásamt félaga sínum, við miklar vinsældir. Sá staður sérhæfði sig í mat þeim sem kallaður er „Kentucky Fried Chicken” i Ameríku og runnu kjúkling- arnir hans Valgeirs jafnvel ofan í Lux- emborgara og þeir hafa runnið ofan í Bandaríkjamenn í áraraðir. En Valgeir söðlaði um þegar leikurinn stóð sem hæst, seldi staðinn og tækin fóru heim til Islands þar sem þau nú grilla kjúklinga og kartöflur í veitingastaðnum Nessy i Reykjavík. Sá staður mun vera nokkuð likur því sem Loch Ness var í Luxem- bourg. Enda nafnið þaðsama. Valgeir er nú að opna annan stað í allt öðrum stil í hjarta Luxembourgar. Sá mun bera nafnið ,,The Cockpit-lnn” sem á íslensku mundi þýðast: Flugstjórnar- klefakráin. Staðurinn ber nafn með rentu því kráin er innréttuð nánast eins og flugstjórnarklefi i flugvél, gestir sitja við barinn i flugstjórasætum, hæðar- og þrýstingsmælar upp um alla veggi, bjór- inn streymir úr stjórntækjum flugvélar og svo geta gestir gripið í sveigjanleg flugvélastýri þegar þeir lenda í niður- streymi og fara að rugga — likt og gerist á góðum krám. En „The Cockpit-Inn" er meira en bara krá. Þar er einnig mat- salur fyrir 100 manns, innréttaður eins og matsalir voru í skipum hér á árum áður og svo eru 8 hótelherbergi á efri hæðinni. Fínt skal það vera — „allt fyrsta flokks nema verðið sem er aðeins skynsamlegt," svo notuð séu orð Val- geirs sjálfs. Risaeldhús, 28 klósett og neyð- ardyr á hverjum vegg! „Það er ekki hægt að likja þvi saman að reka veitingahús hér eða þá heima á Islandi." segir Valgeir. „Á meðan lög- reglustjóraembættið og heilbrigðiseftir- litið heima eru að vasast ofan i öllu með reglugerðir sinar þá er nær útilokað að veitingahúsdæmi gangi upp nema þá með einhverjum heljarmiklum iburði, margra metra lofthæð i eldhúsum, 28 klósettum og neyðarútgöngum á hverjum vegg. Hvað halda eiginlega mennirnir að matsala sé? Á fjögurra ára ferli minum sem veitinga- maður i Luxembourg hef ég aldrei orðið var við neitt eftirlit nema hvað einú sinni kom það fyrir að ferðaskrifstofa við hliðina á okkur kvartaði yfir því að lykt af frönskum kartöflum bærist inn til þeirra í vissri vindátt. Við björguðum því vandamáli með einum smástrompi. Ef þetta hefði komið fyrir veitingamann i Reykjavík hefði hann líklega verið lög- sóttur, misst veitingaleyfið og líf hans lagt i rúst. Nei — þetta eru kannski ýkjur. . . en svona er stefnan á Íslandi. Annað sem gerir veitingarekstur auð- veldari í Luxembourg er að hér erum við ekki með stéttarfélög eins og þau þekkj- ast heima og það er mikill kostur að þurfa t.d. ekki að vera með þjónamafí- una á bakinu allt árið. Til mín ræð ég fólk sem kann til verka, þjálfa það upp í að matreiða matseðil minn og svo er bara unnið og allir eru ánægðir. Svo má líka nefna „smáatriði” eins og að þegar maður gerir viðskiptasamning við bjór- fyrirtæki þá sér það um að kosta og koma öllum tækjum fyrir, s.s. bjórdæl- um, vöskum, flísum og svo fær maður fyrstu sendinguna fría. Þessari þjónustu fylgja engar kvaðir nema þær að hafa eingöngu bjórinn þeirra á boðstólum — og það er allt i lagi ef bjórinn er góður á annaðborð.” Talandi um borð, bjór og bari þá er barborðið í „Cockpit-Inn” kránni afar sérstætt. I stað þess að nota glerplötu eða lakkaðan við i plötuna þá hefur Val- geir raðað tiu-króna mynt á borðið og verður úr einn skinandi bar. 600 tíkalla þurfti i plötuna og er hún fyrir bragðið langtum ódýrari en nokkurt annað borð á markaðnum. Auk þess minnir það óneitanlega á lsland. „Nei, ég hef engan áhuga á að flytja heim við óbreyttar aðstæður," segir Val- geir með áherslu, „en ég myndi skipta um skoðun ef þeir leyfðu bjórinn. Bjór- krár eru nefnilega min sérgrein og ég myndi rjúka upp til handa og fóta og opna eina slíka í Reykjavik. Planið er alveg tilbúið, ég er meira að segja búinn að finna húsið. Að vísu er það norður á Siglufirði, þar sem ég er uppalinn, en það ætti að vera hægt að flytja það til höfuðborgarinnar og koma þvi fyrir á sæmilegum stað. Siðan myndi ég inn- rétta það eins og síldarplönin í gamla daga. Þá yrði nú aftur kátt á planinu.” í stað ríkismötu- neytanna gætu komið 150 nýir veitingastaðir í Reykjavík einni Valgeir er ekki svartsýnismaður eins og nærri má geta. Hann hefur trú á þvi að þau skilyrði geti skapast á íslandi að grundvöllur verði fyrir rekstri veitinga- ÍO ViKan 28. tbl.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.