Vikan - 10.07.1980, Page 15
Liggjandi eða stand-
andi klæðning
Margt getur ráðið því hvort menn
kjósa standandi eða .lárétta klæðingu.
Lárétt klæðning getur verið eitthvað
ódýrari þvi hún er negld beint á staur-
ana. Ef lóðrétt klæðning er valin þarf
fyrst að negla a.m.k. tvö borð lárétt til
að festa lóðréttu borðin við.
Viðkvæmasti hluti klæðningarinnar
er sá sem er næst jörðu. Ef skipta þarf
um borð er lárétt klæðning óneitanlega
hentugri, því þá er einfaldlega hægt að
fjarlægja neðsta borðið (eða borðin) og
setja nýtt. Ef lóðrétt klæðning er valin
getur þess vegna verið skynsamlegt að
hafa eitt lárétt borð neðst sem auðvelt er
aðskipta um.
Óheflað timbur
Hentugustu borð í lárétta klæðningu
á grindverki eru 4 tommu eða 5 tommu.
Þykktin er best 1 tomma eða ein og
kvart. Það fer eftir þvi hvað langt er
milli girðingarstaura. Venjulegast er að
hafa 2—2 1/2 metra á milli og þykkri
borð eru þá betri ef lengra er á milli. Ef
mála á girðinguna er best að hefla timbr-
ið en almennt má telja hentugast að
nota óheflað timbur sem borið er á. Ef
þú setur sjálfur upp girðinguna verð-
urðu að gera þér grein fyrir hvorum
megin þú ætlar að negla borðin.
Borðin vinda sig oftast, eftir þvi
hvernig þau eru söguð, og það er nauð-
synlegt að beina þeirri hliðinni út sem
virðist hafa tilhneigingu til að skjóta
kryppu út.
Munið að nota galv-
aniseraðan saum
(nagla úr ryðfriu stáli?)
Til að losna við ryðbletti á grindverk-
inu er nauðsynlegt að nota nagla úr ryð-
fríu stáli eða galvaniseruðu járni. í
tommu þykk borð er best að nota nagla
sem eru 2 1/2 tomma en 3 tommu nagla í
1 3/4 tommu þykk borð.
Þétt klæðning
Þessa gerð girðinga er auðveldast að
útfæra með láréttum borðum. Þau eru
öll negld sömu megin á staurana, ágæt
stærð borða er I x 5 af óhefluðu timbri.
Á milli er gott að hafa u.þ.b. 2 1/2 cm.
Ef menn vilja girða þéttar er hægt að
láta renna raufar í kantinn á borðunum
eða hafa fláa svo borðin falli vel saman.
Þá er klæðningin orðin nærri jafnþétt og
gólfklæðning. Eins ber þó að gæta, ef
þessi úrfærsla er valin, og það er að í
vætutið vill viðurinn þenjast út og þá
getur verið varasamt að hafa borðin of
þétt.
Lárétt klæðning
með bili á milli
Það getur verið nauðsynlegt að hafa
girðinguna þétta til að vera öruggur fyrir
forvitnum augum nábúans. En ef maður
vill halda kostnaðinum niðri er hægt að
hafa smábil milli borðanna, t.d. 2 1/2
cm.
Þegar dæmið er reiknað til enda
kemur í Ijós að á grindverki sem er 1.60
m á hæð þarf 4—5 borðum færra en ef
klæðningin er alveg þétt. Ef vafnings-
runnar eru látnir skríða upp eftir girð-
ingunni verður það enn fallegra ef bilið á
milli er látið vera ögn meira.
Ef girðingin er ætluð til skjóls er gróð-
urinn kostur en þó því aðeins að nái að
gusta í gegn.
Standandi
klæðning
Venjulegasta gerð standandi klæðn-
ingar er þannig að borðin eru negld á
misvíxl. Þá þarf að gæta þess að hafa
ekki of þykk borð því þá er hætt við að
það borðið sem er undir hverju sinni falli
í skuggann af þeim sem falla yfir. Ef
notuð eru jafnbreið borð myndast mis-
breiðar rendur. Ef neðra borðið er breið-
ara, t.d. 6 tommur. en það efra 4
tommur, lítur út sem rendurnar séu jafn-
breiðar.
Það sem hér hefur verið tínt til er
aðeins fátt eitt sem hægt er að gera til að
girða lóðina sína og leitast hefur verið
við að tina saman hagnýt ráð sem öllum
geta orðið að gagni. Sumum þykir
skemmtilegt að sjá girðingar úr grönn-
um bolum og jafnvel með berki á, en
þess konar girðingar þarf að hirða sér-
staklega vel vegna fúahættu. En oft þarf
alls ekki mikilla girðinga við, ef nokk-
urra. Og sumir vilja helst girða eingöngu
með limgerði eða annars konar trjá-
gróðri. Það er vel hægt en þó þurfa
plönturnar alltaf skjól til að byrja með.
Þær gerðir girðinga sem hér hefur verið
lögð áhersla á eru flestar heldur viða-
miklar og voru valdar því helst er leið-
beininga þörf ef lagt er út i mikil og
kostnaðarsöm mannvirki. En ekki má
gleyma heildarumhverfinu þegar girt er
og sums staðar í þéttbýli er hreinlega
yfirþyrmandi að hafa of voldugar girð-
ingar. Refanet, galvaniserað eða plast-
húðað, getur oft verið hentugt efni i létt-
ari girðingar og það er best að strengja
upp á vinkiljárnstólpa, með 2 m miilibili.
Einfaldar lágar girðingar úr timbri, t.d.
með tveimur langböndum á lágum stólp-
um, eru oft skemmtileg lausn og einfald
ar að gerð. Undir léttar girðingar getur
oft verið nauðsynlegt að steypa lága
veggi eða sökkla undir stólpana, sérstak-
lega ef götur eru ófrágengnar. Og svo
eru auðvitaðgömlu islensku veggirnir úr
torfi og grjóti möguleiki sem allt of litið
er notaður og hætt við að fáir kunni að
gera slíka garða ef enginn heldur kunn-
áttunni við.
Ef notuð eru borð í klæðningu er nauðsynlegt að taka eftir
Þegar gamlir staurar fara að fúna er þessi lausn möguleg. hvernig þau eru söguð úr viðnum, til að vita í hvaða att þau
Einnig má byggja svona i upphafi. geta undið sig. Hér er ýkt dæmi.
<x- b.
o_.
Hér sjást steyptir stólpar, með boltum sem eru steyptir inn, og
girðingin er timburgirðing með standandi klæðningu af al- Steyptur stólpi, með tréverki steyptu inn í. Hentugt þegar
28. tbl. Vikan IS